Arion stelur HM handa Baugsfeðgum

Ríkisbankinn Arion er á bakvið yfirboð Stöðvar 2 á HM í handbolta. Jón Ásgeirs Baugsstjóri og faðir hans eiga Stöð 2 og fjölmiðlasamsteypuna 365-miðla. Fjölmiðlasamsteypan er að stórum hluta fjármögnuð með auglýsingum frá Högum sem ríkisbankinn Arion á en leyfir Baugsfeðgum að stjórna.

Arion veðjar á að Baugsfeðgar séu hluti af nýja Íslandi, atvinnulífi þar sem heiðarleiki og gagnsæi er í fyrirrúmi.

Til að Baugsfeðgar fái tækifæri að taka nýjan snúning á íslenskum almenningi er gott að eiga Arion sem bakhjarl. Þegar Arion efnir til ímyndarherferðar í haust verður slagorðið: Nýja Ísland, Baugsfeðgar og Arion.


Spaugstofan óþörf, stjórnin sér um grínið

Spaugstofnan sem dægurgrín að stjórnvöldum er óþarft sjónvarpsefni. Jóhönnustjórnin er svo farsakennd stjórnsýsla að ekkert grín getur toppað það, jafnvel þótt þrautreyndir atvinnumenn eiga í hlut. Í dag er það viðskiptaráðherra og Jóhanna sjálf sem tvímenna í uppistandi sem heitir 'ég sá ekki lögfræðiálitið'.

Í gær var leikrit í boði forsætisráðuneytis um vanhæfismál nefndarmanna í Magma-nefnd og í morgun var boðað framhald.

Umsóknarbrandarinn er sérsgrein utanríkisráðherra sem treður upp í útlöndum og uppsker hlátur erlendra blaðamanna. Stykki Össurar heitir Sitjandi kjáni.

 


mbl.is Engin Spaugstofa í vetur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krepputjórnlist ESB; skattar fyrir sambandsríkið

Evrópusambandið vill tengja framhjá aðildarríkjum og fá beinar skatttekjur til að standa undir sístækkandi veldi sínu. Í Brussel er hefð fyrir kreppustjórnlist þar sem erfiðleikar á einu sviði eru notaðir til að stíga næsta samrunaskref;  krísan um sameiningu þýsku ríkjanna var leyst með því að Þjóðverjar samþykktu að fórna þýska markinu og búa til evrópskan gjaldmiðil.

Hugmyndin um skattstofn handa ESB er sett fram í samhengi við pólitísk markmið, t.d. skatt á fjármagnsflutninga banka og verslun með mengunarkvóta. Skattar sem þjóna yfirlýstum pólitískum markmiðum s.s. að halda bankaauðvaldinu í skefjum og draga úr mengun, eru líklegri til að vera samþykktir sem slíkir en ekki í þeim tilgangi að stíga skref nær sambandsríki.

Andóf stórþjóða á borð við Þýskaland og Bretland mun líklega verða til að samþykkt fyrir sérsköttum handa ESB er ekki á næsta leyti. En eins og heimsveldum sæmir hugsa ráðmenn í Brussel í áratugum. Skattar handa ESB eru komnir á dagskrá.


mbl.is Framkvæmdastjórnin leggur til sérstakan ESB skatt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin er verkfæri Brussel

Evrópusambandið er með tangarhald á íslenskri stjórnsýslu vegna þess að annar ríkisstjórnarflokkanna, Samfylkingin, veðjaði pólitískri framtíð sinni á inngöngu Íslands í sambandið. Stjórnarherrarnir í Brussel vita þetta og telja sig ekki þurfa að hafa áhyggjur af kröfuhörkunni, hvort heldur í markríl-deilunni eða Icesave-málinu.

Samfylkingin beygir sig í duftið fyrir Evrópusambandinu. Líflína flokksins er í höndum Brusselvaldsins. Ef ekkert verður úr aðild Íslands er framtíðarsýn Samfylkingarinnar farin.

Samfylkingin verður okkur dýr áður en yfir lýkur.


mbl.is ESB hótar aðgerðum vegna makríls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland fyrirmynd Sviss

Svisslendingar er hvorki aðilar að EES samningnum né ætla þeir í Evrópusambandið í náinni framtíð. Samkvæmt fréttum vonast dómsmálaráðherra Sviss, sem er vel að merkja andstæðingur aðildar, til þess að Evrópa þróist í átt að svæðisbundnu samstarfi er gæti orðið tortryggnum Svisslendingum hugþekkara en miðstýring frá Brussel.

Svæðisbundin samvinna þjóða sem byggja sameiginlegum hagsmunum og í sumum tilvikum áþekkri sögu og menningu gæti orðið það samstarf sem fórnaði ekki lýðræði fyrir skrifræði.

Ísland er í stöðu til að sýna hvernig hægt væri að þróa slíka samvinnu. Grænlendingar, Færeyingar og Norðmenn eru nágrannar okkar og eiga um margt áþekka hagsmuni. Samvinna við nágrannaþjóðir er nærtækari utanríkispólitík og nyti meiri stuðnings almennings en Brusselleiðangur Samfylkingarinnar.


Ruddi Unnur Sveini frá?

Unnur G. Kristjánsdóttir hefur barist fyrir því með oddi og egg að Magma fái að kaupa HS Orku og hún er fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni um erlenda fjárfestingu. Það er skyldleiki við Unni sem verður Sveini að falli og eru þau tæpast nátengd. Í þessu ljósi er brýnt að upplýst verði hver það var sem kom með ábendinguna um mögulegt vanhæfi Sveins. Í fréttatilkynningu forsætisráðuneytisins segir

Eftir að forsætisráðuneytið birti tilkynningu 3. ágúst sl. um skipun nefndar til að meta lögmæti kaupa fyrirtækisins Magma Energy Sweden AB á eignarhlutum í HS Orku ehf. og starfsumhverfi orkugeirans hér á landi bárust ráðuneytinu ábendingar um hugsanlegt vanhæfi eins nefndarmanns, þ.e. Sveins Margeirssonar.

Stjórnsýslan bregst ekki við ábendingum si svona. Stjórnsýslan metur ábendinguna út frá því hver kemur með hana og því er brýnt að upplýst verði hver tortryggði Svein og hvers vegna?


mbl.is Birtir minnisblað um Svein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fagur fiskur í sjó og sögufölsun aðildarsinna

Aðildarsinnar vilja telja okkur trú um að sameiginleg fiskveiðistefna Evrópusambandsins hafi orðið til vegna þess að fiskistofnar eiga það til að flakka á milli lögsögu landa. Vilhjálmur Þorsteinsson býður síðast upp á þessa sögufölsun. Rétt er að sameiginleg fiskveiðistefna var búin til í Brussel 1970 rétt áður en þjóðir ríkar af fiskveiðiauðlindum sótt um aðild.

Þjóðirnar sem um ræðir eru Bretland, Írland, Danmörk og Noregur. Í Evrópuumræðunni er viðurkennd staðreynd að meginlandsríkin sem voru fyrir í ESB bjuggu til sjávarútvegsstefnuna til að skapa sér samningsstöðu gagnvart umsóknarríkjunum.

Sjávarútvegsstefnan var nánast endurrit af landbúnaðarstefnunni og sjávarútvegur felldur undir landbúnaðardeild framkvæmdastjórnarinnar. Ætli Vilhjálmur og aðildarsinnar reyni að selja okkur þá skýringu á landbúnaðarstefnunni að hún hafi verið nauðsynlegt vegna þess að mjólkurkýr vafra stundum frá heimahögum?

Hér er samantekt um sjávarútvegsstefnuna.


Hreyfingin og róttækari armur Vg

Fréttir um að Þór Saari og Hreyfingin beri víurnar í þingmenn Vg, Lilju Mósesdóttur og Ögmund Jónasson, eru skiljanlegar í ljósi þróunar róttækra stjórnmála síðustu missera og viðskilnað Vg við arfleifð sína. Forysta Vg liggur undir ámæli fyrir eftirgjöf gagnvart Samfylkingu í veigamiklum atriðum, Evrópumálum og sölunni á HS Orku til Magma.

Fólk á vegum Hreyfingarinnar er drifkrafturinn í mótmælum gegn sölunni til Magma. Ráðherrar Vg sváfu á verðinum þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir að vekja þá af blundi.

Stjórnmálasamtök eins og Vg eru á hættusvæði þegar grasrótin verður fyrir vonbrigðum. Ef Lilja og Ögmundur hugsa sér til hreyfings stendur Vg eftir sem trénaður flokkur er veitir stórafslátt af prinsippum til að halda í völdin.


Lævís bæjarstjóri

Árni Sigfússon bæjarstjóri í Reykjanesbæ skrifar grein í Morgunblaðið í dag til að verja framsal orkuauðlinda til skúffufyrirtækis. Bæjarstjórinn veit sem er að Magma-málið er subbuskapur frá upphafi til enda þar sem útrásarafgangar voru settir í græðgispottrétt til að hulduhluthafar mættu græða á kostnað almennings.

Þess vegna reynir Árni að selja lesendum Magmamálið sem glæst einkaframtak á borð við verkfræðistofur sem starfað hafa hér á landi í áratugi. Rökfimi af þessu tagi er stundum kölluð heilahopp. Í leiðinni skýtur hann á Björk Guðmundsdóttur söngkonu fyrir að borga ekki skatta hér á landi og það heitir níð.

Til að toppa undirferlið talar bæjarstjórinn um nýtingarrétt til Magma. Hann nefnir ekki að nýtingarrétturinn sé til 65 ára - og er það ígildi eignaréttar.

Málsvörn bæjarstjórans fyrir Magma-málið staðfestir sukkið suður með sjó.


Útrásin, ESB og léttúðin

Útrásin var fjármálapólitísk léttúð þar sem ,,markaðurinn“ átti að sjá um að jafnvægi væri á efnahagskerfinu með því að leiðrétta sjálfan sig. ,,Markaðurinn“ var ekki til þegar nánar var athugað, aðeins þjófar í auðmannagæru, en þá var orðið of seint að snúa af hrunvegferðinni.

Umsókn Samfylkingarinnar að Evrópusambandinu er utanríkispólitísk léttúð þar sem innganga á að vera allsherjarredding stjórnmála og efnahagslífs.

Allsherjarreddingar eru ekki til nema í ævintýrum og eftir útrásarloftkastala er tímabært að hætta að láta vaða á súðum. Aðild að Evrópusambandinu er ekki til nokkurra missera eða fáeinna ára heldur áratuga. 

Léttúð gagnvart alvörumálum leiðir til ófarnaðar.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband