Þriðjudagur, 30. mars 2021
Brexit nýtist Bretum, ESB nýtist ekki Evrópu
Af stórþjóðum Vestur-Evrópu koma Bretar best undan Kínaveirunni. Meginlandsþjóðirnar eru fastar í fádæma klúðri Evrópusambandsins að nota farsóttina til að aukinnar miðstýringar.
Þrátt fyrir að faraldurinn sýni svart á hvítu að staðbundið yfirvald nær betri tökum á farsóttinni en miðstýrt yfirþjóðlegt vald reynir embættismannaveldið í Brussel sitt ítrasta að hirða leifarnar af fullveldi aðildarríkja sambandsins.
Öllum er þetta ljóst - nema kannski fáeinum ESB-þingmönnum á alþingi Íslendinga.
![]() |
Bretar frelsinu fegnir og ferðast innanlands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 30. mars 2021
Einstaklingsfrelsi og lýðræði í mótsögn
Ofur-einstaklingshyggja grefur undan lýðræðinu. Getur það verið? Jú, líklega, segir blaðamaðurinn Melanie Phillips í breskum umræðuþætti með yfirskriftinni ,,Boðar vaxandi einstaklingshyggja endalok lýðræðis?"
Lýðræðið sem við búum við, fulltrúalýðræði, gerir ráð fyrir að við eigum sameiginlega menningu og stofnanir sem eru umgjörð um samfélagið. Ofur-einstaklingshyggja, á hinn bóginn, á ekkert sameiginlegt með öðrum. Hún er sjálfri sér nóg og blind á samfélagið.
Umræðan hér heima gefur til kynna endurskoðun á einstaklingsfrelsi. Í nýlegu viðtali talar Hannes Hólmsteinn Gissurarson fyrir ,,frjálslyndri íhaldsstefnu". Hér áður var fremur talað fyrir ,,frjálshyggju" - sem þýddi oftast óhefluð einstaklingshyggja.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 29. mars 2021
Mannlíf og RÚV til varnar Róbert Wessman
,,Ég taldi fulla ástæðu til þess að setja fótinn niður og tjáði Róbert ítrekað, að ég myndi ekki beita mér fyrir því að koma höggi á umrædda aðila í fjölmiðlum og vega beinlínis að æru og mannorði þeirra, eins og hann vildi. Ég var um tíma útgefandi Mannlífs, sem Róbert fjármagnaði..." segir Halldór Kristmannsson sem til skamms tíma var náinn samstarfsmaður Róbert Wessman.
Mannlíf kynnir sig sem ,,beittur og lifandi fjölmiðill" er ekki bitlaust í vörn sinni fyrir Róbert. Útgáfan kynnir til sögunnar Láru Ómarsdóttur, gamalkunnan RÚV-ara, sem ber í bætifláka fyrir launagreiðanda sinn þessa stundina.
Þóra Arnórsdóttir, samstarfsmaður Láru á RÚV, skrifar frétt á Efstaleitis-miðilinn hliðholla Róbert.
Auðmenn kaupa sér almannatengla úr röðum blaða- og fréttamanna og fá í kaupbæti tengslanetið. Og hvað gera blaðmenn í löglega siðleysinu? Jú, þeir veita hverjir öðrum verðlaun fyrir vel unnin störf.
![]() |
Morðhótanir og líkamsárásir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 29. mars 2021
Samfélagslokanir og upplýsingaóreiða
Þjóðverjar ganga ekki í takt í samfélagslokunum vegna farsóttar. Landsmóðirin Merkel er í öngum sínum. Er það vegna upplýsingaóreiðu sem Þjóðverjar láta af þeim sið að hlýða miðstýrðu ríkisvaldi?
Nei, ekki er skortur á sönnum upplýsingum um Kínaveiruna og afbrigði hennar. X prósent veikist og y prósentum verður veiran að fjörtjóni. Hlutföllin eru þekkt, þótt prósentu skeiki til eða frá eftir hvaða þýði er skoðað.
Aftur er annað mál hvaða ályktanir eru dregnar af upplýsingunum. Sumir segja nauðsynlegt að hefta útbreiðslu veirunnar með samfélagslokunum á meðan aðrir telja afleiðingar lokana of dýru verði keyptar.
Hér á Ísland er almenn samstaða um hóflegar lokanir og upprætingu smita með einangrun og sóttkví. Við höfum sömu upplýsingar og Þjóðverjar en drögum einsleitnari ályktanir af þeim en þýskir.
Hugtakið ,,upplýsingaóreiða" er einatt notað til að berja á fólki sem hugsar öðruvísi en yfirvöld vilja. Það er ekki falleg iðja.
![]() |
Merkel hvetur öll lönd Þýskalands til að skella í lás |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 28. mars 2021
Jesú og kraftaverkahlýnun
Koltvísýringur, CO2, var stöðugur í andrúmsloftinu frá fæðingu Jesú og telst hafa verið undir 300 ppm. Með iðnvæðingu á 19. öld eykst CO2 í lofthjúpnum og mælist nú rúmlega 400 ppm.
Kenning þeirra sem sannfærðir eru að hærra hlutfall koltvísýrings hækki lofthita jarðar gefur sér að aðrir þættir skipti litlu eða engu máli. Það stenst ekki.
Tvö þekkt hlýskeið voru á jörðinni frá fæðingu frelsarans. Rómverska hlýskeiðið sem varir keisaratíma Rómar, um 500 ár, og miðaldahlýskeiðið frá um 900 til 1300. Þetta eru þekktar vísindalegar staðreyndir. Á tímabili hlýskeiðanna var hlutfall CO2 í andrúmslofti stöðugt, undir 300 ppm eins og áður sagði.
Litla ísöld tók við af miðaldahlýskeiðinu og varði fram undir 1900. Sama sagan, CO2 stöðugt. Eftir litlu ísöld hefur hiti hækkað um eina gráðu á Celcíus. Ekki beinlínis hamfarahlýnun.
Eigum við að telja rómverska- og miðaldahlýskeiðið til kraftaverka? Er ekki nær að taka orð vísindamannsins Jörgen Steffenson trúanleg og samþykkja að náttúrulegar sveiflur eru á hitastigi jarðar, þar sem CO2, koltvísýringur, skiptir litlu sem engu máli?
![]() |
Losun mun aukast óháð aðgerðum Vesturlanda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 27. mars 2021
Helst í fréttum: hraunað yfir einn, annar settur í hakkavél
Hvers vegna er það frétt þegar einn atyrðir annan? Er það að eyru fýsi illt að heyra? Skemmtigildi?
Sérhver einstaklingur getur stofnað reikning á félagsmiðli og látið vaða á súðum. En þeir sem kalla sig fjölmiðla þurfa ekki endilega að taka þátt í ósómanum.
Má ekki lyfta umræðunni á örlítið hærra plan? spurði Nóbelsskáldið forðum.
![]() |
Hannes næstur í hakkavél Bassa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 27. mars 2021
Helgi Seljan er virkur í athugasemdum
Orðalagið ,,virkur í athugasemdum" er haft um þá sem fara geyst í umfjöllun um menn og málefni án innistæðu fyrir gífuryrðum. Helgi Seljan fréttamaður RÚV hefur verið virkur í athugasemdum um málefni Samherja í háa herrans tíð.
Helgi Seljan gerði bandalag við starfsmann Seðlabanka Íslands að koma höggi á Samherja með ásökun um brot á gjaldeyrislögum. Ásökunin var vegin og léttvæg fundin af dómstólum.
Áráttukennd hegðun Helga ætti að hringja viðvörunarbjöllum hjá yfirmönnum hans á RÚV. En það er ekki allt með felldu á Efstaleiti. Ekki er þar gerður greinarmunur á því að vera virkur í athugasemdum og segja fréttir.
![]() |
Ummæli Helga brot á siðareglum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 26. mars 2021
ESB-hörmungin og Ísland
,,Ísrael er það land sem stendur fremst hvað bólusetningu gegn Covid-19 varðar. Sameinuðu arabísku furstadæmin standa einnig mjög vel í þeim efnum sem og Chile, Bretland og Bandaríkin," segir í viðtengdri frétt.
Öll þessi ríki eru utan Evrópusambandsins. Að nafninu til stendur Ísland einnig utan ESB.
En aðeins að nafninu til. Sakir EES-samningsins og fádæma undirlægjuháttar stjórnsýslunnar er Ísland fast í kviksyndi ESB-hörmungarinnar.
![]() |
Helmingur ísraelsku þjóðarinnar fullbólusettur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Fimmtudagur, 25. mars 2021
EES gerir Ísland ósjálfbjarga
Evrópusambandið hikar ekki við að brjóta EES-samninginn þegar Brussel-valdinu býður svo við að horfa. Núna er Ísland sett á bannlista vegna þess að ESB er í hallæri með bóluefni. Fyrir ári braut sambandið á okkur og EES-samningnum með því að banna útflutning til Íslands á búnaði í upphafi Kínaveirunnar s.s. hlífðarfatnaði.
Verst af öllu er þó að EES-samningurinn gerir íslensku stjórnsýsluna ósjálfbjarga. Í ráðuneytunum starfa meira og minna gallharðir ESB-sinnar sem sjá Evrópulausn á sérhverju vandamáli sem upp kemur.
Vitanlega átti Ísland að sækja sér bóluefni beint til framleiðenda en ekki stökkva á ESB-vagninn. Það voru skelfileg mistök sem má rekja til ósjálfbjarga stjórnsýslu. Í Brussel er ekki vinum að mæta. Það vita allir nema íslenskir embættismenn sem þegar eru gengnir ESB á hönd.
![]() |
Gengur í berhögg við EES-samninginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 24. mars 2021
Skörp viðbrögð
Í morgun var beðið um að tekið yrði í bremsurnar.
Klukka þrjú eftir hádegi er tilkynnt að skellt verði í lás frá og með miðnætti. Tilefnið var þó annað en rætt var um í morgun.
Lærdómur: orð bera ábyrgð.
![]() |
Tíu manna fjöldatakmörkun frá miðnætti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)