Múslímar svara skopi með skothríð

Það er leiður ávani múslíma að svara með skothríð þegar skopast er að trú þeirra með orðum og myndum. Trúarofbeldi múslíma ætlar ekki að linna og færast í aukana ef eitthvað er.

Líklega er besta svarið að opinberir aðilar, t.d. ríkisfjölmiðlar, í samvinnu við aðra miðla og áhugasamtök gangist fyrir skipulögðu háði að múslímatrú þar sem spámaðurinn og Kóraninn er teknir á beinið.

Ótækt er að gefa eftir gagnvart trúarofbeldi múslíma.

 


mbl.is Einn látinn eftir skotárásina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaupþing er líkið - dómurinn sýnir hverjir báru ábyrgð

Kaupþing varð gjaldþrota sökum þess að bankinn var illa rekinn af áhættusæknum mönnum sem fannst ekkert tiltökumál að ljúga og blekkja. Al Thani málið er afmarkaður þáttur í hrunferli Kaupþings.

Kaupþingsmenn reyndu í aðdraganda hrunsins ýmsar kúnstir, t.d. að kaupa hollenska bankann NIBC en var vísað frá með tilheyrandi skaða á orðspori.

Kaupin á hollenska bankanum áttu að sýna Kaupþing sterkt á alþjóðavísu; sölufléttan með Al Thani var bragð til að fá Íslendinga að kaupa bréf í gjaldþrota banka.

Viðbrögð Kaupþingsmanna við dómi Hæstaréttar staðfesta það sem alþjóð er löngu ljóst: bankamennirnir íslensku eru jafn forhertir og þeir eru áhættusæknir. En það þýðir ekkert fyrir Kaupþingsmenn að þræta fyrir og þykjast kórdrengir. Líkið af bankanum öskrar á móti og krefst skýringa.

Réttarkerfið á Íslandi stóðst áraunina. Al Thani málið dregur þá til ábyrgðar, í afmörkuðum þætti, sem felldu Kaupþing með tilheyrandi tapi fyrir land og þjóð.

 


mbl.is Hrunmálin í nýju ljósi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sturlungatexti Einars Kára; skáldar landráð í munn forsætisráðherra

Einar Kárason rithöfundur leggur forsætisráðherra orð í munn og segir hann hafa sakað Steingrím J. Sigfússon um landráð.

Engar heimildir eru fyrir því að forsætisráðherra saki Steingrím J. um landráð.

Einar er skáld.


Auðmenn með feril úr Búnaðarbanka í Kaupþing

Kaupþingsmennirnir, sem fengu dóm í gær, eru ekki nýgræðingar í faginu. Einn stærsti eigandi Kaupþings, Ólafur Ólafsson, var aðalmaðurinn á bakvið kaup S-hópsins svokallaða á Búnaðarbankanum.

Þá átti að heita að þýski bankinn Hauck & Aufhäuser Privatbankiers KGaA væri aðili að kaupunum, en samkvæmt skýrslu alþingis var það til skrauts og engu haldbærari en viðskiptin við Al Thani síðar meir.

Auðmenn eins og Ólafur og félagar skópu þá ímynd að viðskipti þeirra væru hafin yfir lög og rétt. Dómur Hæstaréttar jarðar þá ímynd.


mbl.is Mikilvægt að ekki skapist friðhelgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland er réttarríki; sekir fá makleg málagjöld

Auðmenn geta ekki keypt sig frá réttvísinni, hvorki með brögðóttum lögmönnum né beinu eða óbeinu eignarhaldi á fjölmiðlum. Þetta er meginniðurstaða Al Thani-málsins.

Kaupþingsmenn brutu lög siðaðs samfélags og fá núna makleg málagjöld.

Ísland er betri staður að búa á eftir 12. febrúar 2015.

 


mbl.is Hæstiréttur leggur línurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Femínistum ratast satt orð í munn

Barneignir eru ekki mannréttindi, ekki fremur en það eru mannréttindi að vera yfir 1,80 á hæð. Þeir sem eru í þeirri stöðu að geta ekki fætt barn eiga möguleika á ættleiðingum.

Staðgöngumæðrun felur í sér lán eða leigu á æxlunarfærum kvenna og það er ekki löggjafans að heimila slíkt.

Aldrei þessu vant eru femínistar með hárrétta greiningu á brýnu samfélagsmáli.


mbl.is Barneignir ekki sjálfsögð mannréttindi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stríðsógnin hangir yfir Evrópu

Evrópusambandið og Bandaríkin sérstaklega eiga erfitt með að viðurkenna mistökin sem voru þegar þegar stefnan var tekin á útþenslu Nato í austurátt eftir fall kommúnismans á tíunda áratug síðustu aldar.

Með kommúnismanum féll ekki valdapólitík Evrópu, þótt sumir vestur í Washington virðast halda það.

Evrópusambandið (les: Frakkar og Þjóðverjar) verða að finna lausn á sambúðarvanda við Rússa sem tekur mið af gagnkvæmum öryggishagsmunum. Á meðan það er ekki gert hangir stríðsógnin yfir Evrópu.


mbl.is Skilyrði Rússa óásættanleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðræðið og Evrópusambandið er hvítt og svart

Öll stjórnarandstaðan á Ítalíu er á móti Evrópusambandinu og evrunni. Á Spáni er Podemos, systurflokkur gríska stjórnarflokksins Syriza, kominn í forystu og þar verða kosningar í nóvember í ár.

Stjórnmálaöfl sem draga til sín fylgi eru á móti Evrópusambandinu og evrunni sökum þess að lífskjör versna í jaðarríkjum ESB sem látin eru bera hitann og þugann af kostnaðinum við evru-samstarfið.

Almenningur styður til valda stjórnmálaflokka sem hafna efnahagsstefnu Evrópusambandins og gríska Syriza bandalagið er fyrirmynd. Elítan í Brussel má ekki til þess hugsa að Syriza heppnist að leiða Grikki út úr sjö ára kreppu, - hvort heldur innan eða utan evru-samstarfsins.

 


mbl.is Fyrsta árs nemi sem langar að gera hjartaaðgerð en kann það ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úkraína, Grikkland og lömuð Evrópa

Evrópusambandið stendur ráðþrota í tveim deilumálum sem yfirskyggja allt annað á alþjóðavettvangi: Úkraínudeilunni við Rússa annars vegar og hins vegar evru-deilunni við Grikki.

Evrópusambandið leitar á náðir Bandaríkjaforseta að þvinga Rússa að samningaborði vegna Úkraínudeilunnar. Bandaríkin bera raunar þunga ábyrgð á Úkraínudeilunni enda knúðu bandarískir hagsmunir á um að Úkraína sliti sig frá rússnesku forræði. Evrópusambandið spilaði með og ætlaði Úkraínu á sitt áhrifasvæði en á enga innistæðu fyrir slíkri stöðutöku í Austur-Evrópu, - sem berlega kom í ljós þegar Rússar tóku að vopna uppreisnarmenn gegn stjórninni í Kænugarði.

Í evru-deilunni vð Grikki er þrátefli milli Brussel og Grikkland. Grikkir hóta að leita á náðir Rússa ef þeir fá ekki afskrifaðar skuldir við ESB. Jeremy Warner á Telegraph telur þjarkið við Grikki ESB skeinuhættari en Úkraínu-deilan og segir líklegt að Bandaríkin verði að bjarga Evrópu í þriðja sinn á 100 árum - með vísun í fyrra og seinna stríð.

Annar Telegraph höfundur, Evans-Pritchard, segir Grikki jafnvel leita eftir stuðningi hjá Kínverjum, ef ESB-ríkin fallast ekki á afskriftir skulda.

Í báðum deilumálunum sýnir Evrópusambandið sig vera risa á brauðfótum. ESB býr að ógnarsterkri stöðu sem kerfisveldi og framleiðir ógrynnin öll af lögum og reglugerðum. Slík pappírstígrisdýr duga skammt þegar á reynir, líkt og í Úkraínu og Grikklandi. 

 


mbl.is Obama hringdi í Pútín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Háværi minnihlutinn boðar uppnám

ESB-sinnar á Íslandi eru minnihlutahópur og hefur alltaf verið. En hópurinn er frekur og ósvífinn. Þegar færi gafst, þann 16. júlí 2009, þegar þjóðin var að sleikja sárin eftir hrun knúðu ESB-sinnar þingmenn Vg til að svíkja stefnu flokksins og nýgefin kosningaloforð.

Án umboðs frá þjóðinni og með beinum svikum á alþingi var ESB-umsóknin send til Brussel fyrir bráðum sex árum. Umsóknin strandaði á skeri áramótin 2012/2013 þegar vinstristjórn Jóhönnu Sig. hætti öllum tilraunum til að aðlaga Ísland að ESB, - sem er forsenda fyrir framgangi umsóknarinnar.

Þjóðin kaus andstæðinga ESB-aðildar til meirihluta á alþingi vorið 2013. Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur eru með skýra og ótvíræða stefnu um að afturkalla ESB-umsóknina.

Þegar til stendur að efna niðurstöður lýðræðislegra kosninga, þá boðar háværi minnihlutinn uppnám.

Í uppnáminu felst að taka alþingi í gíslingu málþófs. Ef við látum ESB-sinna ráða ferðinni þá er illa komið fyrir okkur.


mbl.is Færri andvígir inngöngu í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband