Fimmtudagur, 18. október 2007
Rauðsokkar upp við vegg
Boston Red Sox unnu fyrsta leikinn um sigurinn í Ameríkudeildinni gegn Cleveland Indians en töpuðu síðan þremur í röð. Það þarf fjóra sigurleiki til að taka deildina og komast í Heimsseríuúrslitin.
Josh Beckett tekur hólinn í Cleveland í kvöld, en hann vann fyrsta leikinn. Þótt hann klári leikinn í kvöld er ólíklegt að það dugi til. Það verður að segjast eins og er að Indjánarnir hafa leikið meira með hjartanu en Rauðsokkar. Vinnist leikurinn í kvöld fer keppnin aftur heim til Boston. En það er einhvern veginn skrifað í skýin að Rauðsokkarnir fari ekki áfram úr þessari leikjahrinu.
Í apríl hefst næsta tímabil.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 17. október 2007
Hversu flókið er að gera verðkönnun?
Eina rétta aðferðin til að gera verðkönnun er að fara út í búð eins og hver annar neytandi og kaupa samkvæmt fyrirfram ákveðnum lista. Kassakvittunin er samanburðarverðið.
Verðlagseftirliti ASÍ ætti að vera í lófa lagið að gera fólk út af örkinni að kaupa 35 - 40 vöruliði. Gera má ráð fyrir að út úr því fáist 20 - 25 vöruliðir sem eru sambærilegir og hægt er að gera á verðsamanburð.. (Afföllin skýrast af því að ekki eru allir vöruliðir til í öllum búðum, einingarpakkningar ekki þær sömu o.s.frv.)
Verðlagseftirlit ASÍ á ekki að spyrja kóng eða prest hvort heimilt sé að gera verðkönnun. Framtak ASÍ er lofsvert og synd og skömm ef algjörlega óþörf nærgætni gagnvart hagsmunum verslunarinnar skuli eyðileggja verðsamanburð.
Til að gera langa sögu stutta: Fulltrúar ASÍ eiga að haga sér eins og neytendur þegar þeir gera verðsamanburð. Kaupa vöruna og nota kassakvittun til að gera samanburð.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 16. október 2007
Áfengi er heilbrigðisvandamál
Þau rök eru léttvæg að um skerðingu á einstaklingsfrelsi sé að ræða. Við sem einstaklingar búum við margskonar höft vegna almannahagsmuna. Hraðatakmarkanir í umferðinni og hömlur á byssueign eru í þágu almannahags, þótt hvorttveggja skerði rétt einstaklinga að aka eins greitt og aðstæður bjóða og munda vopn.
Þá er hún frekar hol kenningin um að einkarekstur eigi að taka við opinberum rekstri þar sem því er við komið. Einkarekstur á Íslandi er í vaxandi mæli fákeppnisrekstur ef ekki beinlínis einokun.
En þingmennirnir 17 eru ekki af baki dottnir og hafa látið sér til hugar koma fádæma snjöll rök fyrir sölu áfengis í matvöruverslunum: Það myndi auka ferðamannastrauminn til landsins.
Maður verður stúmm.
Hér er tengill á frumvarpið og greinargerð.
Mánudagur, 15. október 2007
Vinstrifylking auðmanna
Því miður eru teikn á lofti um að samningar um afsal á gögnum og gæðum Orkuveitu Reykjavíkur til áhættufjárfesta gangi fram í skjóli nýs meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur.
Vinstrimenn með snefil af sjálfsvirðingu eiga hvergi heima, verði sú reyndin.
Föstudagur, 12. október 2007
Snökt í sjónvarpsvélar
Björn Ingi Hrafnsson borgarfulltrúi Framsóknarflokksins komst við þegar hann útskýrði fyrir flokkssystkinum sínum og sjónvarpsvélum að sá kostur var óhjákvæmilegur að slíta samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn í borgarstjórn.
Síðast þegar Björn Ingi komst í hann krappann, í desember á síðasta ári, þegar hann varðist ásökunum um spillingu, fór hann í kirkju og básúnaði það á heimasíðu sinni. Sjá hér umfjöllun.
Fyrst kirkjuferð, síðan opinbert snökt. Næst hlýtur hann að gráta í beinni.
Föstudagur, 12. október 2007
Eftir handvömm koma svik
Litla sagan um hallarbyltinguna í Ráðhúsinu varpar ljósi ríkisstjórnarsamstarfið. Meira síðar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 10. október 2007
Hvort vann Pálmi að Skeljungi eða á?
Það er kátbroslegt að sjá það haft eftir hákarlakapítalistanum að nú sé tímabært að aðrir taki við rekstri fyrirtækisins." Rétt eins og Pálmi hafi verið vakinn og sofinn yfir rekstrinum undanfarin ár.
Orðalagið að vinna að fyrirtæki" er viðskiptaíslenska. Á mæltu máli heitir það að vinna á fyrirtækjum þegar hákarlarnir gleypa feitustu bitana og selja beinagrindina.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 8. október 2007
Jón Ásgeir heggur til Doritt and Grimsson
Það er vitað að meint vammleysi Björgólfsfeðga fer í taugarnar á Jóni Ásgeiri Jóhannessyni Baugsstjóra og eiganda DV. Þess vegna er það ekki tiltölumál þótt ritstjórar DV þjóni lund eigandans með því að birt eitthvað misjafnt um hreinu feðgana. Jón Ásgeir á aftur á móti forsetanum skuld að gjalda eftir að Ólafur Ragnar neitaði að skrifa undir fjölmiðlafrumvarpið sem Baugur vildi ekki að yrðu að lögum.
Þótt Jón Ásgeir hafi skutlað heimilisfólki Bessastaða á milli landa í þotunni sinni er skuldin tæplega greidd enn. Baugsstjórinn sýnir litla háttvísi með því að standa fyrir birtingu niðrandi frétta um Dorritt and Grimsson.
![]() |
Dorrit segir frétt DV móðgandi og særandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sunnudagur, 7. október 2007
Rauðsokkar rúlla upp Englunum
Boston Red Sox tóku þrjú núll á Los Angeles Angels og eru komnir úrslit Ameríkudeildarinnar. Josh Beckett lagði grunnin í fyrsta heimaleiknum og hleypti kylfurum Englana hvorki lönd né strönd. Dice-K var nærri búinn að fokka upp öðrum leiknum en bekkurinn og sóknin redduðu honum.
Curt Schilling tók hólinn í kvöld, í fyrsta leiknum á vesturströndinni, og gamli jálkurinn brást ekki. Hann kastaði sjö lotur og fékk ekki á sig stigahlaup. Í fjórðu lotu slógu David Ortiz og Manny Ramirez heimahlaup í beit og með Schilling á hólnum virkaði það traust. Í sjöundu lotu opnuðust flóðgáttir hjá kösturum Englanna og Sox náði sjö stigahlaupum.
Sokkarnir voru níu núll og höfðu efni á því að leyfa svarta sauðnum Eric Gagne að slútta en hann hefur klúðrað öllu sem hægt er að klúðra frá því hann kom til Boston í ágúst. Eiríkur virtist ætla að sólunda enn einu tækifærinu til að sýna að hann kunni að kasta bolta og leyfði hlaup á fyrstu höfn. Til að undirstrika að hann eigi að verma bekkinn lét hann bolta vaða útí bláinn og sóknarmaðurinn komst á þriðju höfn og þaðan var stutt í fyrsta stigið fyrir heimaliðið. Áður en skaðinn varð meiri tók Eiki sig saman í andlitinu og kastaði út tvo síðustu Englana.
Úrslitaserían hefst á föstudag og þar á Boston heimaleik. Í kvöld og nótt berjast Yankees fyrir lífi sínu í borginni sem aldrei sefur en Indjánarnir eru með tvo leiki unna og þurfa einn af þrem til að komast í úrslitin. Í annarri lotu eru Indjánarnir komnir tvö núll þrátt fyrir að Clemens sé á hólnum fyrir heimamenn. Tapist leikurinn verður karlinn í brúinni hjá Yankees, Torres, látinn fara.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 5. október 2007
Maður þriggja alda
Morgunblaðsstubbar biskups eru ógnarstórir í látleysi sínu og áminning um að andlegt líf er hægt. Það sem til þarf er að taka eftir, hlusta og hugsa upp á eigin spýtur. Spor þriggja alda mannsins eru of stór fyrir flest okkar að feta en þau vísa veginn.
Sigurbjörn er þjóðargersemi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)