Pútín verđur fyrirmynd Ţjóđverja

Ţjóđverjar draga fram rauđa dregilinn fyrir Pútin Rússlandsforseta. Die Welt segir Pútin stofuhćfan á ný eftir ađ Bandaríkin og Evrópusambandiđ reyndu ađ gera Rússa ađ hornkerlingu vegna Úkraínudeilunnar.

Ástćđan fyrir stóraukinni velvild Ţjóđverja til Pútín er holskefla múslímskra flóttamanna sem skellur á meginlandi Evrópu frá miđ-austurlöndum, einkum Sýrlandi. Bandaríkin eru ađ stórum hluta ábyrg fyrir borgarastyrjöldinni í Sýrlandi og Írak,  sem er afleiđing af innrás Bandaríkjanna í Írak áriđ 2003.

Aukinn hernađarviđvera Rússa í Sýrlandi gefur evrópskum stjórnmálamönnum von um stöđugleika í ţessum heimshluta sem gćti dregiđ úr flóttamannastraumnum til Evrópu.

Eftir ţví sem vegur Pútín vex í Evrópu gćtir meiri tortryggni gagnvart Bandaríkjunum. Ekki ađeins klúđruđu Bandaríkin miđ-austurlöndum heldur líka Úkraínu-málinu. Bandaríkin keyrđu áfram ţá ţróun ađ Úkraína yrđi Nató-land sem fyrst - en rákust ţar á rússneskan vegg. Í framhaldi var búiđ til lítt ígrundađ viđskiptabann á Rússa, sem smáríki eins og Ísland bera hitann og ţungann af.

Nćstu nágrannar Rússa í Evrópu, til dćmis Eystrassaltsríkin, eru ekki alltof kát međ vaxandi pólitískan styrk Pútíns og Rússa. Greinendur međ ţann bakgrunn leggja áherslu á hve hćttulegt ţađ er bandarískum og evrópskum hagsmunum ađ Rússar styrkist.

Tilraunir til ađ setja ,,rétt" sjónarhorn á fyrirćtlanir Rússa í Sýrlandi leiđa til skrítinna fyrirsagna, eins og Rússar gćtu hjálpađ Ríki íslams ćtlunarverk sitt, ađ stofna kalífadćmi, međ ţví ađ styđja Assad Sýrlandsforseta, sem er svarinn andstćđingur Ríkis íslam.

Í stóra samhenginu er lykillinn ađ öflugri Pútín veik og sjálfri sér sundurţykk Evrópa annars vegar og hins vegar ráđleysi Bandaríkjanna í alţjóđamálum.


mbl.is Hafa fariđ eftirlitsflug yfir Sýrland
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband