Fimmtudagur, 20. nóvember 2008
Alhliða niðurfærsla ábyrgðar, nei takk
Viðskiptaráð setur fram óásættanlegar hugmyndir um niðurfærslu skulda fyrirtækja. Þau fyrirtæki sem ekki hafa kunnað fótum sínum forráð eiga að fara í gjaldþrot. Þar með er rýmt til á markaðnum fyrir öðrum. Það er ótækt að þeir sem hafa skuldsett rekstur fram úr hófi, oft til að kaupa upp samkeppni, fá slíka iðju niðurgreidda með almannafé.
Íslenskt atvinnulíf hefur á síðustu árum þróast yfir í fákeppni ef ekki einokun. Núna þegar ríkið á bankana á að nota tækifærið og grisja með það fyrir augum að nýir sprotar fái að vaxa. Tillögur Viðskiptaráðs viðhalda óbreyttu ástandi. Krafan er að menn sæti ábyrgð.
![]() |
Vilja alhliða niðurfærslu skulda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)