Sunnudagur, 12. október 2008
Blaðamenn og tveir skúrkar
Blaðamenn Morgunblaðsins geta hrundið atlögu tveggja helstu skúrka útrásarfirringarinnar, Björgólfs Guðmundssonar og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, að faglegri blaðamennsku á Íslandi. Í nafni borgaralegrar óhlýðni ættu blaðamenn Morgunblaðsins að neita gefa út blaðið fyrr en sameining Árvakurs og 365 miðla hefur verið afturkölluð.
Á Morgunblaðinu starfa blaðamenn sem alla starfsævi sína hafa byggt upp trúnaðarsamband við lesendur blaðsins. Trúnaðurinn byggir á því að vinna að faglegri fréttaöflun með hagsmuni almennings í fyrirrúmi.
Sameining Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, við lygamaskínu Baugs sem heitir 365 miðlar er blaut tuska framan í andlit allra blaðamanna Morgunblaðsins, lífs og liðinna.
Helsti eigandi Morgunblaðsins, Björgólfur Guðmundsson, fer í sögubækurnar sem maðurinn er tók íslenska þjóðarbúið í gíslingu innlánsreikninga Landsbankans í Bretlandi. Björgólfur er rúinn æru og trausti heiðvirðra manna. Sameining Morgunblaðsins við lygaverksmiðju Baugs sýnir svo ekki verður um villst að dýpt spillingareðlisins á sér engin takmörk.
Blaðamenn Morgunblaðsins ættu að leggja niður vinnu þangað til sameiningin hefur verið afturkölluð. Björgólfur er ekki í neinni stöðu til að standast samtakamátt blaðamanna.
Þegar búið er að hrinda atlögunni ættu blaðamenn að stofa almenningshlutafélag um kaup á hlut Björgólfs í Árvakri. Maðurinn til að leiða það félag heitir Styrmir Gunnarsson, fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Sunnudagur, 12. október 2008
Baugur og blóðdropi Björgvins
Svona hljómar viðvörun Baugsmálgagnsins visir.is: Framtíð Baugs Group ræðst um helgina. Sir Philip Green hefur boðist til að kaupa skuldir félagsins við íslenska banka á ríflegum afslætti af íslenska ríkinu. Ef því boði verður ekki tekið er talið líklegt að breska ríkisstjórnin muni þjóðnýta öll fyrirtæki í eigu Baugs í Bretlandi til að vernda þau rúmlega 50 þúsund störf sem þar eru."
Fyrir þá sem ennþá eru með öllum mjalla er rétt að taka það fram að Baugur rekur nokkrar tuskubúðir í Bretlandi sem selja framleiðslu frá Kína og öðrum láglaunalöndum. Fataspjarirnar frá Baugsversluninni eru trauðla líklegar til að valda Bretaveldi áhyggjum hvort heldur þær séu seldar í House of Fraser eða Marks & Spencer. Þjóðnýting á tuskubúðum er jafn líkleg og þjóðnýting á leikfangaverslun.
Aftur til Íslands:
Í líkhúsum landsins liggur fólk sem féll fyrir eigin hendi vegna afleiðinga fjöldagjaldþrotsins. Ef Björgvin G. Sigurðsson lyftir litla fingri til að bjarga Baugi er blóð þessa fólks komið á hans hendur. Verði viðskiptaráðherra að góðu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)