Fimmtudagur, 15. september 2016
Guðni og Jón reyna að kljúfa Framsókn
Guðni Ágústsson og Jón Sigurðsson voru formenn Framsóknarflokksins á niðurlægingarskeiðinu í kringum hrunið. Framsókn var þá áhrifalaus flokkur, hugmyndalaus og spilltur.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tók við formennsku 2009. Hann leiddi flokkinn til stórsigurs í kosningunum 2013 í krafti stefnumála sem fengu hljómgrunn meðal þjóðarinnar. Undir forystu Sigmundar Davíðs stefnu vinstriflokkanna um ónýta Ísland hnekkt og þjóðin fékk sjálfsvirðinguna á ný.
Ætla mætti að fyrrum formenn Framsóknarflokksins yrðu öðrum glaðari þegar svona vel gengur. En það er öðru nær. ESB-sinnin Jón Sigurðsson notar öll tækifæri að hælbíta Sigmund Davíð og Guðni Ágústsson gerist tilræðismaður sitjandi formanns.
Brölt þeirra félaga leiðir til klofnings í Framsóknarflokknum ef góðir menn og skynsamir taka ekki í taumana og afstýra stórslysi.
![]() |
Lilja íhugar varaformanninn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 14. september 2016
Bandalag vinstriflokkanna og Haga gegn landsbyggðinni
Auðhringurinn Hagar, sem stjórnar matvöruversluninni í landinu, og vinstriflokkarnir eru komnir í bandalag gegn landsbyggðinni. Forstjóri Haga vill þjóðaratkvæðagreiðslu um nýjan búvörusamning og formaður Samfylkingar vill stokka upp landbúnaðinn.
Vinstrimenn í Reykjavík 101 supu hveljur þegar nýr búvörusamningur var samþykktur á alþingi með atkvæðum og hjásetu þingmanna Vinstri grænna, Samfylkingar og Pírata.
Bandalag auðhringsins og vinstrimanna er talandi dæmi um hve víðsfjarri ráðandi öfl á vinstri kanti stjórnmálanna eru hagsmunum almennings. Hagar eru stórgróðafyrirtæki sem borgar starfsfólki sínu rúman þúsundkall á tímann og situr yfir hlut bænda og búaliðs. Vinstrimenn vilja meiri Haga og minna af íslenskum landbúnaði.
![]() |
Sigmundur undrast æsinginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 14. september 2016
Lýðræði Pírata er hjá sálfræðingi - vinstriflokkar gamla Íslands
Tveir Píratar af þrem voru í þinghúsinu þegar búvörulögin voru samþykkt. Píratarnir tveir, Helgi Hrafn og Ásta Guðrún, sátu hjá við atkvæðagreiðsluna félögum sínum til lítillar gleði.
Píratar styðjast við sálfræðing til að skilja stjórnmál. Engu að síður eru þeir með um 30 prósent fylgi í skoðanakönnunum.
Ástæðan fyrir því að Píratar eru jafn stórir í fylgismælinum og raun ber vitni er að vinstriflokkar ,,gamla Íslands", Samfylking, Vg og Björt framtíð, eru í andarslitrunum. Enginn annar valkostur en Píratar eru fyrir vinstrimenn.
Í kosningum í haust stendur þjóðin andspænis tveim kostum. Lýðræði hjá sálfræðingi annars vegar og hins vegar lýðræði stöðugleika og framfara.
![]() |
Lýðræðisbrestur með afgreiðslunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 14. september 2016
ESB í tilvistarkreppu - Evrópuher er svarið
Evrópusambandið er í tilvistarkreppu, segir Juncker forseti framkvæmdastjórnar ESB. Félagslegt óréttlæti, hátt atvinnuleysi, risavaxnar ríkisskuldir og flóttamannavandi grafa undan tiltrú almennings á ESB.
Juncker boðar stofnun Evrópuhers til að treysta samheldni aðildarríkja. Meiri og dýpri samvinna eftir úrsögn Breta er viðkvæði valdhafa í Brussel.
Stór-Evrópa með eigin her og sjálfstætt framkvæmdavald er svar ESB-sinna við sívaxandi óvinsældum. Næsta skref er að leita sér að óvini til að sameinast gegn. En fyrst þarf sem sagt Evrópuher.
![]() |
Bretar geta ekki valið úr að vild |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 14. september 2016
Sigmundur Davíð stendur með íslenskum hagsmunum
Sigmundur Davíð var leiðandi í baráttunni gegn Icesave-samningi ríkisstjórnar vinstriflokkanna, sem reyndu að flytja kröfur Breta og Hollendinga í þrotabú einkabanka yfir á íslenskan almenning.
Vinstriflokkarnir gáfu útlendingum tvo þriðju hluta íslenska bankakerfisins til að kaupa sér frið að geta komið Íslandi inn í Evrópusambandið.
Undir forystu Sigmundar Davíðs fékk Framsóknarflokkurinn forystuhlutverk í ríkisstjórninni sem tók við að stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna. Sigmundur Davíð var aðalhöfundur að þeirri stefnu að skattleggja þrotabú bankanna í samræmi við íslenska hagsmuni. Með því móti fékkst stöðuleikaframlag upp á 800 milljarða króna, að mati Seðlabankans.
Sigmundur Davíð varð skotspónn rætinnar áróðursherferðar RÚV þar sem leikreglum um sanngjarna málsmeðferð var snúið á hvolf.
Áður en Sigmundur Davíð kom til sögunnar var Framsóknarflokkurinn stefnulaust rekald sem skipti um formann á fárra missera fresti. Á þriggja ára tímabili, 2006 til 2009, sátu þau Jón Sigurðsson, Guðni Ágústsson og Valgerður Sverrisdóttir, yfir ruslahrúgu af flokki sem var markaður spillingu og himinhrópandi tækifærismennsku, ýmist með eða móti ESB-aðild. Með Sigmundi Davíð varð Framsóknarflokkurinn að lykilafli íslenskra stjórnmála.
Það væri þjóðarskömm að bola Sigmundi Davíð úr stjórnmálum. Skömm framsóknarmanna yrði mest.
![]() |
Styður Sigmund sem formann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 13. september 2016
Bjarni Ben í 5 sætið?
Sjálfstæðismenn ræða sín á milli hvort formaður flokksins eigi að rétta hlut kvenna í prófkjörinu í SV-kjördæmi og gefa eftir fyrsta sætið en setjast í það fimmta, sem er baráttusæti.
Prófkjörið er ekki bindandi enda innan við 50% þátttaka. Bryndís Haraldsdóttir hlaut 5 sætið í prófkjörinu.
Nokkur umræða er í flokknum eftir prófkjörið um hlut kvenna. Bjarni Ben. sagði sjálfur á prófkjörskvöldi að æskilegt væri bæta hlut kvenna í efstu sætum.
Foringinn skapar fordæmi.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 13. september 2016
Guðni er ekki stærri en Framsóknarflokkurinn
Tilraun Guðna Ágústsonar til skuggastjórnunar á Framsókn afhjúpar tvennt:
a. Guðni telur sjálfan sig stærri en Framsóknarflokkinn.
b. Sigurður Ingi er leiksoppur Guðna - ef hann tekur beituna og býður sig fram.
Guðni Ágústsson sér sjálfan sig sem ,,kingmaker" í Framsóknarflokknum en kemur fram sem tilræðismaður. Nokkur munur er á þessu tvennu.
![]() |
Gagnrýna ummæli Guðna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þriðjudagur, 13. september 2016
Rangt mat Guðna og léleg flétta
Guðni Ágústsson leggur rangt mat á stöðu mála með því að leggja til að Sigmundur Davíð víki ,,vegna óþægilegrar umræðu." Flóttamenn í pólitískri umræðu eru sjaldnast til stórræðanna.
Guðni tekur sér stöðu skuggastjórnanda Framsóknarflokksins með því að tefla fram fyrrum aðstoðarmanni sínum í formannsframboð. Aðstoðarmaðurinn segist aðeins fara í framboð til að veikja Sigmund Davíð, svo að Sigurður Ingi fái formennskuna.
Sigurður Ingi er góður maður en Sigmundur Davíð er yfirburðamaður. Gangi skuggastjórnun Guðna fram er búið í haginn fyrir Framsóknarflokkinn sem áhrifalausan jaðarflokk. Guðni ætti að hætta þessu brölti áður en frekari vandræði hljótast af - líkt og hann hætti við framboð sitt til borgarstjórnar Reykjavíkur á sínum tíma.
![]() |
Sigmundur Davíð víki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mánudagur, 12. september 2016
Vinstristjórnin gaf útlendingum bankana - til að liðka fyrir ESB-aðild
Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna vildi umfram allt gera Ísland að ESB-ríki. Til að tryggja hraðferð Íslands inn í sambandið var íslenskum hagsmunum fórnað miskunnarlaust, bæði í Icesave-deilunni og við endurreisn bankanna.
Ríkisstjórn Jóhönnu Sig. afhenti útlendingum bankana á silfurfati til að kaupa sér frið við að innlima Ísland inn í Evrópusambandið.
Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs tók við af Jóhönnustjórninni vorið 2013 og breytti um stefnu; tók íslenska hagsmuni fram yfir útlenda. Fyrsta stefnubreytingin var að aflýsa Brunsselferðalagi Samfylkingar og Vg. Næst var að koma böndum á bankakerfið, sem þegar var komið í hendur útlendinga að stórum hluta.
Við getum þakkað Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum að íslenskir hagsmunir voru settir í öndvegi fyrir þrem árum.
![]() |
Tugmilljarða meðgjöf með bönkunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Mánudagur, 12. september 2016
Hægrifemínismi - hver er hann?
Ef hugmyndir um framboð hægrikvenna verða að veruleika yrði það pólitísk framför. Hægrikonurnar yrðu að setja fram kvennapólitískan hægrivalkost og útskýra, bæði fyrir sjálfum sér og kjósendum, hvað hægrifemínismi stendur fyrir.
Við þekkjum vinstrifemínisma, sem stendur fyrir ríkisafskipti, fjölmenningu, forræðishyggju og karlfyrirlitningu.
En hvað er hægrifemínismi?
![]() |
Kvennaframboð í burðarliðnum? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)