Sunnudagur, 16. maí 2010
Ögmundur ræður framtíð ESB-umsóknarinnar
Ögmundur Jónasson sagði já á alþingi 16. júlí í fyrra þegar ályktun um umsókn Islands að ESB var naumlega samþykkt. Ögmundur vissi ekki þá að umsókn fæli í sér aðlögunarferli Íslands að reglum ESB. Skýrsla utanríkisráðherra staðfestir að ferlið er aðlögunarferli en ekki viðræður.
Þegar liggur fyrir að umsóknin til Brussel var send á fölskum forsendum er ekki ástæða til að halda henni til streitu.
Ögmundur gerir rétt í að undirbúa kröfu um að ESB-umsóknin verði dregin tilbaka með því að lýsa yfir eindregnum stuðningi við Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Samfylkingin vill reka Jón úr ríkisstjórn vegna þess að hann stendur vörð um íslenska hagsmuni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sunnudagur, 16. maí 2010
Útrásarliðið komið í orkuna
Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ, kúlulánamaðurinn Árni Sigfússon, og fyrrverandi ráðherra spillingarliðsins, Árni Magnússon, sem fer fyrir útrásarteymi Íslandsbanka, eru um það bil að selja HS-Orku í hendur á sænsku skúffufyrirtæki sem rekið er af braskara.
Suðurnesjamenn og aðrir sem kaupa orku af HS-Orku munu í framtíðinni þurfa að greiða sérstakan skatt sem myndar hagnað sænska skúffufyrirtækisins.
Eymd og volæði íslenskra stjórnvalda er uppmálað í þessu sorglega aðgæsluleysi um almannahagsmuni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Sunnudagur, 16. maí 2010
Stórveldadraumar ESB
Sérfræðinganefnd Evrópusambandsins, skipuð m.a. Gonzales fyrrum forsætisráðherra Spánar, Walensa fráfarandi forseta Póllands, Jorma Ollila fyrrv. forstjóra Nokia o. fl., skilaði núna í maí skýrslu um framtíðarsýn ESB til ársins 2030. Í stuttu máli segir skýrslan, sem aðeins er 46 bls. og þess virði að lesa, að hraða verði samrunaþróun Evrópu ef álfan á ekki að missa stöðu sína á vettvangi alþjóðastjórnmála.
Meðal þess sem nefnt er í skýrslunni að þurfi að setja undir yfirþjóðlegt evrópskt vald er efnahags- og skattamál, orkuauðlindir og efla þurfi hernaðarmátt ESB og samræma betur utanríkisstefnu. Áhugi ESB á norðurslóðum er staðfestur.
Skýrslan dregur upp þá mynd af ESB að stöðugt nánara samstarf með tilheyrandi miðstýringu er forsenda fyrir tilveru sambandsins. Evrópusambandið getur ekki fundið sér jafnvægisstöðu og lýst yfir að markmiðum sambandsins sé náð; um frekara samstarf verði ekki að ræða.
Brussel stefnir að stórveldasamfélagi þar sem ESB ásamt Bandaríkjunum, Rússlandi, Kína og Indlandi stjórna heiminum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Laugardagur, 15. maí 2010
Eftirhrunspólitík með afneitunarívafi
Þorsteinn Pálsson og fleiri ESB-sinnar sjá fyrir sér nýja samstjórn S-flokkanna. Þorsteinn skrifar reglulega pistla í Fréttablaðið og ólíkt flestum sem skrifa um íslensk stjórnmál hefur Þorsteinn ekki í frammi kröfu um endurnýjun íslenskra stjórnmála.
Samfylking og Sjálfstæðisflokkur stóðu saman hrunvaktina og eru með útrásarlík í lestinni. Engin leið er fyrir þessa flokka að starfa saman í bráð, enda Sjálfstæðisflokkur skaðbrenndur frá fyrra samstarfi.
Það er til marks um hve aðildarsinnar eru fastir í fortíðinni að þeir helst endurtekningu á samstarfi hrunflokkanna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Laugardagur, 15. maí 2010
Kostnaður við ESB-umsókn er falinn
Kostnaður við ESB-umsókn Samfylkingar og eins eða tveggja þingmanna Vg er vantalinn, bæði beinn útlagður kostnaður og óbeinn kostnaður af töpuðum viðskiptatækifærum og álitshnekki sem þjóðin verður fyrir. Beinn útlagður kostnaður leggst á mörg ráðuneyti og undirstofnanir.
Samfylkingarráðherrar reyna hvað þeir geta að fela kostnaðinn með því að telja ekki fram ferðakostnað vegna umsóknarinnar og aðeins hluta af þeim tíma starfsmanna sem vinna á þágu samfylkingarstefnunnar.
Töpuð viðskiptatækifæri, t.d. vegna fríverslunarsamninga við önnur ríki sem hafa verið sett á ís, eru ekki talin fram af hálfu ríkisstjórnarinnar. Þá er ótalinn kostnaður sem þjóðin verður fyrir þegar það rennur upp fyrir Evrópusambandinu að umsóknin er samfylkingarhrekkur - bjölluat - sem ærlegir stjórnmálaflokkar þvo hendur sínar af.
Gunnar Bragi Sveinsson vinnur þarft verk að upplýsa hluta af þeim kostnaði sem hlýst af stjórnarsetu Samfylkingarinnar.
![]() |
Spyr um kostnað við ESB umsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 15. maí 2010
Aldrei fleiri Norðmenn á móti ESB
Andstaðan við inngöngu Noregs í Evrópusambandið hefur aldrei mælst sterkari. Í nýrri skoðanakönnun eru 56,9 prósent Norðmanna á móti inngöngu. Aðeins 30,3 prósent segjast hlynnt inngöngu. Ríkisstjórnin í Noregi hefur sagt að ekki komi til greina að sækja um inngöngu í ESB nema mælingar sýni afgerandi stuðning þjóðarinnar við inngöngu yfir lengri tíma.
Mælingar síðustu fimm ára sýna Norðmenn staðfasta í afstöðu sinni og tryggur meirihluti er fyrir fullveldi landsins.
Andstaðan gegn aðild Íslands hefur á síðustu árum mælst milli 55 - 65 prósent. Síðasta mæling sýndi slétt 60 prósent á móti aðild að ESB en aðeins 24,4 prósent fylgjandi.
Ríkisstjórn Jóhönnu Sig. gengur í berhögg við afgerandi þjóðarvilja með því að halda umsókninni um aðild að Evrópusambandinu til streitu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 14. maí 2010
Aldraðir og öryrkjar borga ESB-umsókn
Á alþingi í dag kom fram að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu mun kosta allt að sjö milljarða króna. Á sama tíma og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra reyndi að sannfæra þingheim um að þetta gæluverkefni Samfylkingarinnar yrði að ná fram að ganga boðaði félagsmálaráðherra niðurskurð á fjármunum sem renna til málefni lífeyrisþega.
Þeir samherjar, Össur og Árni Páll félagsmálaráðherra, eru jafnaðarmenn 21. aldar sem rukka aldraða og öryrkja fyrir gæluverkefni stjórnvalda.
Föstudagur, 14. maí 2010
Evrópa brennur, Össur þangað
Efnahagslegur fasismi tröllríður húsum í Brussel, segir dálkahöfundur Telegraph sem er málgagn Íhaldsflokksins breska sem nýtekin er við völdum þar í landi. Krafa framkvæmdastjórnarinnar um að fjárlagagerð þjóðfríkja þurfi samþykki Brussel hleypir illu blóði í evrópska pólitík.
Evrópa er í ljósum logum og það þarf verulega brenglaða pólitíska dómgreind að halda íslenskum hagsmunum þjónað með umsókn um ESB. Illu heilli sitja Íslendingar uppi með utanríkisráðherra sem hyggst naga þröskuldinn í Brussel þótt innan stokks séu brunarústir einar.
![]() |
Bara ef Jón myndi sjá ljósið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 14. maí 2010
Össur og liðþjálfi Júdasar
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Árni Þór Sigurðsson þingmaður Vinstri grænna tölu fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Hvorugur útskýrði hvers vegna Ísland ein þjóða í álfunni byggi við ríkisstjórn sem þrátt fyrir ítrekaða og eindregna andstöðu þjóðarinnar sækti um inngöngu í Evrópusambandið.
Árni Þór einangraður talsmður beinna svika nokkurra þingmanna Vinstri grænna við kjósendur. Vinstri grænir lofuðu kjósendum sínum fyrir síðustu kosningar að berjast gegn inngöngu landsins í ESB.
Umsókn Íslands um inngöngu í Evrópusambandið á að draga strax til baka.
![]() |
Mikill árangur hefur náðst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 14. maí 2010
Vitorðsmenn Jóns Ásgeirs í íslenskum bönkum
Jón Ásgeir Jóhannesson er knúinn til að segja af sér stjórnarsetu í erlendum verslunarkeðjum. Á sama tíma veitir Arion banki Jóni Ásgeiri og fjölskyldu heimild til að stýra verslunarveldinu Högum sem fer með fákeppnisvald á íslenskum matvörumarkaði. Landsbankinn leyfir Jóni Ásgeiri að fara með forræði 365-miðla.
Jón Ásgeir launar ofeldið með því að breyta fákeppishagnaði Haga í auglýsingafé fyrir 365-miðla. Jafnframt eru fyrirtækin bæði notuð til að fjármagna einkaneyslu Jóns Ásgeirs. Íslenskur almenningur er látinn borga brúsann.
Vitorðsmenn Jóns Ágeirs í Arion banka og Landsbankanum starfa í skjóli ríkisstjórnarinnar sem leggur línurnar fyrir endurreistu bankana. Vitorðsmennirnir þjónusta Jón Ásgeir á meðan þeir skynja að það sé gert með velþóknun ríkisstjórnar Jóhönnu Sig.
![]() |
Jón Ásgeir segir sig úr stjórn House of Fraser |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)