Miðvikudagur, 24. júní 2009
Játning Ingibjargar Sólrúnar um Icesave og ESB
Mér finnst rétt að það komi fram að meginástæðan fyrir því að ekki var hægt að fara með málið fyrir dóm var sú að ekki mátti leika vafi á að innistæður væru tryggðar. Ef menn féllust á að fá úr því skorið fyrir dómi mundi skapast réttaróvissa um það hvort innistæðutryggingar væru í gildi. Þar með hefði innistæðueigandi á Spáni, í Frakklandi eða annars staðar fengið tilefni til að efast um tryggingarnar og tekið út sparifé sitt. Slík réttaróvissa er óhugsandi.
Íslendingar eiga sem sagt að greiða möglunarlaust skuldir íslenskra óreiðumanna í útlöndum vegna þess að ef við gerum það ekki skapi það réttaróvissu fyrir sparifjáreigendur á meginlandi Evrópu sem eru okkur algjörlega óviðkomandi. Ástæðan fyrir þessari réttaróvissu er að regluverk Evrópusambandsins er enn á tilraunastigi og ófullveðja eftir því.
Íslendingar skulu bera fullan þunga réttaróvissunnar vegna þess að þeir eru smáþjóð sem hægt er að kúga til hlýðni. Valdapólitík af þessu tagi er aðalsmerki Evrópusambandsins.
Ef við skyldum ganga inn í þennan félagsskap værum við varanlega seld undir valdapólitík stórþjóðanna. Hún myndi til dæmis birtast í því að þegar samið væri um veiðar úr deilistofnum við Rússa yrðu önnur hagsmunamál Rússa og Evrópusambandsins uppi á borðinu. Og ætli hagsmunum 300 þúsund manna eyþjóðar verði ekki fórnað þegar hagsmunir milljóna annarra er í húfi? Jú, vitanlega.
Eftir að við værum gengin inn í Evrópusambandið værum við aðeins brotabrot af 500 milljóna manna samfélagi. Hagsmunum okkar væri fórnað frá fyrsta degi.
Þriðjudagur, 23. júní 2009
Forsenda endurreisnar er að fella Icesave
Margumtöluð endurreisn eftir hrun getur ekki orðið ef Alþingi samþykkir Icesave-samninginn. Endurreisn verður ekki nema stjórnvöld standi í lappirnar en jafnvel stjórnarsinnar, sem ætla að samþykkja samninginn, viðurkenna að þeir skrifi undir á hnjánum.
Fjárhagsleg, lagaleg og siðferðisleg rök standa öll gegn því að við skrifum undir. Einu rökin sem mæla með undirritun er málatilbúnaður uppgjafar; við verðum að skrifa undir af því að við erum kúguð til þess. Jafnvel þau rök eru míglek. Hvergi hefur komið fram að bresk og hollensk stjórnvöld krefjist þess að nákvæmlega þessi samningur skuli samþykktur. Það má semja upp á nýtt.
Ríkisstjórnin getur ekki boðað endurreisn en byrjað á uppgjöf.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 23. júní 2009
Televideo ergo sum
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 23. júní 2009
Evrópuherinn fær þýskan stuðning
Í viðtali við BBC segist þýski innanríkisráðherrann Wolfgang Schäuble styðja stofnun Evrópuhers. Í Lissabon-sáttmálanum eru heimildir fyrir hervæðingu Evrópusambandsins. Schäble vísar til skoðanakannana á meginlandi Evrópu sem sýna stuðning við stofnun álfuhers. Þjóðríki álfunnar elduðu löngum grátt silfur og íbúar meginlandsins líta á það sem frekari tryggingu fyrir friði að þjóðríkin sameinist um herafla.
Fyrir ríki utan meginlandsins er samevrópskur her ekki vinsæll. Írar reyna að fá undanþágu frá hervæðingunni og Bretar hafa ímugust á hugmyndinni.
Hér er viðtalið við Schäble.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 22. júní 2009
Pólitísk mishröðun
Ríkisstjórnin sem nú situr varð til vegna pólitískrar mishröðunar þar sem orðræða gærdagsins, sameining vinstrimanna, yfirtók raunlestur á stjórnmálastöðuna sem segir að við eigum að hafa ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna. Og það var vel að merkja ríkisstjórnarmynstrið sem stóð til boða við þarsíðustu kosningar.
Ef ekki hefði verið fyrir vinskap Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur varaformanns Sjálfstæðisflokksins og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur þáverandi formanns Samfylkingarinnar hefðu líkur verið meiri á réttri ríkisstjórn. En þær stöllur náðu saman og Geir H. Haarde lét til leiðast með alkunnum afleiðingum.
Það er meiri samfella með Vinstri grænum og Sjálfstæðisflokknum í stærsta hagsmunamáli okkar um þessar mundir, afstöðunni til Evrópusambandsins. Í báðum flokkum er hefð fyrir raunsærri pólitík sem er fjarri grillustjórnmálum nýkratanna. Flokkarnir eru einnig með sterkar rætur á landsbyggðinni og þeim tamt að leita jafnvægis milli hagsmuna höfuðborgarsvæðis og dreifbýlis.
Vitanlega ber eitt og annað á milli, afstaða til stóriðju svo dæmi sé nefnt. En meira sameinar en sundrar. Niðrá þingi verða menn að kveikja á fattaranum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mánudagur, 22. júní 2009
Ríkisstjórnin þarf að fórna sér
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur þarf að fórna sér vegna Icesve-málsins. Samningurinn var gerður á ábyrgð stjórnarinnar og hún þarf að víkja þegar sýnt er að óráð sé að samþykkja hann. Það er ekki nóg að fella samninginn á Alþingi og láta annað standa óbreytt. Bæði vegna pólitískra aðstæðna innanlands og milliríkjasamskipta þarf stjórnin að segja af sér. Til að ríkisstjórn sé starfhæf þarf tiltrú og hún er ekki lengur fyrir hendi.
Þegar ríkisstjórnin er búin að segja af sér verður skipuð starfsstjórn sem gefur sér tvo mánuði til að ljúka vinnu við endurskoðun fjárlaga þessa árs. Samtímis verður metið hvort ástæða sé til að efna til kosninga í ágúst eða mynda nýjan ríkisstjórnarmeirihluta sitjandi þings.
![]() |
Icesave kostar minnst 300 milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mánudagur, 22. júní 2009
Ögmundareymd
Ögmundur Jónasson ráðherra og einn höfundur núverandi ríkisstjórnarsamstarfs skrifar grein í Morgunblaðið í dag og kvartar undan valdsmönnum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Í framhjáhlaupi getur Ögmundur þess að hann ætli að greiða atkvæði sitt tillögu um að við sækjum um aðild að Evrópusambandinu.
Heldur Ögmundur að Íslendingar séu fífl?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 21. júní 2009
Pólitík hugleysis fær falleinkunn
Icesave-milljarðar afhentir Bretum og Hollendingum á silfurfati, ekki einu sinni reynt að fara fyrir dómstóla; þingsályktunartillaga ríkisstjórnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu og hræðsluviðbrögð þegar þrusk heyrist í útlöndum.
Ríkisstjórnin er huglaus og eftir því duglaus. Icesave-samningar eru kjörið tækifæri fyrir ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur að fremja sæmdarsjálfsmorð með því að kannast við að stjórnarsáttmálageldingin var mistök. Vinstri grænir sjá um að fella Icesave, Samfylkingin slítur stjórnarsamstarfinu og málið er dautt.
![]() |
Rætt við matsfyrirtækin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sunnudagur, 21. júní 2009
Vertíðarfólkið fer heim
![]() |
Dæma fyrirtæki til gjaldþrots |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 18. júní 2009
Jóhönnu var treyst fyrir félagsmálum, punktur.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra var á leið úr stjórnmálum þegar Samfylkingin ákvað að fórna Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og leiða til vegs þáverandi félagsmálaráðherra. Jóhanna naut þess að hafa sinnt afmörkuðum málaflokki vel. Ekki síður var það virt við hana að hafa ekki gefið sig í útrásarvitleysuna.
Jóhanna félagsmálaráðherra sagði fátt um önnur mál, til dæmis heyrðist varla múkk um Evrópusambandið frá henni. Almenn efnahagsumræða var heldur ekki áhugamál Jóhönnu.
Þegar Jóhanna kemur fram sem eitilharður Evrópusinni og sérfræðingur í skuldbindingum sem felast í Icesave-samningunum þá er hún einfaldlega ekki trúverðug.
![]() |
Hræðsluáróður, segir Jóhanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |