Mánudagur, 23. nóvember 2015
RÚV boðar sundrungu með Samfylkingu
Varaþingmaður Samfylkingar, Baldur Þórhallsson, skrifaði færslu á fésbókina sína og gagnrýndi forseta Íslands fyrir að taka ekki undir með góða fólkinu að múslímatrú og hryðjuverk eru tveir aðskildir heimar.
RÚV, vitanlega, tekur upp fésbókarfærslu Baldurs og gerir að sinni. Í hádegisfréttum tekur fréttamaður undir með Baldri og segir (6:47) ,,það ætti að vera hlutverk forseta að sameina?" Til að sameina eitthvað þarf fyrst að sundra. En hér er engri sundrungu til að dreifa, nema í höfði varaþingmannsins.
Varaþingmaður Samfylkingar má vitanlega hafa uppi hverja þá skoðun sem honum sýnist. En að fréttamaður RÚV, sem á að heita hlutlægur og faglegur fréttamiðill, skuli taka undir áróðurshjal að íslenska þjóðin sé sundruð er út í bláinn.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson er annarrar skoðunar en Baldur um orð forsetans vegna hryðjuverka múslíma. Hannes gerir grein fyrir skoðun sinni í pistli á fjölmiðli. RÚV hlýtur að taka viðtal við Hannes og útvarpa.
Eða stendur RÚV-ið fyrir Rauna-Útvarp-Vinstrimanna?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Mánudagur, 23. nóvember 2015
Vinstrimenn og múslímar hugsa heiminn í svart hvítu
Ríki íslam þrífst á velmeinandi vinstrimönnum eins og Guðmundi Andra Thorssyni sem segja lofslagsvá meiri ógn við okkur en herskáir múslímar.
Íslamistar koma sér fyrir í vestrænum samfélögum og eru þar fimmta herdeild öfgatrúboðs sem skipulagt er og fjármagnað af olíuauðugum arabaríkjum.
Vinstrimenn eiga það sameiginlegt múslímum að þeir hugsa heiminn í svart hvítu. Þannig teflir Guðmundur Andri fram hatri sem andstæðu umburðalyndis. Það er vitanlega rugl.
Staðfesta er andstaða umburðalyndis. Og staðfestu með vestrænum gildum verðum við að sýna í baráttunni við íslamista.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 23. nóvember 2015
Tilfærsla vinnuafls, álverið barn síns tíma
Álverið í Straumsvík hamlar eðlilegri byggðaþróun og ætti að víkja. Álverið var reist á sjöunda áratug stíðustu aldar og fékk betri raforkusamning en þekktist á byggðu bóli.
Álverið launaði ofbeldið með ,,hækkunum í hafi" þar sem tilbúið verð aðfanga hækkaði kostnað og lækkaði þar með þegar lágt raforkuverð.
Vinnuaflið í álverinu á í mörg hús að venda á þenslutímum.
![]() |
Ekki sjálfgefið að kveikt verði aftur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 22. nóvember 2015
Kynlíf Bigga löggu
Karl og kona. Trúboðsstellingin.
Annars eigið þið Bigga löggu á fæti. Í aukagetu stjórnar Biggi lögga fordæmingu samfélagsins á óhefðbundnu kynlífi.
![]() |
Vill láta reka Bigga löggu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 22. nóvember 2015
Litla gula hænan hagkerfið
Dæmisagan um litlu gulu hænuna segir að fólk nenni ekki að leggja neitt á sig en vilji samt njóta gæðanna. Hagkerfi okkar er þessu marki brennt, samanber viðbrögð við rökstuðningi aðalhagfræðings Seðlabankans fyrir vaxtahækkun. Á fundi með þingnefndi sagði hann
Vegna þess að staðan sem við erum í er að hagkerfið er að vaxa of hratt miðað við framleiðslugetu. Það skapar þrýsting á laun, verðlag og svo framvegis. Það sem við erum að gera er að draga úr ráðstöfunartekjum heimila, þau eiga þá minna til ráðstöfunar til að fjármagna eftirspurnarneyslu. Við erum að draga úr getu fyrirtækja til að fjárfesta eða fara í útgjaldaáform. Þetta er bara því miður það sem við þurfum að gera til þess að halda aftur af eftirspurninni.
Ýmsir ruku upp til handa og fóta og töldu algera óhæfu að draga ætti úr ráðstöfunartekjum heimilanna. Stjórnmálasamtök skoruðu á ASÍ að taka málið til umfjöllunar.
Vextir verða að hækka til að hamla því að verðbólga éti upp kaupmáttinn. Við þekkjum það af langri reynslu að kauphækkanir án innistæðu leiða til verðbólgu.
Heimilin ættu að fagna tækifæri að leggja fjármuni sína inn á reikning og ávaxta sitt pund. Við verðum að koma okkur út úr hagkerfi litlu gulu hænunnar og temja okkur siðlegan efnahagsbúskap.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 21. nóvember 2015
Vinstrimenn eru skjól Ríkis íslam
Forsætisráðherra Svíþjóðar viðurkennir einfeldningshátt gagnvart herskáum múslímum. Danski blaðamaðurinn David Trads segir það hreint út: vinstrimenn eru skjól öfgamúslíma.
Í Svíþjóð telja 52 prósent sænskra múslíma að trúarlög, þ.e. sharía-lög, skuli ríkja ofar sænskum lögum.
Umræðan í Bretlandi er á sömu bókina lærð. Þar eru viðvörun Enoch Powell frá 1968 rifjuð upp um að blóð muni fljóta ef fjölmenningin fær að ryðja úr vegi vestrænum gildum um mannréttini og lýðræði.
Hér heima staðfestir formaður Samfylkingar að herskáir múslímar muni áfram njóta góðs af skjóli vinstrimanna.
![]() |
Grípi til allra nauðsynlegra aðgerða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 21. nóvember 2015
Árni Páll tekur evruna á múslímaöfgar
Fráleitt er að tengja hryðjuverk við múslímatrú, segir Árni Páll Árnason formaður Samfylkingar. Árni Páll tekur evru-rökin, um að evran sé góð þótt hún drepi sterk hagkerfi eins og það finnska og valdi verðhjöðnun, og yfirfærir á múslímatrú.
Hún Jaleh Tavakoli er ekki sammála formanni Samfylkingar. Tavakoli biður okkur að berjast gegn islamistum, sem allir eru múslímar, - þótt ekki allir múslímar séu íslamistar.
Sæmilega læsir menn, Jóns Kristjánsson til dæmis, vita að múslímatrú er í vandræðum með að aðlagast nútímanum.
Árni Páll vill veita múslímum aflausn; þeir þurfi ekki að horfast í augu við miðaldastig trúarinnar. Múslímar, sem sýna sig hæfa til aðlögunar að vestrænni menningu, eru ósammála. Mona Siddiqui prófessor við Edborgarháskóla segir múslíma verða horfast í augu við ábyrgð trúarinnar, og iðkun hennar, á hryðjuverkum.
Herskáir múslímar þrífast á rökum Árna Páls og fitna eins og púkinn á fjósabitanum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 20. nóvember 2015
Fimm brotnir unglingar
Ríkissaksóknari ákærði fimm unga menn á aldrinum 17 til 19 ára fyrir nauðgun með þessum rökum
,,Embættið hafi talið rétt og eðlilegt að málið færi fyrir dómstóla og að þeir tækju af skarið varðandi sönnunarmatið.'
Unglingarnir voru settir í gæsluvarðhald líkt og harðsvíraðir glæpamenn. Fjölskipaður héraðsdómur sýknaði unglingana. Þó er búið að refsa. Í frétt RÚV segir
Í dóminum kemur fram að piltarnir hafi átt erfitt uppdráttar frá því málið var kært. Þeir hafi orðið fyrir áreitni, fengið hótanir og hræðst að fara úr húsi. Tveir þeirra fluttust af landi brott vegna þessa. Þá hafi einn þeirra flosnað upp úr skóla og tveir misstu vinnuna. Málið vakti mikla athygli og voru nöfn piltanna birt á samfélagsmiðlum.
Er það sérstakt markmið ríkissaksóknara að eyðileggja líf unglinga? Mun enginn axla ábyrgð á tilhæfulausum ákærum?
![]() |
Sýknaðir af hópnauðgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Föstudagur, 20. nóvember 2015
Kjarnavandi ESB birtist í Schengen og evru
Evrópusambandið færðist of mikið í fang með Schengen-samstarfinu. Sambandið tekur að sér verkefni sem það ræður ekki við; hefur hvorki valdheimildir né bjargir til að sjá um framkvæmdina.
Evru-verkefnið er á sömu bókina lært. ESB býr til gjaldmiðil án þess fyrir hendi sé yfirvald til að tryggja að gjaldmiðillinn virki sem skyldi.
Í tilfelli Schengen og evru er búið til sam-evrópskt regluverk án sam-evrópsks yfirvalds. Ástæðan fyrir skorti á yfirvaldi er að Evrópusambandið skortir lýðræðislegt lögmæti. Það er kjarnavandi ESB.
![]() |
Evrópa vakni og verji sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 20. nóvember 2015
Hver býður þjófi heim til sín?
Sumir virðast líta svo á að það sé á ábyrgð lögreglu ef maður býður þjófi heim til sín. Er ekki rétt að alþingi setji lög sem banni að tveir einstaklingar hittist í einrúmi án eftirlits? Það er aldrei að vita nema annar ágirnist eitthvað sem hinn á. Og þá er voðinn vís, nema að þriðji aðili, helst opinber, komi til og skakki leikinn. Auðvitað á fólk ekki að bera ábyrgð á sjálfu sér.
![]() |
Ert þú gjafmild þegar þú ert drukkin? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)