Fimmtudagur, 11. desember 2008
Friðrof er ekki endurreisn
Á landsfundi Samfylkingar í nóvember 2003 var samþykkt að skipa nefnd um Evrópumál. Verkefni nefndarinnar var í fjórum liðum. Annar liður er eftirfarandi: Skilgreina ítarlega hver helstu samningsmarkmið Íslendinga ættu að vera í aðildarviðræðum við Evrópusambandið með hliðsjón af stækkuðu Evrópusambandi."
Evrópuhópur Samfylkingarinnar hefur enn ekki skilað skýrslu. Samningsmarkmið okkar hafa heldur ekki verið skilgreind.
Umræðan um það hvort Ísland ætti að sækja um aðild að Evrópusambandinu er veigameiri en öll þjóðmálaumræða lýðveldistímabilsins, bankahrunið meðtalið. Forysta Samfylkingarinnar ætti að skammast sín hvernig hún jafnt og stöðugt reynir að koma sér undan málefnalegri umræðu um Evrópusambandið. Oddvitar Samfylkingarinnar fara þá leið að nota dægurmál eins og samanburð á stýrivöxtum, könnun á matvælaverði og núna bankahrunið sem röksemd fyrir inngöngu.
Til lengri tíma er bankahrunið smámál. Innganga í Evrópusambandið er stórmál í bráð og lengd.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)