Baugsstjórn hrunverja

Málgagn Baugs blessaði ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar og hæfði þar skel kjafti. Lausafregnir herma að sumir þingmenn Sjálfstæðisflokksins telji æskilegt að ná saman við Samfylkinguna um nýja ríkisstjórn eftir að Jóhanna Sig. lýsir sitjandi stjórn afvelta.

Þingmennirnir sem sagðir eru áhugasamir um slíka stjórn hafa viðurnefnin Glitnissjóður 9, REI og Kaupþingsprinsessan.


Val Steingríms J. er fallin stjórn eða klofinn flokkur

Formaður Vinstri grænna þarf að velja á milli þess að þakka fyrir sig í ríkisstjórn Jóhönnu og bjarga flokknum eða sitja áfram í ríkisstjórn og farga flokknum. Velji Steingrímur J. seinni kostinn framlengir hann líf ríkisstjórnarinnar um nokkra daga, í hæsta lagi nokkrar vikur. Ef skynsemisglóra er enn í höfði Steingríms J. slítur hann ríkisstjórnarsamstarfinu.

Í framhaldi á Steingrímur J. tvo kosti. Í fyrsta lagi að mynda minnihlutastjórn sem Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur sýndu vinsamlegt hlutleysi. Kosningar yrðu næsta vor. Í öðru lagi að mynda þriggja flokka stjórn með Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki.

Fyrri kosturinn er betri.


mbl.is Þingflokkur VG fundar í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. október 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband