Flóttamenn, hryðjuverk og heimska

Einn eða fleiri hryðjuverkmannanna í París kom nýverið sem flóttamður frá Sýrlandi, segir í Telegraph. Sama heimild upplýsir nafn eins morðingjans. Hann er múslímskur Frakki. Líkt og sálufélagi hans í Danmörku, sem myrti í nafni spámannsins, var sá franski smáglæpamaður í leit að tilgangi.

Múslímatrú veitir aðgengi að paradís ef maður drepur vantrúaða. Þetta stef er kyrjað í moskum víða um hinn vestræna heim undir merkjum trúfrelsis. Annað slagið munu illa gerðir einstaklingar falla fyrir trúarkreddunni og ná sér í paradísarvist.

Lærdómurinn sem við eigum að draga af múslímskum hryðjuverkum undanfarin hálfan annan áratug er eftirfarandi: múslímatrú er viðsjál. Við eigum ekki að búa til múslímska menningarkima á Íslandi. Það felur í sér að við tökum aðeins á móti þeim fjölda flóttamanna sem við treystum okkur til að aðlaga íslensku samfélagi. Sá fjöldi er mældur í fáeinum tugum. Annað væri heimska.

 


mbl.is Taka ætti vel á móti flóttafólki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Kæri Páll. Þú talar sem jafnan af skynsemi, eins og sést vel í þessum pistli.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 15.11.2015 kl. 14:34

2 Smámynd: Ármann Birgisson

Sammála Páll.

Ármann Birgisson, 15.11.2015 kl. 16:51

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Mál til komið að við skorum á Pál að gefa kost á sér í foretaembættið,haldi  Ólafur Ragnar ekki áfram. Þó finnst mér það ekki nægjanlega valdamikið,en til vara í stjórnmálaflokki sem vinnur fyrir Íslendinga. 

Helga Kristjánsdóttir, 15.11.2015 kl. 18:14

4 Smámynd: Jón Bjarni

Það er nú samt svo að múslimar bera ábyrgð á miklum minnihluta hryðjuverka í Evrópu og enn minni hlut í t.d. Bandaríkjnum. Flestir þeir sem stunda hryðjuverk eru aðskilnaðarsinnar. 

Jón Bjarni, 16.11.2015 kl. 00:26

5 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Jón Bjarni

Hver flaug nokkrum flugvélum inn í byggingar og annað í Bandaríkjum Ameríku 9. september 2001 til dæmis svo einungis ein dagsetning sé tekin ?

https://en.wikipedia.org/wiki/September_11_attacks

Þarna var tala fórnarlamba sem létu lífið 2.977 ef frá eru taldir 19 dauðir hryðjuverkamenn - múslimar óvart sennilega.

Þú ert ótrúlegur í málflutningi þínum almennt, en nú keyrir um þverbak.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 16.11.2015 kl. 08:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband