Miðvikudagur, 31. október 2007
Háttvísi, prentfrelsi og tíu ég-má-ekki-segja
Þegar afríski kunninginn sagði mér reynslu sína gaf ég mér að sundlaugarvörðurinn hafi tekið hann fyrir vegna hörundslitarins og varð miður mín. En það getur allt eins verið að framkoma hans skýrist af því að kunninginn hafi farið beint úr búningsklefanum til laugar og starfsmaðurinn talið sér skylt að benda útlendingnum á hér á landi þvær fólk sér áður en það fer ofaní sundlaugina. Víða erlendis hoppa menn útí og þvo sér kannski eftrá.
Frásögnin rifjaðist upp vegna viðbragða við útgáfu á barnabók sem auðveldlega má skilja sem kynþáttaáróður en er jafnframt hægt að lesa sem gamla framandi sögu ætlaða íslenskum börnum sem bjuggu sum hver í torfbæjum þegar fyrsta útgáfa leit dagsins ljós.
Umræðan um endurútgáfu á Tíu litlu negrastrákum er stöðubarátta þar sem tekist er á um mörk, annars vegar prentfrelsis og hins vegar háttvísi. Þeir sem býsnast hvað mest yfir skorti á háttvísi ættu kannski að minnast þess að án prentfrelsis væri tómt mál að ræða um hvað sé boðlegt og hvað ekki. Það væri vitanlega bannað.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 29. október 2007
Boston tók Heimsseríuna
Boston Red Sox sigruðu Colorado Rockies 4-0 í Heimsseríunni. Annar meistaratitilinn í höfn á þrem árum, en fyrir 2004 hafði verið beðið í 86 ár, eða nokkru lengur en elstu menn gátu munað.
Mike Lowell var kjörinn leikmaður seríunnar, en titilinn átti auðvitað að fara til Josh Beckett. Lowell var góður, heimahlaup í þeirri sjöundu og ásar og tvistar hér og þar, en Beckett var bjargið. Jon Lester var á hólnum og tók 5 2/3 lotur sem tryggði honum sigurleik en það var slúttarinn Jonathan Papelbon sem rak smiðshöggið eins og oft áður með því að loka á Klettafjallakylfarana. Papelbon fékk ekki á sig heimahlaup þau sjö skipti sem hann slúttaði í úrslitakeppninni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 29. október 2007
Fjármálagúrúar miðaldra um aldur fram
Engum hefur tekist að útskýra hvers vegna unglingunum, sem komu hver úr sinni áttinni, tókst að efnast svona vel á skömmum tíma. Umhverfið og kringumstæðurnar sem gerðu kleyft ná þeim árangri sem raun ber vitni eru á hinn bóginn tiltölulega ljósar. Það var íslenskt efnahags- og atvinnulíf, með sínum kostum og göllum, sem var umgjörðin. Þar með talin krónan.
Eftir fimmtán ár og nær samfellda sigurgöngu vilja fjármálagúrúarnir núna skipta yfir í evru. Þær skýringar sem gefnar eru á evrusókn fjármálafyrirtækja eru sumpart eðlilegar, stór hluti umsetningarinnar er erlendis. Aðrar ástæður eru ekki eins trúverðugar, t.d. að krónan sé of lítill gjaldmiðill og flöktir meira en góðu hófi gegnir.
Vöxtur fjármálafyrirtækjanna er að líkindum ekki jafn traustur og hann er ör. Með evru í stað krónu telja fyrirtækin að áhættuþáttum fækki um einn.
En það var ekki áhættufælni sem skóp velgengnina.
![]() |
Skráning í evrum gæti hafist í nóvember |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 28. október 2007
Heilagt stríð múslíma; sjálfsvörn eða kjarninn sjálfur?
Í grófum dráttum skiptast sjónarmiðin í tvö horn. Annars vegar að heilagt stríð sé afbrigði í trúarkerfi múslíma og komi aðeins til álita í nauðvörn. Múslímatrú sé friðsöm og leggi ekki blessun sína yfir blóðsúthellingar saklausra. Hins vegar eru þeir sem telja trúarbrögðin af Arabíuskaganum vera í kjarna sínum ofbeldishneigð. Heilagt stríð sé birtingarmynd hneigðarinnar.
Umræðan um heilagt stríð er jafngömul sjálfri trúnni sem óx og dafnaði í kjölfar hernaðarsigra fylgismanna spámannsins. Í yfirlýsinga Osama Bin Laden frá árinu 1998 er vísun í múslímskan fræðimann frá þrettándu öld.
Í nýjustu útgáfu New York Review of Books, ræðir Malise Ruthven um múslímatrú, heilagt stríð og nútímann. Til grundvallar leggur Ruthven þrjár bækur (John Kelsay: Arguing the Just War in Islam; Hans Küng: Islam. Past, Present and Future og Michael Bonner: Jihad in Islamic History).
Ruthven segir þá Küng og Bonner komast að sömu niðurstöðunni: Heilagt stríð er ekki afbrigði í múslímatrú sem aðeins sé beitt í sjálfsvörn. Í sögu trúarbragðanna og iðkun þeirra er hugmyndin um stríð gegn vantrúuðum veigamikill þáttur. Umræðan í samfélagi múslíma sé ekki um það hvort heilagt stríð falli innan ramma trúarinnar heldur hvenær og hvernig beita skuli þessu vopni.
Ruthven dregur upp þá mynd af múslímatrú að hún sé kviksett í fyrnsku og geti ekki átt samleið með veraldlegum stofnunum í lýðræðisþjóðfélagi. Endurnýjun sem kaþólska kirkjan, mótmælendatrú og gyðingdómur fóru í gegnum síðustu fimm hundruð árin eða svo hefur ekki snert múslíma. Þeir eru enn fangar bókstafstrúar með heimssýn sem leyfir ekki fjölræði.
Sjálf umræðan um múslímatrú er dauðans hættuleg, samanber hótanir sem vofa yfir þeim rithöfundum og gagnrýnendum er voga sér óhefðbundna nálgun á spámanninum og orðum hans.
Laugardagur, 27. október 2007
Jóhannes í Bónus og áfengið
Bónusverslunin er áhugasöm um að selja landsmönnum áfengi og rekur auglýsingaáróður í fjölmiðlum í því skyni. Hér á mlb.is eru auglýstar viðhorfskannanir Bónus þar sem fólk er spurt hvort það vilji að áfengi verði selt í matvöruverslunum. Og fyrst Bónus er að spyrja almenning hlýtur að vera í lagi að almenningur spyrji Bónus.
Undirritað eintak af almenningi vill beina þeirri spurningu til Jóhannesar Jónssonar stofnanda Bónus og helsta eiganda hvort hann telji samfélagsbót að auka aðgengi almennings að áfengi. Þá er Jóhannes spurður að því hvort hann sé þeirrar skoðunar að það sé fjölskylduvænt að stilla upp áfengi við hliðina á nauðsynjavöru.
Einnig mætti Jóhannes svara þeirri spurningu hvort maður hætti að kunna að skammast sín þegar maður kemst í álnir.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Laugardagur, 27. október 2007
Boston 2-0 í Heimsseríunni
Boston Red Sox unnu tvo fyrstu leikina í Heimsseríunni gegn Colorado. Fjóra sigra þarf til að taka seríuna. Næstu tveir leikir verða í Denver, sá fyrri seinna í dag.
Josh Beckett kastaði fyrsta leikinn og gaf aðeins eitt hlaup til Klettafjallaliðsins. Í fyrstu lotu sló Dustin Pedroia, líklegur nýliði ársins, heimahlaup og gaf tóninn fyrir heimaliðið. Boston virtist hafa leikinn í hendi sér allan tímann. Boston vann 13-1.
Curt Schilling tók hólinn í öðrum leiknum og var traustur inn í sjöttu lotu. Þá tók Hideki Okjaima við í rúmar tvær. Jónatan Papelbon, besti slúttarinn í báðum deildum, kláraði leikinn. Hann kastaði út Matt Holliday í fyrstu höfn í áttundu lotu og afgreiddi kylfara Colorado í níundu án þess að þeir kæmust í fyrstu höfn. Það þurfti til vegna þess að staðan var 2-1 fyrir Boston og mátti engu muna. Mike Lowell kom David Ortiz í heimahöfn í fimmtu lotu með tveggja hafna skoti niður hliðarlínuna. Forystan var ekki látin af hendi eftir það.
Dice-K tekur hólinn í kvöld fyrir Boston og ætti að hafa sjálfstraust eftir sigurinn gegn Cleveland í síðustu viku.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 22. október 2007
Spyrnt við ofríki auðmanna
Stjórnmálaflokkar ættu að vera sverð og skjöldur almennings gegn auðmannaliðinu. Þeir hafa þó sumir brugðist því hlutverki, Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin sérstaklega.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 21. október 2007
Oddaleikur í nótt
Boston Red Sox hafa unnið tvo leiki í röð gegn Cleveland Indians og jafnað úrslitarimmuna um Ameríkudeildina í 3-3. Í nótt er úrslitaleikurinn og fer hann fram á Fenway Park í Boston.
Í gær var þjóðhátíðarstemning í Boston þegar Curt Schilling tók hólinn í gær, en hann brenndi sig í vitund hafnarboltafólks þegar hann spilaði með blæðandi ökklasár 19. október 2004 í leik sex gegn New York Yankees og vann leikinn.
Schilling er kominn á fimmtugsaldur og hendur kastara fara að gefa eftir á þeim aldri. En hann kláraði sjö lotur og var maðurinn á bakvið 12-2 sigur.
Hin hetja kvöldsins var J.D. Drew sem sló alslemmu í fyrstu lotu og færði heimamönnum forystu, 4-0. Drew hefur átt erfitt tímabil en það er allt fyrirgefið núna.
Daisuke Matsuzaka, Dice-K, kastar í nótt fyrir Boston og hann hefur verið mistækur, kippt útaf í fjórðu lotu í leik 3 sem tapaðist.
Það má alltaf vona.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Laugardagur, 20. október 2007
Kaupþing skrifar afkomuspá samkvæmt pöntun 365
Í hálffimm fréttum Kaupþings í gær er í afkomuspá fyrir 365 hf. sleppt og huglægt mat látið leika lausum hala, líkt sérfræðingateymi Kaupþings hafi verið á mála hjá 365 hf. þegar það skrifaði greininguna.
Við fyrsta augnakast er greining Kaupþings trúverðug. Það er fjallað um líklega afkomu fjölmiðlafyrirtækisins á þriðja ársfjórðungi og fyrirsjáanlega afkomu á þeim fjórða.
Það stingur þó í augu að ekki er fjallað um einkennilegu stöðu almenningshlutafélagins 365 hf. að stærsti eigandinn, Baugur, skutlar eignum inn og út úr félaginu eftir hentugleikum. Erlendar eigur, sem og dagblöð og tímarit hér heima, hafa rúntað inn og aftur út úr bókhaldinu og skyldi ætla að greining á fyrirtækinu nefndi það.
Huglæg afstaða Kaupþings til 365 hf. kemur þó hvað gleggst fram í síðustu setningu greiningarinnar. Einnig búumst við við því að góð innlend dagskrágerð skili auknum tekjum til félagsins á árinu."
Það eru til einfaldar aðferðir til að greina hversu gott áhorf sjónvarp 365 hf. fær. Og fyrst á annað borð að dagskráin er nefnd þá er þögnin hrópandi í greiningunni sem umlykur þann milljarð króna sem fór í að tryggja sjónvarpsréttinn á ensku knattspyrnunni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 19. október 2007
Mennska og raunpólitík
En það er ekki raunpólitík, og við búum í raunpólitískum heimi.
Þær hamfarir sem Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hefur orðið fyrir eru af mannavöldum. Og ef engar verða afleiðingarnar fyrir borgarstjórnarflokkinn þá er veruleikanum gefið langt nef. Stjórnmálaflokkur sem hagar sér þannig býður heim næsta stórslysi.
Annað hvort þarf Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson að axla sín skinn eða afgangurinn af borgarstjórnarflokknum.
![]() |
Samstarfsslitin útrætt mál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)