Sunnudagur, 8. ágúst 2010
Exista á að setja í þrot
Exista er eitt af útrásarfélögunum, eignarhaldsfélag til að fífla fjárfesta þ.m.t. lífeyrissjóði. Samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins liggur fyrir tillaga að nauðasamningi sem gerir ráð fyrir að Exista haldi áfram lífdögum sínum þótt helstu eigendur, Bakkavararbræður, séu horfnir á braut.
Exista sem eignarhaldsfélag er 2007 dæmi sem á að setja strik yfir.
Réttast er að brjóta Exista upp og selja bútana.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 8. ágúst 2010
Veiðileyfi auðmanna á almannahag
Á útrásartíma létu auðmenn greipar sópa og stálu beint og óbeint frá almenningi með því að skrúfa hlutabréf upp og niður eftir hentugleikum; misþyrma krónunni með stöðutöku gegn henni og braska með eigur lífeyrissjóða. Auðmennirnir eru með nafn og kennitölu. Einni þeirra er Pálmi Haraldsson.
Samkvæmt Eyjunni segir ónafngreindur lögmaður Pálma að slitastjórn Glitnis sé í ,,veiðiferð" með því að krefja Pálma um upplýsingar.
Auðmennirnir vilja auðvitað búa áfram við fyrirkomulagið frá útrásinni þar sem þeir voru ósnertanlegir og máttu stela að vild án þess að refislöggjöfin kæmi nærri.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 8. ágúst 2010
Lýðræði er kallfæri við valdið
Evrópusambandið er heildarsamtök ríkja sem stefna að samruna. Að stofni til er það efnahagsbandalag en hefur æ fleiri einkenni sambandsríkis. Höfuðborgin er Brussel og þangað flyst sífellt meira af völdum sem áður voru hjá þjóðríkjunum.
Jónas Kristjánsson er hallur undir aðild og telur helsta kostinn við Evrópusambandið vera stjórnsýsluna. Vestrænar hugmyndir um stjórnsýslu ganga flestar út á ábyrgð valdhafa gagnvart almenningi. Til að hægt sé að koma við þessari ábyrgð þurfa stjórnvöld og almenningur að eiga sameiginlegan vettvang þar sem umræða fer fram um valkosti og málum er ráðið. Jónas á aðild að þessum vettvangi hér heima með blogginu sínu.
Ef svo illa færi að Ísland yrði aðildarríki myndu völd flytjast til Brussel án þess að aðrir en örfáir íslenskir embættismenn fengju aðild að umræðunni sem ákveður niðurstöðu mála. Eða hver ætli læsi jonas.is í Brussel?
Laugardagur, 7. ágúst 2010
Ríkisbankar viðhalda ónýtum rekstri
Ríkisbankarnir þrír, Landsbanki, Arion og íslandsbanki, starfa í siðferðilegu tómarúmi þar sem enginn ber ábyrgð, og viðalda ónýtum atvinnurekstri og fresta endurreisn efnahagslífsins. Fjöldamörg fyrirtæki eru rekin af bönkum í stað þess að þau fari í þrot.
Friðrik Friðriksson rekur í bloggi sínu dæmi um hvernig ríkisbankarekstur smásöluverslana fer með byggingavörumarkaðinn.
Ríkisbankarnir starfa í skjóli ríkisstjórnar Jóhönnu Sig. sem ber ábyrgð á stefnuleysi þar sem hrunvaldar meðal bankastarfsmanna efna til nýrrar spillingar með fyrirtæki sem komin eru í eigu bankanna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Laugardagur, 7. ágúst 2010
Icesave og Magma; samsæri gegn þjóðarhag
Ríkisstjórn sem yrði uppvís að selja erlendum fjárglæframönnum auðlindir þjóðarinnar til að borga óreiðuskuldir einkabanka og gera það í samvinnu við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og meðhlaupurum útrásar - sú ríkisstjórn er þjóðinni hættuleg og þarf strax að víkja.
Ríkisstjórn sem tæki þátt í að skipuleggja ráðstefnu þar sem rætt er um efnahagslega framtíð þjóðarinnar undir þeim formerkjum að Icesave-vandinn sé tengdur sölu á orkuauðlindum til Magma er dómgreindarlaust skrípafyrirbæri. Þegar útrásarafgangar og meðhlauparar auðmanna eru settir við háborðið með ráðherrum lýðveldisins stappar dómgreindarleysið nærri brjálsemi.
Svipan birti í morgun dagskrá fundar sem á að hafa verið haldin í New York 8. apríl í vor. Ráðstefnan hlýtur að vera uppspuni því hverjum dytti í hug að Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra léti sjá í á pallborði með Árna Magnússyni, yfirhönnuði Magma-málsins og Ásgeiri Margeirssyni forstjóra Magma á Íslandi og meðhlaupara Jóns Ásgeirs og Hannesar Smára. Og ekki myndi ríkisstjórnin samþykkja að aðalsamningamaður hennar í Icesave-viðræðunum, Lee C. Buchheit, tæki þátt í slíkri uppákomu.
Utanríkisráðuneyti Össurar sá um að skrá á ráðstefnuna og þátttakendur voru beðnir að greiða 90 dollara þátttökugjald, - helst með kreditkorti.
Eins og fyrr segir hlýtur ráðstefnan að vera tilbúningur og pdf-skjalið með dagskrá fundarins að vera falsað. En það renna á mann tvær grímur þegar í ljós kemur að skjalið er vistað á heimasíðu Víðskiptaráðs Íslands.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 7. ágúst 2010
Jón Gnarr og stjórnmálastéttin
Borgarstjóri var í sætu viðtali í sjónvarpsfréttum RÚV í gær um hirðuleysi leiksvæða. Einfeldningsleg svör um að nú ætti að funda en ekki æða af stað af vangá virkuðu trúverðug vegna ásýndar einlægni. Sumar gerðir stjórnmálamanna ná langt á yfirvarpi einlægni. En Jón Gnarr er ekki stjórnmálamaður heldur uppistandari, brandarakall.
Grínið sem verður sitjandi borgarstjóra dýrkeyptast er á kostnað stjórnmálamanna. Nái Jón tökum á því að vera stjórnmálamaður kemur hann við kvikuna á stjórnmálastéttinni. Sérhver stjórnmálamaður óttast að almenningur sannfærist um að hvaða fífl sem er getur orðið pólitíkus.
Jón Gnarr gæti staðfest hugboð almennings og stjórnmálamenn eru meðvitaðir um það, líka þeir sem leiddu brandarakarlinn til valda.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 6. ágúst 2010
Ríkisbankar og ósamþykktir kröfuhafar
Árni Tómasson formaður skilanefndar Glitnis útskýrði í sjónvarpsfréttum RÚV í kvöld hvernig eignarhaldi Íslandsbanka er háttað. Kröfuhafar eiga 95 prósent hlut í Íslandsbanka sem er endurreistur Glitnir. En það liggur ekki fyrir hverjir kröfuhafar eru vegna þess að enn er ekki búið að meta kröfurnar til samþykktar og synjunar. Á meðan fer skilanefnd með eignarhaldið á Íslandsbanka.
Að sögn Árna getur tekið mörg ár að leysa úr réttmæti krafna í þrotabúið. Að líkum er eignarhaldi Arion banka á sömu forsendum.
Í reynd eiga skilanefndir bankanna og þær standa reikningsskil gerða sinna gagnvart ríkisvaldinu. Umræddir bankar eru því ríkisbankar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 6. ágúst 2010
Erfiður dagur aðildarsinnum
Dagurinn var aðildarsinnum á Íslandi ekki happadrjúgur. Í gær gerðu þeir sér vonir um að RÚV hafi flutt fréttir af breyttri afstöðu LÍÚ til aðildarviðræðna; í dag var sýnt fram á að RÚV stundaði skáldskap en ekki fréttamennsku. Í morgun skrifaði Ögmundur Jónasson grein í Morgunblaðið sem tekur af allan vafa að hann fordæmir aðlögunarferlið að Evrópusambandinu.
Ögmundur var einn þeirra þingmanna Vg sem 16. júlí 2009 samþykktu að send skyldi inn umsókn um aðild að Evrópusambandinu og gerði það væntanlega til að halda stjórninni á lífi. Eftir Morgunblaðsgrein Ögmundar þarf enginn að velkjast í vafa um afstöðu hans.
Þegar tillaga til þingsályktunar um að Ísland dragi umsóknina tilbaka kemur til afgreiðslu á alþingi má bóka stuðning Ögmundar.
Híróshímadagurinn er í dag.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 6. ágúst 2010
RÚV biðjist afsökunar
Fréttastofa RÚV á að flytja fréttir en ekki hanna atburðarás í fjölmiðlum til að lyfta einum málstað umfram annan í þjóðfélagsumræðunni. Síðustu daga er fréttastofan ber að óvönduðum vinnubrögðum sem hafa þann eina tilgang að bæta málefnastöðu aðildarsinna á Íslandi.
Hér er ekkert gamanmál á ferðinni. RúV og fréttastofan verða að gera hreint fyrir sínum dyrum og biðjast afsökunar á ítrekuðum tilraunum til að afvegaleiða umræðuna um aðild Íslands að Evrópusambandinu með því að gera því skóna að LÍÚ sé hlynnt aðildarviðræðum.
Boltinn er hjá þér, RÚV.
![]() |
Formaður LÍÚ: Ummæli slitin úr samhengi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 6. ágúst 2010
Kjaraumræða er sérstakur heimur
Launaleiðrétting er annað nafn á kröfu um hærri laun. Aðgerðir slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna eru ótrúverðugar vegna þess að þráfaldlega hafa þeir neitað að upplýsa um launakröfur sínar. Starfsstéttir í verkfallsátökum geta ekki boðið upp á feluleik af þessu tagi nema rýra trúverðugleika sinn stórlega.
Eflaust eru slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn ekki ofhaldnir í launum. Aðrar stéttir eru það ekki heldur. Í gildi er óopinber þjóðarsátt um að á meðan við vinnum okkur úr eftirmálum hrunsins eigi ekki að stofna til illdeilna á vinnumarkaði.
Til að ljúka á jákvæðum nótum: Þökk sé slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum að taka sér ekki talsmann lækna sér til fyrirmyndar og segja ráðherra málaflokksins sjúkdómsvald.
![]() |
Biðja um launaleiðréttingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)