Sunnudagur, 26. september 2021
Íhaldsmenn, loftslag og dauði
Íhaldsmenn sigruðu í þingkosningunum. Hvorki Framsókn né Sjálfstæðisflokkur eru hreinræktaðir íhaldsflokkar en fara hvað næst því á Fróni, ásamt Miðflokknum. Þá er rétt að þeir átti sig á að skoðanabræður þeirra í Bretlandi, Íhaldsflokkurinn, eru að glata trausti og trúverðugleika af einni einfaldri ástæðu.
Loftslagsmálum.
Boris Johnson formaður Íhaldsflokksins ákvað að taka loftslagsöfgastefnu Grétu Thunberg upp á sína arma og verða kaþólskari en páfinn. ,,Græna hagkerfið" varð stefnan án þess að ígrunda afleiðingarnar.
Bretar eru að brjálast, íhaldsmenn sérstaklega. Sumir reyna að kenna Pútín um, en vandinn er heimatilbúinn frá a til ö.
Vindorka fæst ekki án golu, sólarrafmang er háð þeirri gulu. Allt var þetta fyrirséð.
Á Íslandi sjáum við í gegnum bullið. Að vísu ekki allir. Einhverjir glópar hrúguðu upp verksmiðju á Hellisheiði til að dæla koltvísýringi ofan í jörðina. Sú verksmiðja dælir hálfsdagsframleiðslu gossins í Fagradal af koltvísýringi ofan í jörðina á einu ári. Dygðadella á þessu skala vekur heilbrigðum íhaldsmönnum hrylling.
Það er engin loftslagsvá. Spyrjið vísindamenn eins og William Happer eða Richard Lindzen.
Loftslagsvá er tilbúningur frjálslyndra og vinstrimanna. Íhaldsmenn ættu ekki að trúa bábiljunni um manngert veðurfar og dauðann á næstu grösum. Íhaldsmenn kunna söguna; það var hlýrra á norðurhveli jarðar fyrir þúsund árum en það er í dag. Náttúran stjórnar veðurfari og hefur alltaf gert.
Íhaldsmenn eru raunsæir og trúa á lífið. Látum vinstrimenn um dauðaþrá og heimatilbúnar martraðir.
![]() |
Nýir þingflokkar koma saman á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 26. september 2021
Lélegustu tilsvörin og tillögurnar - og besta slagorðið
Ég átti einu sinni 600 milljónir en bið þjóðina að gleyma því.
Gunnar Smári
Stofnum Ofbeldissveit með Stígamótum til að taka hús á fólki um miðja nótt.
Sósíalistaflokkurinn
Göngum í ESB með sósíalistum.
Samfylkingin
Aukum hagvöxt með evru.
Viðreisn
Kaupaukinn er mitt einkamál.
100-milljón-króna-Kristrún
Besta slagorðið:
Er ekki best að kjósa Framsókn?
(Slagorðið gefur sér að kjósendur nenna ekki pólitík og Framsókn er sísti flokkurinn til að rugga þjóðarskútunni.)
![]() |
Hvorki upphaf né endir flokksins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 26. september 2021
Sáttastjórnin lifir
Sáttastjórnin frá 2017 fékk skýrt og ótvírætt umboð þjóðarinnar í gær. Hófsöm stjórnmálöfl fengu umboð til að halda áfram vegferð sem hófst fyrir fjórum árum.
Ríkisstjórnarflokkarnir þrír eru stærstu stjórnmálaflokkar landsins, þeir einu sem fá yfir tíu prósent fylgi.
Á vinstri kanti stjórnmálanna er það helst að frétta að Vinstri grænir eru turninn, eini flokkurinn vinstra megin sem er með tveggja stafa fylgi.
Þau Bjarni, Sigurður Ingi og Katrín skulda kjósendum að græja það smotterí sem er að endurnýja stjórnarsáttmálann frá 2017.
![]() |
Merkilegt að VG sé enn stærsti vinstri flokkurinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 26. september 2021
Frá Valhöll: takk, Gunnar Smári
Gunnar Smári, þú reddaðir okkur. Við rákum enga sérstaka kosningabaráttu, vorum í miðjumoðinu. En mikið svakalega náum við okkur á flug þegar sossa-framboðið þitt fékk hljómgrunn meðal vinstrimanna.
Við létum þau boð út ganga að yfirvofandi væri hætta á að Samfylking, Píratar og þú tækjuð ríkisstjórnarvöldin. Og það svínvirkaði.
Okkur finnst ágætt að starfa með Vinstri grænum. Þú gerir Kötu og félaga að ábyrgum vinstrimönnum meðalhófsins með sósíalistafrösunum þínum.
Endilega haltu áfram að boða byltingu. Það er virkilega frábært að maður með þína fortíð haldi á lofti marxisma.
Tilfallandi kveðja frá Valhöll.
![]() |
Lokatölur á landsvísu: Ríkisstjórnin heldur velli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 26. september 2021
Tunglið og fylgi vinstriflokka II
Eftirfarandi tilfallandi færsla var skrifuð fyrir viku.
Fullt tungl er á mánudag. Þá rísa hæst geðhvörfin sem valda dómgreindarbresti og fær fólk til að gera marga vitleysuna, t.d. að kjósa vinstriflokk.
Í frétt Landsspítala um tengsl sjúkdóma og stöðu tunglsins segir að ýmsir geðsjúkdómar geri vart við sig í fullu tungli. Geðhvörf eru þar á meðal.
Skoðanakannanir teknar þegar hallar að fullu tungli gefa ranga mynd af úrslitum kosninganna á laugardag. Þegar nálgast fullt tungl eru þeir næmu ýmist ofsakátir eða þunglyndir, ekki með sjálfum sér.
Kemur laugardagur knýr raunsæið dyra eftir þokkalegan nætursvefn. Fólk kýs annað tveggja Sjálfstæðisflokk eða Miðflokk. Í það minnsta nógu margir til að landið fari ekki í hundana.
Tunglfræði til bjargar á ögurstundu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 26. september 2021
Hægri bylgja - sósíalisma hafnað
Fyrstu tölur úr öllum kjördæmum gefa til kynna hægribylgju í íslenskum stjórnmálum. Sósíalisma er hafnað.
Ekkert hægt að kvarta.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 25. september 2021
Miðjustjórn er ekki í boði: þrír möguleikar
Upp úr kjörkössum í nótt kemur annað tveggja hægri- eða vinstristjórn. Þriðji möguleikinn er að sitjandi sáttastjórn Katrínar Jakobs haldi velli.
Miðjustjórn er ekki raunhæfur möguleiki.
Vinstristjórn yrði 4-5 flokka og breytti góðæri í hallæri á nokkrum mánuðum. Hægristjórn myndi lækka skatta og starfa í friði. Sáttastjórnina þekkjum við af verkum hennar á kjörtímabilinu.
Skýrir valkostir, þegar öllu er á botninn hvolft.
![]() |
Hvernig verður kosningaveðrið? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 24. september 2021
Mjólka Kolla, svo Sigga
Það gefur vel í aðra hönd að vera þolandi.
![]() |
Segist ekki hafa séð kærurnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 24. september 2021
Meintur sósíalisti, staðfestur kapítalisti, 100% loddari
Það er staðfest að Gunnar Smári foringi sósíalista var kapítalisti. Hann vildi einkavæða heilbrigðiskerfið eins og bankakerfið. Hann fór illa með launþega, m.a. blaðburðabörn.
Kapítalismi Gunnars Smára er staðfestur í bak og fyrir með orðum og gerðum hans sjálfs.
Gunnar Smári var virkur fjárfestir og átti hlutafé upp á hundraði milljóna króna í einkavæddum bönkum, í fjölmiðlum Baugs og víðar. Hann langaði í meira. Svo kom hrunið og gjaldþrota kapítalistinn ginnti til sín auðtrúa vinstriróttæklinga með sósíalísku slagorðanammi.
Eftir kosningar veit enginn hvaða sannfæringu Gunnar Smári fylgir. Spurningin er aðeins hvort sósíalistaforinginn og loddarinn verði á kaupi almennings við að delera sem þingmaður lýðveldisins.
![]() |
Lítill ævisparnaður Gunnars 600 milljónir í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 23. september 2021
Útlendingar á bakvið 25% glæpa á Íslandi
Í nýrri ársskýrslu ríkissaksóknara kemur fram á bls. 15 að útlendingar fremja um 25 prósent glæpa á Íslandi, sé miðað við útgefnar ákærur. Samkvæmt þjóðskrá eru innflytjendur aðeins 15 prósent íbúa landsins.
Hér hefur eitthvað farið úrskeiðis. Við höfum tekið á móti of mörgum útlendingum miðað við getu okkar að siða þá til.
Ef allt væri með felldu ættu útlendingar ekki að standa að baki nema um 15 prósent glæpa. En þeir eru 25 prósent afbrotamanna.
![]() |
Segir að morðið hafi verið hrein og klár aftaka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)