Plasthöfundur Íslands á rithöfundarlaunum

Hallgrímur Helgason er ekta plast, sagði Þorgeir heitinn Þorgeirson rithöfundur. Hallgrímur er sérfræðingur í Baugsmiðuðum sjálfsfróunartexta. Það er við hæfi að hann fái starfslaun frá ríkinu. Menningarþjóð er dæmd út frá því hvernig hún kemur fram við sína aumkunarverðustu.

Pólitísk evra í kreppu

Þjóðverjar keyptu sameiningu þýsku ríkjanna með því að fórna gjaldmiðlinum, þýska markinu. Frakkar kröfðu Þjóðverja um þess fórn til að tengja þýsku efnahagsvélina Evrópusambandinu órjúfanlegum böndum. Evran er pólitískt verkfæri og stendur frammi fyrir fyrstu prófrauninni á tíu ára afmæli sínu.

Evrópusambandið hefur þróast í skrykkjum frá stofnun Kol- og stálbandalagsins 1951. Oftar en ekki fæðir kreppuástand nýjar útfærslur á samstarfi meginlandsríkjanna. Rómarsáttmálinn frá 1957 var gerður í skugga kalda stríðsins og rúmum áratug síðar var samstarfið víkkað og dýpkað með Efnahagsbandalagi Evrópu í þann mund sem efnahagsundur eftirstríðsáranna rann sitt skeið.

Miðað við fyrri reynslu ætti yfirstandandi kreppa að kalla á nýjar útfærslu í Evrópusamstarfinu. Krafturinn er ekki sá sami í Evrópusambandinu og hann var. Þjóðaratkvæðagreiðslurnar í Frakklandi og Hollandi þar sem stjórnarskránni var hafnað grófu undan samrunaferlinu. Vandræðagangurinn sem þjóðaratkvæði Íra olli sambandinu er dregur einnig dilk á eftir sér.

Ef Evrópusambandinu tekst ekki að munstra þor og þrek til nýrra landvinninga í samrunaferlinu er hætt við stöðnun. Og stöðnun fyrir sundurleitan hóp 27 Evrópusambandsríkja er ávísun á afturför.

Ómögulegt er að segja til um hvað verður um evruna. Á hinn bóginn er nær óhugsandi að eftir kreppuna, sem mun standa yfir næstu 2-4 árin, verði ástandið óbreytt. Annað tveggja gerist: Evrusamstarfið liðast í sundur eða að aukin samruni efnahagskerfa Evrópusambandsþjóða verði ákveðinn og skipulagður.

Hvorugt mælir beinlínis með því að Ísland taki upp evru.


Sjálfsuppgjöf

Maður sem gefst upp á sjálfum sér gengur fyrir björg, finnur sér kaðalspotta eða slöngu til að leiða útblásturinn inn í farþegarýmið. Þjóð sem gefst upp á sjálfri sér biður útlendinga að sjá um sín mál.


Bloggfærslur 7. febrúar 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband