Svartir dagar hlutabréfa framundan

Dýfan sem hlutabréfamarkaðir tóku í síðustu viku er smjörþefurinn af því sem koma skal. Í evrópskum bönkum ekki síður en bandarískum er óhemja af verðlausum pappírum, enginn veit nafnvirðið sem þarf að afskrifa, en fjárhæðirnar eru stjarnfræðilegar. Pappírarnir eru að stofni til bandarísk húsnæðislán sem veitt voru til fólks sem undir venjulegum kringumstæðum væri ekki treyst fyrir peningum.

Hækkandi vextir og lækkun fasteignaverðs keyrði 180 þúsund vonlausa bandaríska skuldara í gjaldþrot í júlímánuði einum. Gjaldþrotin hrundu af stað atburðarrás í síðustu viku þar sem verðbréfamarkaðir féllu í austri og vestri. Aðeins með inngripi seðlabanka í Asíu, Bandaríkjunum og Evrópu tókst að stemma stigu við flóttanum frá verðbréfum yfir í reiðufé. Seðlabankar dældu milljörðum ofan á milljarða til að tryggja nægt framboð af reiðufé. Um sinn tókst að lægja öldurnar en ekki varir það lengi.

Allt að tvær milljónir Bandaríkjamanna standa frammi fyrir þeim örlögum og lýsa sig gjaldþrota. Peningarnir sem þar eru í húfi eru af þeirri stærðargráðu að aðgerðir seðlabanka mega sín lítils.

Ónýtum bandarískum lánum hefur undanfarin ár verð pakkað og endurpakkað og þau seld til fjármálastofnana víða um heim, einkum til Evrópu og Asíu. Endursalan á ónýtum lánum hófst upp úr 2003 þegar bandarískir bankar og sjóðir hættu að treysta á greiðslugetu lántakenda. Í Evrópu og Asíu var til fjármagn í leit að ávöxtun og það fór vestur í trausti þess að greiðsla kæmi til baka. Það sem skorti á trúverðugleika pappírana bættu bankamenn sér upp með þeirri trú að bandarísk stjórnvöld myndu grípa í taumana ef illa færi, líkt og þau gerðu í byrjun tíunda áratugsins þegar sparisjóðakreppan reið yfir og í lok áratugsins þegar vogunarsjóðurinn LTCM varð gjaldþrota.

Nú er hins vegar úr vöndu að ráða. Ef bandarískir fasteignaeigendur fá bjargráð frá ríkinu er það ávísun á frekari óráðssíu ódýrra lána til fólks sem hefur ekki efni á þeim. Fái bandarískar fjármálastofnanir opinbera fyrirgreiðslu mun þær evrópsku krefjast hins sama. Og hæpið er að bandaríkjaþing samþykki stórfellda efnahagsaðstoð til útlendra banka sem hafa látið stjórnast af taumlausri bjartsýni.

Alþjóðlegi fjármálamarkaðurinn hagar sér þessi misserin eins og alkahóliseraður unglingur; hann heldur misnotkuninni áfram á meðan einhver vill taka við honum. Þegar allar dyr eru lokaðar er von til þess að hann líti í eigin barm og geri sér grein fyrir stöðunni. Dyrum verður skellt í lás. Og það verður sárt.

Hvað á íslenski meðaljóninn að gera? Losa sig við verðbréf og geyma peningana sína á bankareikningi.


Baugsútgáfan í Danmörku með fasteignablað

Nyhedsavisen sem gefið er út af Baugi í Danmörku er farinn af stað með sérstakt fasteignablað í samstarfi við samtök fasteignasala þar í landi. Markmiðið er að ná niður verði á fasteignaauglýsingum.

Blaðið verður 400 síður og dreift í 100 þús. eintökum, samkvæmt frétt í Börsen.


Beckett á hólnum í kvöld

Josh Beckett kastar fyrir Red Sox í kvöld þegar þeir mæta Chichago White Sox á útivell. Beckett gæti náð í sextánda sigur sinn - fyrstur til þess á leiktíðinni.

 En sóknin þarf þá að standa sig betur en í gær. Aðeins eitt stig gegn Tampa Bay er dapurt svo ekki sé meira sagt og skilaði tapi gegn lélegasta liði deildarinnar, eins og Jón Skúli benti á um daginn. Tampa Bay fékk tveggja hlaupa slemmu og það dugði til gegn nýliðanum Matsuzaka, sem hefur átt gott tímabil.


Pappakjöt vinsælla en lambið

Tíðindi sumarsins eru að alifuglakjöt seljist betur en afurðin sem gastrónómískt ber höfuð og herðar yfir allt sem mannskepnan getur lagt sér til munns; íslenskt lambakjöt. Fréttirnar eru því furðulegri að fuglaketið sem nú selst eins og heitar lummur er hamflettar kjúklingabringur sem án náttúrlegs safa bragðast eins og þurr pappi.

Próteinkubbarnir sem landsmenn hafa slengt á grillið í gríð og erg í sumar eru svo náttúrulaus fæða að vínið sem þeim er skolað niður með verður skolpkennt. Trefjarnar eru nógu þurrar til að draga í sig munnvatn þess sem neytir sem fær á tilfinninguna, þegar bitanum er rennt niður, að hafa geispað upp í vindinn í sandstormi.

Hverjum dettur í hug að grilla kjúklingabringur?

ps Eru alifuglabændur nokkuð að leita sér að kynningarfulltrúa?


Þrír í röð í augsýn hjá Red Sox

Red Sox eru komnir yfir Tampa Bay í þriðja leik liðanna og stefna ótrauðir á að taka seríuna. Helstu keppinautarnir í austurdeild Ameríkudeildarinnar, New York Yankees, hafa tapað stórt síðustu tvö kvöld í Englaborginni og skilja sex leikir liðin að.

SPRON grefur sér gröf

SPRON var vin í eyðimörk græðgisvæðingar fjármálafyrirtækja þangað til í gær þegar stofnfjáreigendur samþykktu að breyta sparisjóðnum í hlutafélag. Sérstaða SPRON hefur verið að standa utan við braskið á hlutabréfamarkaði og valdabrölt stórfursta fjármálalífsins. Orðspor sparisjóðsins síðari ár hefur byggst á þessari sérstöðu.

Stjórn SPRON og ráðandi stofnfjáreigendur reyna að telja almenningi trú um að sparisjóðurinn verði jafn og samur háeffaður og hann áður var. Það mun ekki ganga fram. Íslenski hlutabréfamarkaðurinn er of lítill til að réttnefnt almenningshlutafélag fái starfað þar, að ekki sé talað um ef félagið er í almennri fjármálaþjónustu. Þar hafa risarnir skipt með sér markaðnum. SPRON mun ekki lengi standa sjálfstæður. Áður en varir verður sparisjóðurinn að hjáleigu Glitnis, Kaupþings eða Landsbankans, þótt lífi verði sjálfsagt haldið í vörumerkinu á meðan það er einhvers virði.

Stofnfjáreigendur munu leysa til sín myndarlegan hagnað en starfsfólki verður fækkað með lokun útibúa og hagræðingu. Almenningur mun sitja uppi með færri valkosti og lélegri þjónustu þegar fram í sækir.


mbl.is SPRON verður hlutafélag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslömsk nauðgun og vestrænt samhengi

Breskur borgaralegur embættismaður í suðurhluta Írak fékk þær upplýsingar á undirbúningsnámskeiði að ef honum yrði rænt af uppreisnarmönnum myndu þeir að líkindum nauðga honum. - Þótt þú fáir sáðlát við nauðgunina skaltu ekki hafa áhyggjur, þú ert ekki hommi þrátt fyrir það.

Rory Stewart tók engu að síður starfið og skrifar reynslu sína í bókinni Occupational Hazards: My Time in Governing in Iraq (Picador). Stewart var ekki nauðgað á meðan vaktinni hans stóð en hann lærði ýmislegt, t.d. að vestrænt lýðræði er ekki auðveld útflutningsvara til arabaríkja.

Athugasemdin um mögulega nauðgun er sögð blátt áfram eins og fátt sé sjálfsagðara en að félagsskapur karlmanna komi fram vilja sínum við karlkyns óvini. Í vestrænni menningu er þetta óskiljanlegt. Óhugsandi er að baskneskir skæruliðar hafi reglulega nauðgað spænskum þjóðvarðliðum eða írskir IRA-félagar breskum hermönnum. Vestræn karlamenning nær ekki utanum þá tilhugsun að stríðshertir menn taki aftanístöðu á karlkyns föngum.

Nauðgun fær fyrst merkingu í okkar heimshluta þegar karl þvingar konu til samræðis. (Ef maður er DV-lesandi; þegar perrar leggjast á börn). Í vestrænu borgaralegu samfélagi og seinni tíma sögu Vesturlanda neytir kærastinn, eiginmaðurinn, yfirmaðurinn, skæruliðinn eða hermaðurinn aflsmunar til að brjóta konuna undir sig og svala fýsn sinni. Í sumum tilvikum er samhengið persónulegt en í öðrum þjóðfélagslegt eða sögulegt. Sovéski hermaðurinn sem nauðgaði þýsku konunni í Berlín í lok seinni heimsstyrjaldar og hrækti upp í hana að viðskilnaði var sennilega að kvitta fyrir hryðjuverk Þjóðverja á austurvígstöðvunum.

Hvað er það þá með þessa tilburði múslímskra uppreisnarmanna að nauðga körlum? Drög að svari er ef til vill í bók norsku blaðakonunnar Åsne Seierstad, Bóksalinn í Kabúl. Með fyrirvara um verklag Åsne og aðferðafræði við bókargerðina segir hún frá því að í suðausturhluta Afganistan gangi kvenfyrirlitning múslíma svo langt að karlmenn geyma konurnar einangraðar en sporta sig með kvenlegum strákum á götum og torgum. Åsne lýsir baráttu tveggja uppreisnarforingja um ástir unglingspilts. Skriðdrekum var beitt og þungum vopnum. Áður en yfir lauk lágu nokkrir tugir í valnum.

Í menningarheimi múslíma, samkvæmt lýsingu Åsne, eru konur of ómerkilegar til að fullveðja karlmenn nenni að nauðga þeim. Hvítur karlrass kveikir hins vegar losta í brjósti múslímskra uppreisnarmanna. Sennilega ættum við ekkert að þvælast þangað austur, hvorki til að kenna þeim lýðræði né jafnrétti.


Wakefield aldrei tapað á Tropicana Field

Kastari Red Sox, Tim Wakefield, hefur unnið átta sinnum á Tropicana Field heimavelli Tampa Bay. Hann er á hólnum í kvöld og Red Sox náðu tveim hlaupum í heimahöfn í fyrstu lotu. Wakefield getur náð fimmtánda sigri sínum í kvöld (nótt). Bein útsending er á mlb.com

Vísir varðhundur verður kjölturakki

Rafræna Baugsútgáfan Vísir rótaði á laugardag í dagsgömlum viðskiptum Straums-Burðaráss með eigin bréf. Tvær fréttir (hér og hér) á Vísi gefa til kynna að hæstráðendur í Straumi-Burðarási, þeir Björgólfsfeðgar, hafi selt útlendingum fimm prósent af hlutafé bankans með grunsamlegum að ekki sé sagt glæpsamlegum afslætti. Ónafngreindir heimildamenn eru hafðir fyrir ólgu í hluthafahópi bankans vegna 440 milljón króna afsláttar af eigum félagsins til ókunnra útlendinga.

Hlutahafar í Straumi/Burðarás, sem Vísir ræddi við í gær, voru allt annað en sáttir           við þennan gjörning forsvarsmanna bankans og telja hann hafa rýrt verðmæti hans     verulega.

Hér gæti verið áhugaverð afhjúpun á spillingu íslenskra  fjármálamógúla. Hliðarplott í framvindunni væri ímugusturinn sem Baugsmenn hafa á Björgólfsfeðgum fyrir yfirbragð heiðarleika sem þá fyrrnefndu skortir sárlega. En þegar leið á helgina dró úr ákefð Vísis að fletta ofan af sviksamlegum hlutabréfaviðskiptum Straums-Burðaráss.

Varðhundurinn varð að kjölturakka síðdegis á laugardag og birti frétt sem gæti hafa verið skrifuð af Ásgeiri Friðgeirssyni, talsmanni Björgólfsfeðga.

Í fréttinni er látið svo heita að viðskiptin séu sárasaklaus og við erlenda fagfjárfesta, gerð til að efla bankann. Nánast er lofað að gengi bankans muni hækka verulega í framhaldi af fimm prósenta sölunni.

En það má sem sagt ekki segja hverjir keyptu bréfin í Straumi-Burðarás á föstudag með 440 milljón króna afslætti. Það eina sem við þurfum að vita er að allir græða allan tímann.


Red Sox töpuðu í dag

Red Sox töpuðu fyrir Los Angeles Angels 1 - 3 á heimavelli og skiptu fjögurra leikja seríu jafnt. Joe Saunders þyrlaði boltum á sóknina sem Ortis og félagar áttu ekkert svar við. Tavarez kastaði fyrir Sox og á venjulegum degi hefði sóknin skorað til sigurs í þriggja hlaupastiga leik. Ljós í myrkri Sox er að slúttarinn Eric Gange komst í gegnum heila lotu án hörmunga. Hann gaf tvö hlaup í níundu en kastaði út þrjá áður en hlaupin gáfu stig. Þetta var fyrsta lotan sem hann klárar án stiga síðan hann kom til Sox fyrir tveim vikum.

Sox eru núna fjórum leikjum fyrir ofan Yankees sem rúlluðu yfir Detriot Tigers í kvöld, 9 -3.

Utan-Sox: Johan Santana kastari Twins kláraði 17 kylfara í átta lotum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband