Laugardagur, 17. október 2009
Icesave-samninga verður að fella
Ónýtir samningar um ríkisábyrgð á Icesave-reikningum voru gerðir illskárri með með fyrirvörum Alþingis. Hafni Bretar og Hollendingar fyrirvörum þingsins verður að fella frumvarp ríkisstjórnarinnar um Icesave-samninginn.
Réttarstaða okkar er mun betri en hún var þegar grunnur var lagður að samningunum. Björn Bjarnason segir frá því á heimasíðu sinni í kvöld að ESB hyggst breyta reglum um starfsemi fjármálastofnana sem starfa í tveim eða fleiri löndum. Þar með hefur ESB viðurkennt galla í regluverki sínu. Af því leiðir Íslendingar eigi ekki einir að bera ábyrgð Icesave-klúðrinu.
![]() |
Icesave-fyrirvörum breytt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 17. október 2009
Útrásin var glæpamenning sett á stall
Útrásin var kennd við dirfsku, skilvirkar ákvarðanir, hugvit og sigrandi stjórnendamenningu. Í reynd var ofdekruðum, ofmetnum og ofurgráðugum ungum mönnum sleppt lausum, fyrst á íslenskt efnahagslíf og síðar á evrópska sparifjáreigendur.
Hægt og bítandi kemur í ljós hversu víðtækt svindlið var og hve óforskammaðir auðmennirnir voru.
Fyrir utan að skilja og læra af útrásarfirringunni þarf samfélagið að ganga milli bols og höfuðs af þeim afgangi útrásarinnar sem enn lætur á sér kræla. Exista, Hagar, 365 miðlar og Geysir Green eru þar á meðal.
![]() |
Meint allsherjarmisnotkun Kaupþings til saksóknara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Laugardagur, 17. október 2009
Líkur á minnihlutastjórn aukast
Meirihluti þjóðarinnar hafnar Alþjóða gjaldeyrissjóðnum og meirihluti er á móti ríkisábyrgð á Icesave-reikningum. Meirihluti er jafnframt á móti inngöngu í Evrópusambandið. Samfylkingin er með öllu því sem þjóðin er á móti.
Jóhanna Sigurðardóttir nýtur sífellt minna trausts en Steingrímur Jóhann er traustur og stöðugur í mælingum.
Líkur á að minnihlutastjórn Vinstri grænna taki við í haust aukast.
![]() |
Meirihluti vill segja upp samningi við AGS |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)