Miðvikudagur, 30. desember 2009
Davíð mælikvarði Jóhönnu á Icesave
Forsætisráðherra segir tap Seðlabankans við tilraunir að bjarga bönkunum síðast liðið ár meira vandamál en fyrirsjáanlegar skuldaklyfjar vegna Icesave-frumvarpsins. Jóhanna Sigurðardóttir skilur ekki að tap Seðlabankans er staðreynd sem ekki verður breytt. Icesave-frumvarpið er ekki orðinn hlutur fyrr en Jóhanna og aðrir þingmenn samþykkja frumvarpið.
Samanburður Jóhönnu á þessum gangólíku málum undirstrikar að hún er blinduð af heift. Þjóðin þarf ekki á forsætisráðherra að halda sem gerir ekki mun á fortíð og framtíð.
Miðvikudagur, 30. desember 2009
Icesave-jafntefli skást í stöðunni
Eina vitræna niðurstaðan í Icesave-málinu er að láta lögin frá í ágúst standa. Þar viðurkenna Íslendingar ábyrgð sína en hafa jafnframt í frammi nauðvörn með fyrirvörum á greiðslugetu þjóðarbúsins.
Frá fyrsta degi hefur ríkisstjórnin klúðrað málinu; samningurinn var ömurlegur og aðferðafræðin við að koma samningnum í gegnum þingið verri en ömurleg.
Sé nokkur skynsemisglóra eftir í kolli forystumanna stjórnarinnar láta þeir frumvarpið falla á jöfnu. Stjórnin getur þá sagt við Breta og Hollendinga að því miður verði ekki komist lengra en með ágústlögunum. Hér heima getur stjórnin haldið áfram eftir jafntefli á þingi.
![]() |
Guðbjarti misboðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 30. desember 2009
Aularök ársins fyrir inngöngu í ESB
Baugsútgáfan valdi tvo forstjóra menn ársins í viðskiptalífinu og þýfgaði þá um viðhorfið til inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Annar þeirra, Hilmar V. Pétursson forstjóri CCP, segir
Það er partur af samfélaginu sem virðist hafa stóra hagsmuni af því að beita sér gegn ESB og beitir öllum klækjum til að mála það sem vond útlendingasamtök sem vilji koma höndum yfir allt sem hér er. Það stenst enga skoðun," segir Hilmar og bendir á að þótt andstaðan kunni að þjóna sérhagsmunum þá gangi viðhorfið ekki upp.
Yfir vötnum Hilmars svífur árið 2007 þegar menn atvinnulífsins töluðu aldrei fyrir sérhagsmunum en ávallt fyrir þjóðarhagsmunum. Við vitum hvert það leiddi okkur.
2007-belgingurinn í Hilmari um að hann sem aðildarsinni tali ekki fyrir sérhagsmuni en fullveldissinnar séu sérhagsmunaseggir eru aularök ársins fyrir inngöngu í ESB.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 30. desember 2009
Skotfærin búin hjá stjórninni
Ríkisstjórnin er skotfæralaus í umræðunni um Icesave-frumvarpið. Þau skotfæri sem berast á vígvöllinn þar sem barist er um fjárhagslega framtíð þjóðarinnar falla öll í skaut stjórnarandstöðunnar. Við lok þriðju umræðu fréttist af nýjum gögnum sem þingmenn hafa ekki fengið að sjá og lúta m.a. að undanskoti upplýsinga aðalsamningamanns Íslands gagnvart utanríkisráðherra.
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra tóku umræðuna fyrir hönd stjórnarinnar í gærkvöldi. Þegar leið á umræðuna lét Össur sig hverfa og Steingrímur J. stóð einni í brúnni.
Vörn Steingríms J. var til að byrja með að öll nauðsynleg gögn hefðu þegar komið fram í málinu. En hann lenti fljótlega í mótsögn við sjálfan sig þegar hann viðurkenndi að æskilegt væri að upplýsa hvort kynningarfundur í London í vor hafi verið haldinn fyrir utanríkisráðherra til að greina frá valkostum í deilunni við Breta og Hollendinga. Össur segist ekki hafa sótt fundinn en samkvæmt gögnum lögmanna Michon de Reya sat Össur fundinn. Í gögnum lögmannsstofunnar kemur jafnframt fram að Svavar Gestsson aðalsamningamaður Íslands hafi farið fram á að utanríkisráðherra fengi ekki að sjá tiltekin gögn er vörðuðu málið.
Sanngirniskrafa er að skjölin verði kynnt og þingmenn fái tækifæri að meta þau. Enfremur að Svavar Gestsson yrði kallaður á þingnefndarfund til að upplýsa undirlegheitin. Í fyrstu ætlaði ríkisstjórnarmeirihlutinnn ekki að verða við þessum óskum en verð að lokum að lúta í lægra haldi.
Skotfæri stjórnarinnar í Icesave-umræðunni eru á þrotum og málefnastaðan gjörtöpuð. Icesave-frumvarpið bíður eftir náðarhögginu.
![]() |
Icesave-umræðu frestað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |