Föstudagur, 22. janúar 2010
Samkeppniseftirlit er ofan á brauð
Alla útrásina var Samkeppniseftirlitið í felum líkt og Fjármálaeftirlitið og fleiri aðilar í stjórnsýslunni. Samkeppniseftirlitið var svo meðvirkt auðræðinu að rassvasafyrirtæki Finns Ingólfssonar á sviði bifreiðaskoðunar ætlaði að sameinast hinu fyrirtækinu í bransanum og yrði þá aðeins eitt fyrirtæki í landinu sem veitti skylduskoðun á ökutæki.
Gaurarnir sem véluðu um gerðu ráð fyrir samþykki Samkeppniseftirlitsins vegna þess að rökin fyrir henni voru þau að nýtt einokunarfyrirtæki ætlaði í útrás. Næst mesta dellan sem komst áleiðis og sýndi hvaða álit auðmenn höfðu á Samkeppniseftirlitinu var þegar Björgólfur eldri og Jón Ásgeir Baugsstjóri ætluðu að sameina Morgunblaðið og Fréttablaðið/Stöð 2.
Af frétt Eyjunnar að dæma er Samkeppniseftirlitið að vakna úr dái og rétt að óska stofnuninni til hamingju með það.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 21. janúar 2010
Flekkleysi og fljótfærni í afskriftarheimi
Skúli Helgason er flekklaus sem þingmaður og á að njóta þess þegar atvik af þessu tagi kemur upp. Á hinn bóginn er stjórnarþingmaður að bjóða heim grunsemdum þegar hann kaupir fasteign af ríkisbanka.
Alþjóð veit að tugmilljarða afskriftir á eignasöfnum bankanna bjóða upp á tækifæri fyrir þá sem eru vel tengdir. Í þjóðfélaginu eru margar sögur á kreiki um mismunun, klíkuskap og spillingu í tengslum við góssið sem varð til á útrásarárunum og fæst núna á slikk.
Aðstæður eru þær að margur maðurinn hefur mátt horfa upp á ævisparnaðinn tapast, aðrir glíma við atvinnuleysi og enn fleiri ná varla endum saman. Sögur, bæði sannar, ýktar og lognar finna hlustir um allar trissur sem vilja fá meira að heyra.
Þingmenn þurfa að hafa þetta í huga þegar þeir sinna einkamálum eins og að kaupa sér íbúðarhúsnæði.
![]() |
Segist hafa keypt hús á yfirverði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 21. janúar 2010
Stjórnin uppiskroppa með biðleiki
Þriðja fundinn í röð er ekkert að frétta þegar stjórnin kallar til stjórnarandstöðuna. Jóhönnustjórnin notar Bjarna Ben., Sigmund Davíð og Birgittu sem leikmuni í leikritinu beðið eftir símtali frá London. Símtalið sem Jóhanna, Össur og Steingrímur J. vona að komi nú senn um boð í nýjar Icesave-viðræður kemur ekki.
Ástæðan er einföld. Bretar og Hollendingar hafa þegar talað við Jóhönnustjórnina og gert við hana samning. Ef Jóhönnustjórnin getur ekki staðið við samninginn, sem hún augljóslega getur ekki, verður ríkisstjórnin að víkja.
Vandinn sem blasir við er að ríkisstjórnin neitar að skilja þá staðreynd að hún stjórnar ekki.
![]() |
Engin niðurstaða eftir Icesave-fund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 21. janúar 2010
Vit í öfugu hlutfalli við peninga
Gelgjustrákarnir íslensku sem riðu húsum heima og erlendis áttu aðgang að miklum peningum en reiddu ekki vitið í þverpokum. Kjánalegar játningar Eggerts í dag um fótboltafélag sem hann stjórnaði í þágu Björgólfs eldri hafi ætlað að kaupa sér tiltrú með peningaeyðslu er staðfesting á almannarómi; útrásargaurarnir eru fremur illa gert fólk.
Í gær var sagt frá reynslu norsks bankamanns af starfsbræðrum sínum á Íslandi. Þegar sá norski kom í heimsókn fyrir fimm árum fékk hann tilfinninguna að íslensku milljónastrákarnir töldu fyrir neðan sína virðingu að tala við bankamann frá smáþjóð með íbúatölu upp á 4 milljónir.
Heimskuskotið dramb og gomma af ódýru lánsfé, það er útrásin í hnotskurn.
![]() |
Stoltur af mínum verkum hjá West Ham |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Miðvikudagur, 20. janúar 2010
Arion verður jarðaður fái Baugsfeðgar Haga
Þjóðin vill uppgjör við auðmennina sem keyrðu efnahagslífið fram af bjargbrúninni og bæði lugu og stálu í leiðinni. Útrásarauðmenn eiga ekkert hlutverk í endurreistu Íslandi. Bankar í eigu/umsjá ríkisins verða að skilja að um grundvallarmál er ekki hægt að semja.
Samkvæmt fréttum fá feðgarnir Jón Ásgeir Jóhannesson og Jóhannes Jónsson frest ofná frest til að eignast Haga sem er afgangur Baugsveldisins. Hagar eiga ekki fyrir skuldum vegna fábjánarekstrar undanfarin ár en feðgarnir halda fyrirtækinu og skuldir afskrifaðar. Það er álíka og Björgólfsfeðgar fengju Landsbankann aftur í sinn hlut til að taka annan snúning.
Arion banki er með tangarhald á Högum. Bankinn á vitanlega að gera það eina rétta sem er að selja Haga í bútum í opnu söluferli.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Miðvikudagur, 20. janúar 2010
101 gegn landsbyggðinni
Ríkisstjórnin flytur kreppuna á landsbyggðina þegar hún efnir til ófriðar við sjómenn og útgerðir. Hrunið var hannað og hrint í framkvæmd í póstnúmeri 101 og kreppan í kjölfarið réttkennd við Reykjavík.
Með innköllun kvóta og afnáms sjómannaafsláttar er Kvosin að krefjast fórna á landsbyggðinni. Það er hvorki sanngjarnt né góð pólitík.
Flekaskil landsbyggðar og höfuðborgar er þekkt sprungusvæði í íslenskri pólitík. Kraftar sem þarna losna úr læðingi geta auðveldlega kollsteypt stjórnmálakerfinu.
Það eru spennandi tímar framundan.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 20. janúar 2010
Icesave-móðursýki
Gamall maður lyfjum háður brýndi fyrir konu sinni að segja já í þjóðaratkvæðinu um Icesave-frumvarpið, annars fengi hann ekki lyfin sín.
Ungur maður með starfstitilinn fjárfestir segir að hannyrðir og fornir búskaparhættir bíði okkar ef við höfnum Icesave 2.
Ungi maðurinn er viðskiptafélagi Björgólfs Thors sem ásamt föður sínum er helsti ábyrgðarmaðurinn á Icesaveskuldum þjóðarinnar.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 19. janúar 2010
Tímabært að selja ríkisflugfélagið
Icelandair á að selja í opnu útboði og færi það til útlendinga enda engir peningar til hérlendis í rekstur af þessu tagi. Margir í útlöndum kunna að reka flugfélög og það er eðli sínu alþjóðlegur rekstur.
Viðbótarhagur yrði af því að Icelandair er hlussa í innlendri ferðaþjónustu og kemur í veg fyrir eðlilega framþróun smárra og meðalstórra fyrirtækja. Við söluna væri hægt að brjóta upp einingarnar.
Ekki er eftir neinu að bíða, það á að selja Icelandair.
![]() |
Flugmenn undirbúa verkfall |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Þriðjudagur, 19. janúar 2010
Æskudýrkun í aðdraganda hruns
Undir lok síðustu aldar bar á æskudýrkun sem fjölmennu velferðarkynslóðirnar báru ábyrgð á. Til að auðvelda þeim frama var gerð krafa um að fólk hyrfi af vinnumarkaði þegar það yrði sjötugt. Í fjölmiðlum voru uppi sjónarmið um að fólk ætti erfitt að fá starf eftir fimmtugt, lítil eftirspurn væri eftir miðaldra fólki.
Þriðja flokks hugsuðir runnu á þefinn og nýttu sér eftir getu. Hallgrímur Helgason, síðar Baugsskáld, kvartaði undan því í ritdeildu við Þorgeir Þorgeirson rithöfund að unga fólkið nyti ekki sannmælis. Þorgeir hafði sagt Hallgrím ekta plast.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 19. janúar 2010
Spunafundir Samfylkingar
Samfylkingin ætlar að stela þjóðfundarhugmyndinni og nógu skilningssljó að halda að þýfið skemmist ekki þegar það fer úr höndum áhugamanna til spunakalla. Þjóðin þarf á samtali að halda en ekki undir formerkjum Samfylkingarinnar.
Samfylkingin hefur sýnt sig handónýta til að vera vettvangur umræðu. Flokkurinn er valdatæknisinnaður og gerir engan mun á umræðu og auglýsingaherferð.
Ferli ESB-málsins innan flokksins er dæmigert fyrir vinnubrögðin. Samfylkingin tók hugmyndina í arf frá Alþýðuflokki Jóns Baldvins Hannibalssonar sem fleytti henni úr þröngri stöðu við kosningarnar 1995 þegar Jóhanna Sig. var nýgengin úr flokknum til að stofna Þjóðvaka og ráðherra flokksins Guðmundur Árni Stefánsson varð að segja af sér.
Snillingunum í Samfylkingunni fannst sniðugt að hafa sérmál sem skilgreindi flokkinn frá öðrum og stukku á ESB-málið sem var þó allaf hægt að fórna í samningum. Til að fá lögmæti var veturinn 2002 efnt til umræðu hjá flokknum um ESB en þess vandlega gætt að flokksfélagar sem andsnúnir voru inngöngu fengu ekki að komast að í umræðunni.
Haustið 2002 var efnt til kosninga og spurningin gerð eins ógegnsæ og loðmulluleg og framast var unnt. Tilgangurinn var að breiða yfir andstöðuna sem var í flokknum gegn inngöngu.
Á það að vera stefna Samfylkingarinnar að Íslendingar skilgreini samningsmarkmið sín, fari fram á viðræður um aðild að Evrópusambandinu og að hugsanlegur samningur verði síðan lagður fyrir þjóðina til samþykktar eða synjunar?
Aðeins rúmlega 20 prósent flokksmanna tók þátt í kosningunni, 85 prósent sögðu já en 15 prósent nei. Á landsfundi ári síðar var gerð eftirfarandi samþykkt
Samfylkingin mun því stofna sérstakan 9 manna málefnahóp um Evrópumál sem m.a. skoði ávinning Íslands af aðild að Evrópusambandinu, skilgreini hver helstu samningsmarkmið eigi að vera við aðildarumsókn, meti stöðu EFTA og EES- samningsins og greini áhrif evrunnar á íslenskt efnahagslíf.
Jóhanna nokkur Sigurðardóttir var í þessari nefnd sem hefur aldrei komið saman svo vitað sé og ekkert liggur eftir.Orð eins og umræða, málefni og stefnumótun eru eins og hvert annað glingur í spunafabrikku Samfylkingar.
Samfylkingin gerði ESB-umsókn að aðalstefnumáli sínu vorið 2009 án þess að efna til þeirrar umræðu og málefnavinnu sem flokkurinn hafði sett sér á landsfundi.
Þjóðfundur í höndum Samfylkingar er eins og messuvín í munni róna, bara eitur.
![]() |
Fundir í öllum landshlutum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)