Færsluflokkur: Dægurmál
Þriðjudagur, 6. maí 2025
Kvenblaðamönnum ógnað en sætir ekki tíðindum
Alþjóðasamtökin Blaðamenn án landamæra gáfu nýverið út skýrslu um stöðu blaðamanna í ólíkum þjóðríkjum. Um öryggi íslenskra blaðamanna segir:
Þótt blaðamann séu tiltölulega óhultir fyrir líkamlegu ofbeldi verða kvenkyns blaðamenn stundum fyrir hótunum með símtölum eða athugasemdum á félagsmiðlum. Vandamálið er vaxandi á síðari árum.
RÚV gerði í síðustu viku tvær fréttir um skýrsluna. Hvorki í almennu fréttinni né í sértækri umfjöllun um stöðu íslenskra blaðamanna er þess getið að kvenblaðamenn hér á landi sæta hótunum.
RÚV virðist ekki umhugað um kvenkynið í stétt blaðamanna. Í fyrra, þegar Blaðamenn án landamæra birtu ársskýrsluna fyrir 2024, voru hafðar í frammi sömu athugasemdir um það vaxandi vandamál að blaðakonur séu atyrtar. Gagnrýnina í fyrra mátti lesa sem aðfinnslu í garð RÚV fyrir meðferðina á fréttakonu sem þótti ekki makka rétt.
Valkvæðar fréttir RÚV um samanburðarskýrsluna, í ár og í fyrra, staðfesta enn og aftur að ríkisfjölmiðillinn beitir skipulega dagskrárvaldinu til að fegra ásjónu Efstaleitis. Viðhorfið er að atburður gerist ekki án RÚV-fréttar. Ef engin frétt þá enginn atburður.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 5. maí 2025
Trump er forsenda skilnings á samtímanum
Trump er hálfguð hjá sumum en Satan sjálfur í augum annarra. Enginn stjórnmálamaður í manna minnum vekur slíkt umrót sem sitjandi Bandaríkjaforseti. Fylgjendur og andstæðingar staðfesta með heitum tilfinningum, ýmist tilbeiðslu eða stæku hatri, að Trump er lykill að skilningi á samtímanum.
Ráðandi hugmyndafræði á vesturlöndum, fyrir Trump, var frjálslyndi, sem kom í tveim útgáfum, er kenna má við hægri og vinstri. Vestrænt frjálslyndi, báðar útgáfur, var á sigurbraut frá og með lokum kalda stríðsins fyrir 35 árum. Samskiptaháttur frjálslyndisins er samfélagsmiðlar. Miðilinn mótar boðskapinn er gömul mantra úr fjölmiðlafræðum. Samfélagsmiðlar mótuðu þann boðskap að vestrænt frjálslyndi yrði ráðandi í heimsþorpinu er lyti forræði alþjóðlegra stofnana sem höfuðu með sér samráð.
Til að fá alþjóð með sér í leiðangurinn var búin til ógnvaldur er krafðist stóraukins yfirþjóðlegs valds. Ógnvaldurinn er manngerð loftslagsvá. Tveir spámenn, hvorugur með þekkingu á loftslagi eða veðurfarssögu, Al Gore og Gréta Thunberg, vitnuðu að eingöngu með reglugerðum og skattlagningu væri hægt að forða heiminum frá hamfarahlýnun. Jafnvel á köldu Íslandi trúðu menn að hlýindi væru helvíti en norðangarri himnaríki.
Ógn og skelfing til að sameina heimshjörðina var bætt upp frelsunarboðskap andfélagslegrar einstaklingshyggju. Í heimsþorpinu nýja mátti hver og einn skilgreina sig að geðþótta. Karlar urðu konur og stelpur strákar. Umburðalyndi leikskólans, með hlutverkaleiki bæði fyrir og eftir hádegi, varð samfélagsnorm. Sjáandi máttu skilgreina sig sem blinda og heilbrigðir sem fatlaða. Sjúkrasjóðir tæmdust er æ fleiri lýstu sig kulnaða í starfi. Sjálfssjúkdómagreining hélst í hendur við sjálftöku á lyfjum, hvort heldur amfetamíni við ADHD eða ópíóðum við lífsleiða.
Frjálslyndið, með öðrum orðum, aumingjavæddi vestræn samfélög. Háskólar, ávallt í forystu nýrra hugmyndastrauma, bjuggu til DEI, sem stendur fyrir fjölbreytileika, jöfnuð og inngildingu. Hér er kominn kjarni vóksins, sem tilfallandi útskýrði í vetur:
Vókið er blanda félagslegs réttlætis og andfélagslegrar einstaklingshyggju. Blandan er mótsagnakennd eins og sést á helstu útgáfunni, DEI. Kjarni DEI er fjölbreytni, jöfnuður og inngilding. Mannlífinu er þannig háttað að fjölbreytni og jöfnuður fara ekki saman. Ójöfnuður er óhjákvæmilegur hluti af fjölbreytni. Sumir eru gáfaðri en aðrir, duglegri, heppnari, agaðri, fórnfúsari, skipulagðari og ósérhlífnari. Fjölbreytni skilar sér í ólíku lífshlaupi þar sem aðrir þættir koma við sögu, t.d. tækifæri og ógnanir í umhverfinu.
Þriðji þátturinn i DEI, inngilding, á að jafna mótsagnir á milli þeirra tveggja fyrstu, fjölbreytni og jafnaðar, en gerir það eitt að auka á óreiðuna.
Trump heggur á báðar hendur í stríðinu gegn úr sér vöxnu frjálslyndinu og uppsker ýmist aðdáun eða andstyggð. Íslandsvinurinn Daniel Hannan skrifar í Telegraph að nýlegir kosningasigrar frjálslynda vinstrisins í Ástralíu og Kanada sýni hve illa fer fyrir frjálslynda hægrinu á tímum Trump. Ráðlegging Hannan er að hægrimenn taki afstöðu gegn Trump og haldi á lofti hægra frjálslyndi til að tapa ekki kosningum fyrir vinstra frjálslyndinu. Tungutak Hannan er gærdagsins. Frjálslynd hægristefna verður ekki sigurafl í fyrirsjáanlegri framtíð.
Trumpismi er ekki hugmyndafræði, meira viðbragð við ófremdarástandi. Kjörtímabil sitjandi Bandaríkjaforseta er uppgjör við ógöngur frjálslyndis sem skóp forsendur fyrir öfgalýðræðinu, - fyrirbæri sem bloggað var um í gær.
Hvað kemur eftir uppgjörið? Enginn veit en niðurstaða þriggja stórmála ræður miklu um framhaldið. Í fyrsta lagi tollastríðið, í öðru lagi útlendingamál og í þriðja lagi Úkraínustríðið. Málin eru að mestu ótengd - nema að því leyti að Trump hefur gert þau að sínum. Ólíkt loftslagsmálum og vókinu, þar sem Trump hefur svo gott sem sigrað, eru stórmálin þrjú enn óútkljáð.
![]() |
Ég verð átta ára forseti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 4. maí 2025
Öfgalýðræði
Valkostur fyrir Þýskaland, AfD, er næst stærsti stjórnmálaflokkur landsins, með 20 prósent atvæða í þingkosningum í febrúar á ár. Flokkurinn var á föstudag skilgreindur af þýsku leyniþjónustunni sem hægriöfgaflokkur.
Afleiðingarnar af skilgreiningunni eru enn ekki komnar fram. Samkvæmt þýsku útgáfunni Die Welt gætu opinberir starfsmenn, sem eru félagar í AfD, sætt rannsókn og e.t.v. misst starfið. Þá eru opinberar fjárveitingar til flokksins til skoðunar. Eðli málsins samkvæmt njósna yfirvöld um öfgahópa, beita m.a. hlerunum. Ofsóknir í þágu lýðræðis er nýlunda.
Skilgreining þýsku leyniþjónustunnar kemur í framhaldi af samráði annarra stjórnmálaflokka um að starfa ekki með AfD. Samsæri gegn niðurstöðum frjálsra kosninga er ekki einkenni lýðræðislegra stjórnarhátta.
Burtséð frá efnisatriðum skilgreiningarinnar, leyniþjónustan gefur ekki upp nema niðurstöðuna, er stórmerkilegt að ríkisvald í lýðræðisríki lýsi yfir að stjórnmálaflokkur, sem einn af hverjum fimm landsmönnum kýs, sé öfgaflokkur án tilveruréttar.
Leyniþjónustan þýska gefur upp að AfD sé mannfjandsamlegur og virði ekki rétt minnihlutahópa. Umsögnin er pólitísk fremur en efnisleg. AfD hefur ekki farið með opinbert vald og ekki hægt að sýna fram á að flokkurinn brjóti gegn réttindum einstaklinga eða hópa.
Fyrirsögnin í þessu bloggi, öfgalýðræði, er mótsögn. Lýðræði er aðferð til að leiða fram meirihlutavilja án þess að réttur minnihluta sé fyrir borð borinn. Í lýðræði getur meirihluti í dag orðið minnihluti á morgun. Frjálsar kosningar eru helsta verkfæri lýðræðislegra stjórnarhátta. Lýðræði, sem stendur undir nafni, getur ekki verið öfgar í venjulegum skilningi orðsins. Öfgar útiloka málamiðlunina sem lýðræðið byggir á, að skipta um stjórnvald án þess að fangelsa eða skjóta fyrri valdhafa.
Þýska ríkið úrskurðar fimmtung þjóðarinnar halla undir öfga og fer nærri að banna starfsemi stjórnmálaflokks, AfD, sem er næst stærstur á þýska þjóðþinginu. Í raun er þýska leyniþjónustan, í umboði ríkisvaldsins, ekki að verja lýðræðið heldur staðhæfa að sumar skoðanir, t.d. á innflytjendamálum, séu óæskilegar. Með því að spyrða óæskilegar skoðanir við öfgar, og fá þær bannaðar, er lýðræðinu ekki þjónað heldur harðstjórn rétttrúnaðarins sem þolir ekki frjálsa orðræðu.
Ný skoðanakönnun, gerð eftir yfirlýsingu leyniþjónustunnar, segir að 48 prósent Þjóðverja vilji banna AfD, 37 prósent eru á móti banni og 15 prósent hafa ekki skoðun. Þegar skoðanir eru úrskurðaðar ólögmætar styttist í fangelsun manna með bannaðar skoðanir. Lýðræði þrífst ekki í fangabúðum.
Þýska tilraunin með öfgalýðræði fær ein málalok af tvennum mögulegum. Í fyrsta lagi að réttnefndu öfgarnar, pólitíski rétttrúnaðurinn, bíði lægri hlut. Í öðru lagi að lýðræðið fari í hundana. Síðast þegar það gerist í Þýskalandi spratt fram austurrískur liðþjálfi með frímerkjaskegg og gerði þýskum tilboð sem þeir gátu ekki hafnað.
![]() |
Vance: Búið að endurreisa Berlínarmúrinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 3. maí 2025
Styður Þorbjörg ráðherra rannsókn á Stefáni útvarpsstjóra?
Dómsmálaráðherra, Þorbjörg Sigríður, segir brýnt að rannsaka 13 ára gamalt njósnamál sem Helgi Seljan og RÚV gerðu að stórmáli í vikunni. Dómsmálaráðherra gefur ekki út yfirlýsingu um rannsókn á aðkomu fjölmiðla og blaðamanna í byrlunar- og símamálinu. Í báðum málum koma við sögu fyrrum lögreglumenn, óbreyttar löggur í njósnamálinu. Stefán Eiríksson fyrrum lögreglustjóri í Reykjavík og núverandi útvarsstjóri tengist byrlunar- og símamálinu.
Tilfallandi bloggaði um njósnamál Helga S. og RÚV:
Njósnir eru alvarlegt mál, byrlun og gagnastuldur alvarlegri. Þrettán ára njósnamál hallar sér að sagnfræði; fjögurra ára byrlunar- og símamál, sem enn er í rannsókn, er fréttamál. Skiljanlega velur Helgi Seljan sér viðfangsefni í takt við hagsmuni sína.
Dómsmálaráðherra er þeirrar skoðunar sagnfræðirannsókn á löngu fyrndu njósnamáli sé mál málanna. Faglegur ráðherra myndi telja brýnna að komast til botns í byrlunar- og símamálinu þar sem fjölmiðlar, með RÚV í fararbroddi, misnotuðu vanheila konu til óhæfuverka.
Brotaþolinn í byrlunar- og símamálinu, Páll skipstjóri Steingrímsson, leitaði til alþingis um að fá aðför fjölmiðla að heilsu hans og einkalífi upplýsta. Í frétt Morgunblaðsins segir að starfsmenn RÚV
hafi afritað símann eftir að fyrrverandi eiginkona hans kom tækinu í Efstaleiti. Þá rekur hann hvernig þeir fjölmiðlamenn sem höfðu stöðu grunaðra í sakamálarannsókn sem af málinu leiddi, auk Stefáns Eiríkssonar, útvarpsstjóra og fyrrverandi lögreglustjóra í Reykjavík, töfðu rannsókn málsins, sem að lokum olli því að lögregla lét það niður falla.
Sé Þorbjörgu dómsmálaráðherra annt um orðspor lögreglunnar ætti hún að hvetja til rannsóknar á fyrrum lögreglustjóra í Reykjavík og tilburði hans að tefja lögreglurannsókn á sakamáli. Óbreyttar löggur og gamalt njósnamál er eitt, allt annað og stærra er lögreglustjóri og vafasöm embættisfærsla hans í sakamáli sem enn er til rannsóknar.
Dómsmálaráðherra er líklega ekkert annt um orðspor lögreglunnar. Annað hangir á spýtunni. Þorbjörg ráðherra tekur að sér aukahlutverk í RÚV-leikriti að þyrla upp moldviðri vegna 13 ára njósnamáls til að draga athyglina frá byrlunar- og símamálinu.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd alþingis er með ósk Páls skipstjóra um rannsóknarnefnd til meðferðar. Þorbjörg ráðherra hlýtur að styðja sanngjarna ósk skipstjórans - ef hún telur að réttlæti skipti máli á Íslandi. Dómsmálaráðherra án réttlætiskenndar er ómerkilegt yfirvald.
![]() |
Mikilvægt að rannsaka aðkomu lögreglumannanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 2. maí 2025
Eitruð karlmennska: karlar í kvennafótbolta
Sé til eitruð karlmennska - hugtakið er á reiki - er eitraðasta útgáfa hennar karl sem segist kona og vill keppa við konur í íþróttum. Líkamlegir yfirburðir karla gagnvart konum koma hvað skýrast fram í íþróttum.
Í viðtengdri frétt eru þau tíðindi að karlar sem segjast konur geti ekki lengur keppt í kvennadeildum enska fótboltans. Bannið kemur í kjölfar úrskurðar hæstaréttar Bretlands um að konur eru þær einar sem fæðast með kvenlíkama. Umbreyttir karlar verða aldrei konur.
Eitt er að karl segist kona, toppstykkið er misvel skrúfað á fólk, allt annað og verra er þegar karlinn hyggst neyta líkamlegra yfirburða og skráir sig til leiks í kvennaíþrótt. Það heitir að svindla.
Konur sem etja kappi við karla í íþróttum eru dæmdar til að tapa, nánast undantekningalaust. Jafnvel skákíþróttin, sem reynir lítt á líkamlegt atgervi, skiptir iðkendum í karla- og kvennaflokka. Enda eru fá ef nokkur dæmi um að kona krefjist að komast í karlaflokk íþrótta.
Karl sem keppir við konur er í allt annarri og betri stöðu og má bóka velgengni fyrirfram, hirðir sæti kvenna í liðsíþrótt og kemst á pallinn í einstaklingsíþrótt. Þeim tilvikum fjölgar er karlar níðist á konum með trans að vopni. Eitraðasta karlmennskan er smitandi.
Transhugmyndafræðin styður svindlið. Samtökin 78 hér á landi krefjast þess að karlar fái að keppa í kvennaíþróttum. Eina skilyrðið er að karlinn segist transkona. Trans er hugarástand, ekki hlutlægur eða líkamlegur veruleiki.
Nú á að heita svo að Íslandi sé stjórnað af konum. Valdakonurnar, t.d. ráðherrar valkyrjustjórnarinnar, keppast við að þegja þegar kemur að líkamlegum körlum í kvennaíþróttum. Valdakonurnar þora ekki að standa með kynsystrum sínum. Hugleysi, eins og trans, er hugarástand - og er smitandi líkt og eitraðasta karlmennskan.
![]() |
Trans konur mega ekki spila í kvennaflokki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 1. maí 2025
Ríkið notar RÚV til að drepa aðra fjölmiðla
Ríkisstjórn Kristrúnar hleður undir RÚV en skerðir framlög til fjölmiðla sem eru í færum að veita RÚV samkeppni í fréttum og dagskrárefni, þ.e. Sýn og Morgunblaðið. Framtíðarsýn Loga Einarssonar fjölmiðlaráðherra er að RÚV drottni á fjölmiðlamarkaði á landsvísu. Lággróður við stall ríkisrisans verði héraðsfréttamiðlar:
Logi Einarsson hyggst auka við styrki minni fjölmiðla úti á landi, á kostnað tveggja stærstu einkareknu miðlana, til þess að styrkja sjálfsmynd fólks á landsbyggðinni.
Lokun á framleiðsludeild Sýnar er rökrétt afleiðing af boðuðum aðgerðum ríkisvaldsins. Stjórnlyndi og valdboðshyggja einkennir stefnu ríkisstjórnarinnar. Nýleg skipun stjórnarflokkanna í stjórn RÚV staðfestir markaða stefnu. Ríkisfjölmiðillinn skal verða valkyrjumálgagn.
Ríkis-Útvarp-Vinstrimanna er feigðinni merkt. Áður en ríkisstjórnin ákvað að gera ríkisfjölmiðilinn að málgagni sínu var trúverðugleiki RÚV á fallandi fæti. Í byrlunar- og símamálinu er Efstaleiti uppvíst að siðleysi og lögbrotum. Þýlyndi gagnvart valkyrjustjórninni mun ekki auka tiltrú almennings, aðeins hraða hnignunarferlinu.
Tilburðir ríkisstjórnar Kristrúnar að berja fjölmiðla til hlýðni sýnir ekki styrk, þvert á móti. Ríkisstjórnin stendur höllum fæti i frjálsri umræðu; svarið er að gera fjölmiðla, aðra en RÚV, vanmáttuga. Ríkisstjórn sem rúv-væðir fjölmiðlun er komin hálfa leið ofan í neðanjarðarbyrgið.
![]() |
Uppsagnir á Stöð 2: Framleiðsludeild lögð niður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 30. apríl 2025
Helgi Seljan, njósnafréttin og byrlunarmálið
Helgi Seljan fréttamaður RÚV er skráður annar tveggja höfunda fréttarinnar um njósnir fyrir Björgólf Thor auðmann. Samkvæmt frétt RÚV lauk njósnum árið 2012, fyrir þrettán árum. Eljaraglettur Björgólfs Thors og Róberts Wessmann eru gamalkunnar. Helgi Seljan er gjörkunnur öðru dramatísku sakamáli sem enn er í rannsókn en segir hvorki fréttir af málinu né veitir hann lögreglu upplýsingar. Fréttamaðurinn leggur mælistiku siðgæðis og löghlýðni á mann og annan en aldrei á sjálfan sig.
Vorið 2021, fyrir fjórum árum, var Helgi fréttamaður RÚV en gekk með veggjum. Í mars 2021 úrskurðar siðanefnd RÚV að fréttamaðurinn hafi farið offari í eineltisfréttamennsku og þverbrotið siðareglur ríkisfjölmiðilsins. Á meðan Helgi sleikir sárin fjarri sjónvarpsmyndavélum kemst á samband milli andlegrar veikrar eiginkonu Páls skipstjóra Steingrímssonar og yfirmanns Helga, Þóru Arnórsdóttur ritstjóra Kveiks.
Skipstjóranum var byrlað 3. maí 2021 heima hjá sér á Akureyri. Daginn eftir var flogið með hann á gjörgæslu Borgarspítalans í Fossvogi, steinsnar frá höfuðstöðvum RÚV. Sama dag færir eiginkonan Þóru síma skipstjórans. Á Efstaleiti er síminn afritaður; til taks var Samsung-sími, sömu gerðar og skipstjórans. Páll skipstjóri hafði talað máli Samherja í hamförum RÚV og Helga gegn útgerðinni, svokallað Namibíumál.
Á RÚV var unnið með gögn úr síma skipstjórans, spjall vinnufélaga um yfirstandandi Namibíuherferð RÚV og bandalagsmiðla, Stundinni og Kjarnanum. Útkoman úr vinnslunni á Efstaleiti var fréttaskáldskapur um skæruliðadeild Samherja. RÚV birti ekki fréttina heldur var hún send Stundinni og Kjarnanum sem birtu, samkvæmt skipulagi, þann 21. maí.
Sími skipstjórans var á Efstaleiti sólarhringinn 4. til 5. maí. Skyldi þykja fréttnæmt ef á daginn kæmi að þegar eiginkona skipstjórans sótti símann 5. maí var skotið á fundi til að vega og meta skipulag og næstu skref. Yrðu það tíðindi ef fundinn hefði setið Helgi Seljan?
Njósnir eru alvarlegt mál, byrlun og gagnastuldur alvarlegri. Þrettán ára njósnamál hallar sér að sagnfræði; fjögurra ára byrlunar- og símamál, sem enn er í rannsókn, er fréttamál. Skiljanlega velur Helgi Seljan sér viðfangsefni í takt við hagsmuni sína. Glæpaleiti ábyrgist trúverðugleikann.
![]() |
Björgólfur sagður hafa fjármagnað njósnir á hluthöfum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 29. apríl 2025
Hræðslujátning Kristrúnar
Kristrún forsætis segir í Wall Street Journal að hún vilji ekki hræða landsmenn inn í Evrópusambandið. Ótti Kristrúnar er annar en hún lætur uppi. Líklegra er að þjóðin hlaupi í dauðans ofboði frá Evrópusambandsaðild og í fang Bandaríkjanna en að hræðsla leiði íslenskan almenning til Brussel.
Ríkisstjórn Jóhönnu Sig. 2009-2013 reyndi að hræða þjóðina inn í Evrópusambandið. Það tókst ekki þótt almenningur væri í taugaáfalli eftir hrun og margir tóku undir óopinbert slagorð Samfylkingar: Ísland er ónýtt. Hagkerfið var í gjaldeyrishöftum en gylliboð um evruna blekktu fólk ekki til hollustu við Brussel.
Aðstæður á Íslandi eru allt aðrar núna en 2009 þegar síðasta vinstristjórn sendi umsókn austur í sæluríkið. Íslendingar hafa nýfengna reynslu að fara í gegnum djúpa kreppu, bæði í skilningi fjárhags og menningar, en reisa sig við á grunni fullveldis og sjálfsstæðs gjaldmiðils. Engin leið er búa til sannfærandi hræðsluáróður um að hagsmunum þjóðarinnar sé betur borgið innan ESB.
Séu innlendar aðstæður óhagfelldar ESB-sinnum eru alþjóðlegar aðstæður hálfu verri. Tvennt kemur til. Í fyrsta lagi Úkraínustríðið. Hvort heldur að friður verður saminn í bráð eða vopnin tala um nokkra hríð enn er öllum ljóst að meginviðfangsefni ESB verður Rússland næstu ár ef ekki áratugi. ESB verður ekki í nokkrum færum um fyrirsjáanlega framtíð að taka á sig skuldbindingar í varnar- og öryggismálum umfram það að glíma við Rússland. Stöðutaka ESB á Íslandi yrði ekki einu sinni táknræn. Í öryggis- og varnarmálum á Norður-Atlantshafi hefur ESB ekkert upp á að bjóða. Ísland yrði berskjaldaðri gagnvart ytri ógnum innan ESB en utan sambandsins.
Í öðru lagi er öryggis- og varnarmálastefna Bandaríkjanna að taka stakkaskiptum. Bandaríkin líta svo á að GIUK-hliðið, þ.e. svæðið Grænland-Ísland-Bretlandseyja, séu ytri öryggismörk bandaríska meginlandsins á Atlantshafi. Áhugi Bandaríkjanna á Grænlandi staðfestir endurskoðun á varnarmálastefnunni. Stefnubreytingin er ekki eitthvað sem Trump forseta datt í hug heldur langtímaþróun í endurmati Bandaríkjamanna á öryggishagsmunum sínum. Bandarísk yfirvöld munu fylgjast grannt með þróun innanríkismála, bæði á Grænlandi og Íslandi, og reiðubúin að gæta hagsmuna sinna, sé þeim ógnað.
Það liggur í hlutarins eðli að stefni ríkisstjórn Kristrúnar að ESB-aðild með þeim rökum að öryggishagsmunum Íslands sé betur borgið með ESB-aðild verður spurt hvort nánari samvinna við Bandaríkin sé ekki betri kostur. Svarið er einboðið já, Bandaríkin eru til muna líklegri að tryggja varnarhagsmuni Íslands en ESB.
Sagt með öðrum orðum. Hreyfing í átt að ESB-aðild kallar á það andsvar að Íslandi sé betur borgið með nánari samvinnu við Bandaríkin. Fyrirsjáanlega verða pólitísk átök innanlands um grundvallaratriði í utanríkisstefnu landsins. Sagan kennir að slík átök eru hatrömm.
Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra bendir á, í umfjöllun um orð Kristrúnar í Wall Street Journal, að vísir sé að ófriði innan Samfylkingar milli þeirra sem vilja flýta Brusselleiðangrinum og hinna sem ganga fram af varfærni. Innanflokksátök verða hjóm eitt í samanburði átökin í þjóðfélaginu milli ESB-sinna og Ameríkuvina.
Í núverandi viðsjám í alþjóðapólitík er farsælast að stíga varlega til jarðar og efna ekki til pólitískra átaka um hvort Ísland skuli stefna í vestur eða austur.
![]() |
Vill ekki hræða landsmenn til að ganga í ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 28. apríl 2025
Auglýsing, RÚV-fréttir og sjávarútvegur
Auglýsing um áhrif tvöföldunar veiðigjalda ríkisstjórnar Kristrúnar vekur ugg og ótta stjórnarliða, segir frétt á Vísi. Auglýsingin bregður öðru ljósi á sjávarútveg en vinstrimenn eiga að venjast. Í meira en áratug hefur RÚV séð um að fóðra almenning á skilaboðum um hvaða augum eigi að líta útgerð og vinnslu.
Tilfallandi tók saman fyrir tveim árum herferð RÚV gegn einu fyrirtæki, Samherja. Herferðin hafði að meginmarkmið að gefa undir fótinn þeirri hugsun að sjávarútvegur væri í höndum vondra manna. Herferðin hófst 2012 og náði hámarki 2021:
1. Seðlabankamálið hófst 27. mars 2012 með húsrannsókn hjá Samherja að morgni og Kastljósþætti á RÚV að kveldi sama dags. Tilefnið var ásökun RÚV, byggð á skýrslu sem var skáldskapur. Samherji var sýknaður fyrir dómi. Ásakanir RÚV kostuðu samfélagið tugi milljóna króna. Saklaust fólk mátti sitja undir ásökunum að stunda afbrot. En RÚV fitnaði eins og púkinn á fjósabitanum.
2. Namibíumálið byrjar með Kveiksþætti á RÚV þann 12. nóvember 2019 þar sem uppljóstrarinn Jóhannes Stefánsson stígur fram á opinberan vettvang í boði RÚV. Helstu ásakanir á hendur Samherja voru mútugjafir til namibískra embættismanna. Málið fór til rannsóknar sakamálayfirvalda á Íslandi og í Namibíu. Í Namibíu stendur yfir dómsmál þar sem Samherji er ekki nefndur a nafn - nema sem brotaþoli. Rannsóknin hér á landi er svo gott sem runnin út í sandinn. Það á aðeins eftir að gefa út dánartilkynningu.
Kostnaður við Namibíumálið hleypur á milljörðum. Héraðssaksóknari fékk 200 milljónir til að rannsaka og það er aðeins dropi i hafið. Saklausir menn eru sagðir ákærðir í fréttum RÚV. Það er bláköld lygi.
3. Byrlunarmálið verður til 3. maí 2021 þegar Páli Steingrímssyni skipstjóra hjá Samherja er byrlað, síma hans stolið og gögn tekin ófrjálsri hendi að undirlagi RÚV með tilstyrk Stundarinnar og Kjarnans, sem saman mynda RSK-miðla. Fjórir blaðamenn bíða ákæru vegna aðildar að málinu. [...]
RÚV-málin þrjú sýna þróun. Gögn eru fyrst fölsuð, síðan er ónýt heimild gerð trúverðug og loks taka starfsmenn RÚV lögin í sínar hendur og eiga aðild að alvarlegum glæp, byrlun og stuldi.
Auglýsingin sem stjórnarliðar fárast yfir er heiðarlegri en margra ára fréttaherferð RÚV. Almenningur veit að auglýsingin er unnin af hagsmunaaðilum. Almenningur vissi ekki að fréttaherferð RÚV var byggð á fölskum gögnum og fölskum vitnum annars vegar og hins vegar afbrotum og glæpum siðlausra fréttamanna.
Þegar upplýsingaóreiða RÚV stóð sem hæst vantaði ekki að þingmenn vinstriflokkanna tóku upp á alþingi boðskapinn í óheiðarlegum fréttaflutningi ríkisfjölmiðilsins. Enginn þingmaður, hvorki núverandi né fyrrverandi, hafa beðist afsökunar að leggja trúnað á ríkisreknu lygafabrikkuna.
Ríkisstjórnarflokkarnir eru að hluta til mannaðir fólki sem í fjölmiðlum, gjarnan samstarfsmiðlum RÚV, seint og snemma klöppuðu sama steininn og áróðursvélin á Efstaleiti. Nægir þar að nefna þingmennina Sigmar Guðmundsson, Sigmund E. Rúnarsson og Jóhann Pál Jóhannsson, sem einnig er ráðherra - að mestu í felum undanfarið. Í starfsliði stjórnarflokkanna eru kónar af sama sauðahúsi; Þórður Snær Júlíusson og Arnar Þór Ingólfsson eru á mála hjá Samfylkingu að stunda undirróður og upplýsingaóreiðu. Báðir voru sakborningar í byrlunar- og símamálinu.
Í leiksýningu ríkisstjórnar Kristrúnar til kynningar á tvöföldun veiðigjalda er nafn Samherja aldrei nefnt á nafn. Hver ætli sé skýringin? Jú, vitanlega, tíminn hefur leitt i ljós að herferðin, sem stóð yfir í meira en áratug af hálfu RÚV og meðhlaupara, var meira og minna rakalaus þvættingur í bland við lygar og lögbrot. RÚV-liðar innan og utan ríkisstjórnar þora ekki að tefla fram nafni Samherja, sem til skamms tíma var miðlægt í áróðursstríðinu. Nafnið eitt vekur upp tvöfalda skömm. Í fyrsta lagi að lygafréttir voru seldar sem sannleikur. Í öðru lagi að upp komst að RÚV er ekki fjölmiðill heldur aðgerðamiðstöð vinstrimanna að telja fólki trú um að hvítt sé svart.
Á bakvið yfirstandandi atlögu, tvöföldun veiðigjalda, er hvorki hagfræði né réttlæti heldur hefndarþorsti. Misheppnuð herför í rúman áratug skal verða að sigri með lagasetningu á alþingi. Þjóðarhagur er aukaatriði, hefndin í öndvegi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 27. apríl 2025
Blaðamenn þegja í skömm
Hjálmar Jónsson fyrrum framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands, BÍ, skrifar grein á Vísi um stöðu mála hjá félaginu:
Tugmilljóna lögfræðikostnaður félagsins á síðasta ári er auðvitað algerlega út úr kortinu og jafngildir áratuga lögfræðikostnaði félagsins á árum áður. Hver tekur lögfræðing, sem tekur 35 þúsund krónur á tímann, með sér á samningafundi?! Ég þekki þess engin önnur dæmi.
Óráðsían er algjör. Og til þess að standa undir henni hafa réttindi félagsmanna verið skert stórlega og iðgjöld hækkuð.
Hjálmar þjónustaði BÍ um árabil, fyrst sem formaður en síðar framkvæmdastjóri. Sigríður Dögg formaður rak Hjálmar eftir að hún varð uppvís að skattsvikum og varð að hætta sem fréttamaður á RÚV. Tilfallandi rakti þá sögu.
Enginn blaðamaður tekur Vísis-grein Hjálmars til athugunar, hvorki í frétt né skoðanagrein. Blaðamenn vita að fyrrum formaður þeirra og framkvæmdastjóri fer með rétt mál.
Undir forystu Sigríðar Daggar er stéttafélag blaðamanna ekki svipur hjá sjón, bæði fjárhagslega og faglega.
Fyrir ári efndi Sigríður Dögg til auglýsingaherferðar í þágu blaðamennsku. Eitt orð, heiðarleiki, var aldrei notað í herferðinni. Skattsvik eru ekki heiðarleg. Ekki heldur er heiðarlegt að verja siðlausa blaðamenn, sem eiga aðkomu að byrlun og gagnastuldi.
Í málsvörn fyrir siðlausu blaðamennina í byrlunar- og símamálinu laug Sigríður Dögg ásökunum upp á lögregluna, eins rekið er í tilfallandi bloggi.
Blaðmenn þegja í skömm þegar málefni formanns Blaðamannafélags Íslands ber á góma.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)