Litli Klás gegn Stór-Evrópu

Vaclav Klaus forseti Tékklands neitar að skrifa undir Lissabonsáttmálann fyrr en hann fær tryggingu fyrir því að Súdentaþjóðverjar og afkomendur geti ekki gert kröfu um bætur vegna miska sem þeir urðu fyrir í eftirmálum seinni heimsstyrjaldar. Sáttmálinn verður ekki virkur fyrr en öll 27 aðildarríki Evrópusambandsins samþykkja hann.

Hér tæpir Daniel Hannan  á baráttu Litla Klás við Stór-Evrópu.

Hér er brusselsk pæling um framhaldið.


Bónusfeðgar, fákeppni og Samfylkingin

Dagvöruverslunin er fákeppnismarkaður þar sem Bónusfeðgar, Jóhannes og Jón Ásgeir, ráða lögum og lofum. Bónus heldur uppi verðlagi í landinu, því að birgjar verða að hækka verð óeðlilega til að geta veitt Bónus þann afslátt sem feðgarnir krefjast. Með því að tryggja að allir aðrir séu með hærra verð græða feðgarnir á verslun sinni.

Fréttir um að ríkisbankarnir ætli að veita Bónusfeðgum óeðlilega fyrirgreiðslu til að þeir haldi þjóðinni áfram í græðgiskrumlum sínum vekja spurningar um tök feðgana á stjórnkerfinu.

Baugur, sem var móðurfélag feðganna þangað til það fór í gjaldþrot, studdi annan ríkisstjórnarflokkinn ótæpilega með fjárframlögum. Samfylkingin fékk stórfé frá Baugi og öðrum félögum í sömu samsteypu.

Er það til þess að tryggja Bónuskrónur í flokksjóði sem ríkisvaldið lætur fákeppni vera áfram ráðandi fyrirkomulag á dagvörumarkaði?

Hér er umfjöllun um Bónusfeðga í Silfri Egils.


Bloggfærslur 13. október 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband