Blađamenn: formađur skattsvikari, varaformađur sakborningur

Forysta Blađamannafélags Íslands brýtur blađ í 100 ára sögu verkalýđsfélaga hérlendis. Formađurinn, Sigríđur Dögg Auđunsdóttir, er skattsvikari og varaformađurinn, Ađalsteinn Kjartansson, er sakborningur í byrlunar- og símastuldsmálinu. Skötuhjúin ráku blađamann međ flekklausan feril, Hjálmar Jónsson, sem gegndi starfi framkvćmdastjóra. Forystutvíeyki stéttafélags međ ljót mál á sinni könnu vísa á dyr framkvćmdastjóra međ hreinan skjöld.

Tilfallandi blogg afhjúpađi formann Blađamannafélagsins í fyrravor. Í september játađi Sigríđur Dögg skattsvik. Eftir játningu í Facebook-fćrslu neitađi formađurinn ađ tjá sig um skattsvikin. Á formennskutíđ sinni hefur Sigríđur Dögg fordćmt ađ fólk í trúnađarstöđum komi sér hjá spurningum blađamanna um erfiđ mál. Tvöfalt siđgćđi í sinni tćrustu mynd. Hjálmar framkvćmdastjóri vakti máls á stöđu formannsins innan veggja blađamannafélagsins og var látinn taka pokann sinn.

Sigríđur Dögg leigđi út á Airbnb fjórar íbúđir á Suđurgötu 8 í miđborg Reykjavíkur. Samtals 8 svefnherbergi voru í íbúđunum fjórum međ svefnplássi fyrir 28 manns. Starfsemin á Suđurgötu líktist meira gistiheimilarekstri en íbúđaleigu. Heildarleiga fyrir sólarhringsleigu á íbúđunum, miđađ viđ fulla nýtingu, var um 1000 bandaríkjadalir eđa um 135 ţúsund krónur. Leigutekjur má áćtla ađ hafi veriđ um 4  milljónir kr. á mánuđi, 40 til 50 milljónir kr. á ári. Starfsemin var ólögleg og ekkert var gefiđ upp til skatts.

Brot Sigríđar Daggar er meiriháttar en hún hlaut sérmeđferđ hjá Skattinum, ađeins sekt en komst undan opinberri málshöfđun, sem margir ađrir í sambćrilegri stöđu máttu ţola.

Ađalsteinn Kjartansson varaformađur Blađamannafélags Íslands fékk stöđu sakbornings um miđjan febrúar 2022 í byrlunar- og símastuldsmálinu. Hann kom sér undan réttvísinni í hálft ár, mćtti ekki til yfirheyrslu fyrr en ágúst sama ár. Andlega veik eiginkona Páls skipstjóra Steingrímssonar byrlađi og stal síma skipstjórans í ţágu RSK-miđla, RÚV, Stundarinnar og Kjarnans. Áramótin 2022/2023 sameinuđust Kjarninn og Stundin undir merkjum Heimildarinnar.

Ađalsteinn hefur aldrei gert grein fyrir vitneskju sinni um máliđ. Aftur hefur hann stefnt tilfallandi bloggara fyrir ađ fjalla um málavöxtu og krefst 2 milljóna kr. í bćtur. Dómsmáliđ verđur tekiđ fyrir í hérađsdómi Reykjavíkur í byrjun nćsta mánađar.

Blađamenn RSK-miđla eru í meirihluta stjórnar Blađamannafélags Íslands. Stjórnin er sjö manna. Meirihlutann skipa, auk Sigríđar Daggar og Ađalsteins, ţau Stígur Helgason á RÚV og Bára Huld Beck á Heimildinni. Brottrekstur Hjálmars Jónssonar framkvćmdastjóra bar brátt ađ. Hann fékk ekki ađ gera stjórninni grein fyrir ágreiningi sínum og forystutvíeykisins. Hjálmari var gert ađ hćtta störfum samdćgurs.

Sigríđur Dögg og Ađalsteinn hlupu í felur í gćr, eftir ađ hafa rekiđ Hjálmar. Mannlíf fjallađi um máliđ og sagđi: ,,Hvorki náđist í Sigríđi Dögg né Ađalstein Kjartansson viđ vinnslu fréttarinnar." Forysta verkalýđsfélags blađamanna er á flótta undan eigin félagsmönnum sem skrifa fréttir um ráđsmennsku formanns og varaformanns, Sigríđar Daggar og Ađalsteins.

Öll ráđ stéttafélags blađamanna eru í höndum skattsvikara og sakbornings í alvarlegu refsimáli. Til skamms tíma töldu blađamenn sér til tekna ađ afhjúpa óheiđarleika og spillingu í samfélaginu. Nú gildir ađ flćma ţá úr starfi sem eru međ hreinan skjöld og starfa heiđarlega.


mbl.is Sagt upp eftir ágreining viđ formanninn
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ţćr eru nokkuđ samstíga stöllurnar nú ţegar Sigga Dögg hefur tileinkađ sér stjórnunarstíll Sólveigar í Eflingu. 

Ragnhildur Kolka, 11.1.2024 kl. 11:18

2 Smámynd: Sigurđur I B Guđmundsson

Ţú virđist sá einu sem ţorir ađ fjalla um ţessi mál, hvađ veldur??

Sigurđur I B Guđmundsson, 11.1.2024 kl. 13:54

3 Smámynd: Ingólfur Sigurđsson

Mér virđist ţú mćttir fá einhver verđlaun fyrir ţetta, en nú er forsetinn einmitt ađ verđlauna. Ţví miđur oft ađ verđlauna ranga ađila.

Ingólfur Sigurđsson, 11.1.2024 kl. 16:35

4 Smámynd: Grímur Kjartansson

Dropinn sem fyllti mćlirinn var ađ Sigríđur formađur heimtađi ađgengi ađ heimabanka félagsins
Hvernig er ţetta í öđrum félögum?
Hafa formenn ţar ađgengi ađ persónugreinanlegum upplýsingum um hverjir fá m.a. endurgreiddan sálfrćđikostnađ og annan 

Grímur Kjartansson, 11.1.2024 kl. 16:50

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband