Föstudagur, 11. desember 2009
Ómar vill afsökun
Eftirfarandi póstur var sendur á tölvupóstfang bloggsins fyrir stundu
Páll, ég óska hér með eftir að þú biðjir mig formlega afsökunar á svívirðingum gegn persónu minni á blogginu þínu 10. desember undir yfirskriftinni 'Ómar á launum hjá Samfylkingu?' Ég hef þegar komið athugasemd sama efnis á framfæri við Morgunblaðið og mun gera víðar.
Ómar Valdimarsson
Svarið er þetta: Fyrr frýs í helvíti en að ég biðji alræmdan almannatengil afsökunar á því að fara fram að hann geti þess hvaða efni hann kemur á framfæri fyrir borgun og hvað er skrifað fyrir eigin reikning.
Föstudagur, 11. desember 2009
Icesave er afgreitt, Steingrímur J. afneitar sínum hlut
Alþingi afgreiddi Icesave-ábyrgðina síðsumars. Lögin eru í gildi og Ísland hefur staðið við sitt. Steingrímur J. Sigfússon á hins vegar eftir að ganga frá sínum hlut. Formaður Vg og fjármálaráðherra verður að segja af sér ásamt ríkisstjórninni. Tvær ástæður eru fyrir afsögninni.
Í fyrsta lagi vegna þess að ríkisstjórnin gerði ekki lög Alþingis frá í sumar að sínu baráttumáli og hélt á málstað okkar gagnvart Bretum og Hollendingum. Í öðru lagi vegna þess að afsögn er nauðsynlegt til að sýna umheiminum að lengra verður ekki komist með Icesave-ábyrgðina gagnvart Íslendingum.
Umheimurinn þarf skýr skilaboð frá Íslandi: Afsögn ríkisstjórnarinnar.
![]() |
Icesave mun ekki hverfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 11. desember 2009
Evrópu hnignar, er fátæk og gömul
Um aldamótin 1900 voru Evrópubúar um fjórðungur mannkyns. Spár segja að um miðja þessa öld verði íbúar Evrópu 6 prósent mannfjölda heimsins, þar af verður þriðjungur yfir 65 ára gamall. Karlamagnúsdálkurinn í Economist, kenndur við keisarann sem krýndur var í Aachen árið 800, gerir hægfara hnignun Evrópu að umtalsefni.
Leiðtogar Evrópu þverskallast við að horfast í augu við afturför álfunnar. Karlamagnús sækir innsæi í skáldsöguna Hlébarðinn eftir Giuseppe di Lampedusa. Víðkunn setning úr skáldsögunni hljómar svona: Til að ástandið haldist óbreytt þarf að gera breytingar. Karlamagnús hæðist að Evrópusambandinu sem flýtur að feigðarósi eftir að þjóðir þess hafa lifað lengi um efni fram.
Á Íslandi vill Samfylkingin munstra þjóðina á gamalmennaskútu ESB undir þeim formerkjum að sælt sé sameiginlegt skipbrot.
Hér er Karlamagnús í Economist.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)