Fimmtudagur, 6. maí 2010
Margrét skilur almenning, ríkisstjórnin Björgólf Thor
Margrét er talsmaður almannahagsmuna að útrásarauðmenn komi ekki nálægt endurreisn atvinnulífsins. Ríkisstjórnin og Sjálfstæðisflokkurinn eru úti á þekju í málinu sem sést best á stórundarlegum ummælum aðstoðarmanns forsætisráðherra, sem sagði saman hvaðan gott kæmi, og Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem sagði alþingi ekki eiga að fella siðadóma.
Almannahagsmunir eru að úthýsa útrásarauðmönnum og leyfa þeim hvergi að koma uppbyggingu atvinnulífs á Íslandi. Óþurftarmennirnir vita þetta og koma sér upp leppum, sbr. Björgólf Thor og Vilhjálm Þorsteinsson fjárfesti með samfylkingartengsl.
Björgólfur Thor ætti að einbeita sér að fjárfestingum í Austur-Evrópu, viðskiptasiðferðið þar hentar honum og hans líkum.
![]() |
Hugnast ekki aðkoma Björgólfs Thors |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 6. maí 2010
Djókið er dauðans alvara, Ólína
Ólína Þorvarðardóttir þingmaður Samfylkingar gagnrýnir framboð Besta flokksins og þó meira þá sem veita framboðinu fulltingi í skoðanakönnunum. Lykilsetning í máli Ólínu er
Menn verða að standa fyrir eitthvað í pólitík.
Fólki finnst stóru að flokkarnir, Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkur, standi ekki undir nafni. S-flokkarnir mynda skjaldborg um Guðlaug Þór og Steinunni Valdísi. Flokkar sem ekki halda eigin húsum í lagi eru gagnslausir.
Ólína ætti að hnippa í sitt fólk og vekja athygli á andófinu sem brýst fram í stuðningi við grínframboð.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 6. maí 2010
Innflutt störf og bóluatvinnulíf
Bíða 650 til 900 Húsvíkingar og nærsveitamenn eftir starfi hjá álverinu á Bakka? Eru mörg hundruð höfuðborgarbúar á leiðinni norður í álver. Svarið er í báðum tilvikum nei. Sama svar á að gefa við hlussufabrikkum sem fá niðurgreitt rafmang frá veitum í eigum almennings.
Það verður að stöðva tilraunir til að endurnýja ruglatvinnulíf útrásarinnar. Þeir sem fara með forráð almannavaldsins eiga að hafa í huga að atvinnulíf á að vera fyrir íbúa landsins en ekki bullukolla sem flytja inn ódýrt erlent vinnuafl og búa til hagbólu.
Byggjum atvinnulífið á rekstri sem hentar okkar aðstæðum.
![]() |
Framkvæmdir á Bakka gætu skapað 650-900 störf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Miðvikudagur, 5. maí 2010
Lára V. vísar á Jóhönnu Sig. í launamálinu
Í viðtali í Sjónvarpsfréttum staðfesti Lára V. Júlíusdóttir fulltrúi Samfylkingar í stjórn Seðlabanka að 400 þús. kr. launhækkun til Más Guðmundssonar bankastjóra væri loforð frá þeim sem réðu Má, það er Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Þau verða æ skrautlegri ráðninga- og launamál nýju forréttindastéttarinnar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Miðvikudagur, 5. maí 2010
Grín er andóf
Stóru flokkarnir láta eins og tími iðrunar og yfirbóta sé liðinn og hversdagspólitíkin taki nú við. Fólk fær tækifæri með grínframboði Besta flokksins til að sýna Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu fram á að hvergi sé nóg gert í uppgjöri við útrásartímann.
Almenningur grípur fegins hendi möguleikann að taka heiðarlegt grín fram yfir alvöruleysi hrunmenningar S-flokkanna.
Klukkan tifar Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu.
![]() |
Jón Gnarr og Hanna Birna best |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 5. maí 2010
Sukk lífeyrissjóðanna
Lífeyrissjóður bankamanna staðfestir að almennu lífeyrissjóðirnir margir hverjir voru í útrásarsukki með tilheyrandi dómgreindarleysi og fíflagangi.
Að sögn Friðberts Traustasonar hjá Samtökum starfsmanna bankafyrirtækja var tekin sú ákvörðun af sjóðstjórnendum strax árið 2006 að fjárfesta í áhættuminni bréfum en fram að því og sótti sjóðurinn í kjölfarið í ríkisskuldabréf og innlán.
Tilvitnunin er fengin af Eyjunni.
Engin knýjandi nauðsyn bar til þess að lífeyrissjóðir fleygðu peningum í útrásarhít auðmanna. Þeir sem bera ábyrgð á sukkinu láta varla svo lítið að biðjast afsökunar, hvað þá að finna sér annan starfsvettvang.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 5. maí 2010
Á fundi með Bjarna Ben
Opinn fundur var með Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi gærkveldi. Umræðuefnið var hrunskýrslan og viðbrögð við henni. Um fimmtíu til sextíu manns sóttu fundinn sem stóð frá átta til hálfellefu. Bjarni hélt um 20 mín. framsögu og stóð eftir það á miðju gólfi og tók ágjöf.
Stutta útgáfan af framsögu Bjarna er að Sjálfstæðisflokkurinn hafi viðurkennt margvísleg mistök, þar vísaði hann í ræðu fráfarandi formanns Geirs H. Haarde á landsfundi. Kjarnaatriði í mistökum flokksins var að eftirliti með markaðnum, einkum fjármálamarkaði, var ábótavant.
Fundarmenn gerðu ekki stórar athugasemdir við greiningu formanns Sjálfstæðisflokksins á forsögu hrunsins. Á hinn bóginn vildu áheyrendur ræða út í hörgul uppgjör flokksins við áhöfn hrunskútunnar. Efnislega er afstaða formanns Sjálfstæðisflokksins að hann geri kröfu til helstu trúnaðarmanna flokksins að leggja spilin á borðið og útskýra það sem þarf að útskýra. Bjarni tók fram að hann sem formaður gæti ekki skákað mönnum út og inn af alþingi. Formaðurinn vísaði í lögvarða hagsmuni þingmanna, og gaf þannig undir fótinn sjónarmiðum um að menn ættu þingsæti sem lén.
Fundurinn var ósammála formanninum um að láta hverjum og einum þingmanni það eftir að ákveða framtíð sína. Þingmenn yrðu að horfast í augun við afleiðingarnar af nánu samneyti fulltrúa almannahagsmuna og auðmanna. Þeir sem hefðu verið upp fyrir haus í græðgisvæðingunni ættu að víkja.
Önnur mál til umræðu voru kvótamál, lítið nýtt þar, og afskriftir skulda. Rætt var um hugtakið ,,greiðsluvilji" í samhenginu hvort hópar fólks, einkum yngra fjölskyldufólk, myndi tapa greiðsluviljanum. Afskriftir fyrirtækja útrásardólga voru fordæmdar og spurt hvers vegna þingmenn Sjálfstæðisflokksins hefðu sig ekki í frammi í þeirri umræðu.
Formanninum var þökkuð koman á Nesið og umræðan.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 4. maí 2010
Trúnaður Styrkja-Gulla er við auðmenn
Almenningur vill afsögn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar þingmanns og fyrrverandi ráðherra seldi þjónustu sína auðmönnum í prófkjöri 2006 og sankaði til Sjálfstæðisflokksins útrásarfé frá aðilum sem vildu fá auðlindir þjóðarinnar á silfurfati spillingar.
Vörn Styrkja-Gulla í Kastljósi kvöldsins er að hann ætli að ræða við auðmennina sem keyptu hann og biðja um leyfi að birta nöfn þeirra.
Einmitt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 4. maí 2010
Dönsku vöruhúsin, skáldið og firringin
Tímamót eru að íslenskir kaupahéðnar hafa misst úr höndum sér síðustu restar af veldi sínu í Danmörku. Um hríð leit út fyrir að strákarnir úr hjálendunni myndu leggja undir sig smásöluverslunina í gamla nýlenduveldinu. Meðhlauparar útrásardrengja komu úr andans lífi höfuðborgarhverfis kenndu við 101. Úr penna hraut þetta
Hvað eftir annað hefur okkur brugðið í brún. Hinn eitt sinn frelsisboðandi forsætisráðherra hefur ítrekað veist að spútnik-fyrirtækinu Baugi: Hótað að brjóta það upp sem og brjálast yfir kaupum þess á hlut í FBA. Við sem heima sitjum skiljum ekki hvers vegna guðfaðir nýja hagkerfisins snýst gegn bestu börnum þess. Við skiljum ekki hvers vegna sjálfstæðismenn beita öllu sínu gegn sjálfstæðustu mönnum landsins.
Hér er hörmungin í heild.
![]() |
Dönsk vöruhús úr eigu Íslendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 4. maí 2010
Næsta lygi um lífskjörin
Útrásin þreifst á lygum um að vöxtur fyrirtækja og hagkerfis væri merki um betri lífskjör. Krabbameinsvöxtur bankanna var ekki heilbrigður en enginn viðurkenndi það fyrir þeir voru dauðir.
Næsta lygi er að við verðum að selja útlendingum auðlindir okkar til að standa undir lífskjörum. Spillingarteymi, sem starfar núna í Íslandsbanka, og var sett upp af útrásarbankanum Glitni ætlar að setja upp útibú í Bandaríkjunum fyrir auðlindasölu á Íslandi.
Lygadólgar Íslandsbanka munu reyna telja okkur trú um að farsælt sé að selja frumburðarréttinn.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)