Þriðjudagur, 22. desember 2009
Tölfræðikreppa og þjóðfélagskreppa er sitthvað
Bandaríkin eru komin úr kreppu en Bretland er í kreppu, samkvæmt tölfræðilegri skilgreiningu um samdrátt þjóðarframleiðslu. Kreppu er skollin á þegar þjóðarframleiðsla dregst saman tvo ársfjórðunga í röð og lýkur þegar vöxtur kemur í stað samdráttar.
Umræða um hvernig kreppu lýkur er gjarnan í myndmáli. V-laga kreppa segir að botni samdráttar sé náð og vegurinn beinn og breiður upp á við; W-laga kreppa lagast með rykkjum og skrykkjum og baðkerslaga [..............................] er með langt tímabil með engum vexti.
Tölfræðikreppur er saklausar hliðranir og gangverki atvinnulífsins. Þjóðfélagskreppur eru þegar breytingar í efnahagskerfi leiða til óeirða, ofbeldis og eignatjóns.
Í búsáhaldabyltingunni fengum við snert af þjóðfélagskreppu. Ótti sumra er að í þjóðfélögum eins og Grikklandi, Lettlandi og víðar verði þjóðfélagskreppa í kjölfar tölfræðikreppu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 22. desember 2009
Veik pólitísk forysta Jóhönnu
Forsætisráðherra er áhorfandi að einleik fjármálaráðherra annars vegar og utanríkisráðherra hins vegar. Hvorugur fagráðherranna lítur svo á að það sé þeirra hlutverk að efna til pólitískrar herferðar í útlöndum til að rétta hlut Íslands í Icesave-málinu. Stjórnarandstaðan, einum Framsóknarflokkur, er búinn að gera meira fyrir málstað Íslands en forsætisráðherra.
Í fyrirspurn Ragnheiðar E. Árnadóttur þingmanns Sjálfstæðisflokks um fundi forsætisráherra með erlendum starfsbræðrum er frammistaðan afhjúpuð.
Í stað þess að nota þrekið til að vinna málstað þjóðarinnar fylgis á erlendum vettvangi fer kraftur Jóhönnu Sigurðardóttur og embættis forsætisráðherra í að þvinga þingmenn til fylgilags við ónýta samninga ríkisstjórnarinnar um uppgjör á Icesave-reikningum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 22. desember 2009
Hvorki til Björgólfs né Jóns Ásgeirs
Peningamennirnir sem léku sér með fjármuni annarra og skilja eftir sviðna jörð eiga hvorki að fá lög til að gróðatryggja rekstur, Björgólfur og gagnaverið, né afslátt af skuldum, Jón Ásgeir og Hagar.
Samstaða er um það í þjóðfélaginu að auðmenn hrunsins eigi ekki að koma að endurreisninni. Þeirra hlutverki er lokið á Íslandi.
Stjórnmálaflokkar sem taka hrunverja upp á arma sína starfa ekki í þágu almannahagsmuna.
![]() |
Kristinn H: Ekki krónu til Björgólfs Thors |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Þriðjudagur, 22. desember 2009
Sérþekking Steingríms J. liggur hvar?
Allt Icesave-ferlið talar Steingrímur J. eins og hann búi að áratuga reynslu í alþjóðastjórnmálum og viti upp á hár hvernig alþjóðasamfélagið muni bregðast við ef Ísland lýtur ekki í einu og öllu boðvaldi Breta og Hollendinga í deilunni um uppgjör Icesave-reikninganna.
Sannleikurinn er sá að Steingrímur J. er landsbyggðarþingmaður með sáralitla ráðherrareynslu og nær enga raunþekkingu á alþjóðastjórnmálum.
Þegar fjármálaráðherra fabúlerar um viðbrögð alþjóðasamfélagsins við því að Ísland grípi til nauðvarnar og setji fyrirvara við ábyrgð okkar á innlánsreikningum einkabanka ber að taka orðum hans stórri klípu salts.
Hitt er svo annað mál að þrátt fyrir takmarkanir sínar ber Steingrímur J. höfuð og herðar yfir Jóhönnu Sigurðardóttur. Líklega er hann af þeirri ástæðu sagður forsætisráðherra í meðfylgjandi frétt.
![]() |
Ekki hægt að líta framhjá varnarorðunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |