Valkostir múslíma; veraldlegt einræði eða öfgaríki á trúarforsendum

Valkostir múslíma í mið-austurlöndum standa á milli veraldlegs einræðis, af gerðinni Assad Sýrlandsforseta, eða trúarofstæki eins Ríki íslams býður upp á. Í sumum múslímaríkjum, til dæmis Saudi-Arabíu, sameinast trúarofstæki og veraldlegt einræði.

Vesturlönd vilja ekki skilja stöðu mála í ríkjum múslíma. Vesturlönd bíða eftir hófsömum múslímum sem boða vestrænt lýðræði og mannréttindi. Engin slík hreyfing er á meðal múslíma. Í mannréttindum og lýðræði eru múslímar nær miðöldum en nútíma.

Múslímaríki skrifa ekki upp á mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna. Sérstök samþykkt múslímaríkja, kennd við Kairó, beinlínis setur konur skör lægra en karlmenn. Trúarsetningar kóransins eru teknar upp í Kairó-yfirlýsingunni sem undirstrikar andstyggð múslíma á rétti annarra en þeirra sem fylgja spámanninum.

Vesturlönd munu ekki ná neinum árangri í mið-austurlöndum nema þau skilji hvað við er að etja.


mbl.is Rússar vilja viðræður um Sýrland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Tvær síðustu greinar Kairó samþyktarinnar eru í raun einu greinarnar sem máli skipta. Allt sem þar á undan er ritað fellur um sjálft sig víð þessar tvær greinar:

ARTICLE 24:

All the rights and freedoms stipulated in this Declaration are subject to the Islamic Shari'ah.

ARTICLE 25:

The Islamic Shari'ah is the only source of reference for the explanation or clarification of any of the articles of this Declaration

Gunnar Heiðarsson, 17.9.2015 kl. 09:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband