Össur afneitar rökum, boðar uppþot

Stjórnmálamenn eru á framfæri almennings til að standa fyrir pólitískri umræðu. Hornsteinn lýðræðis er rökleg umræða sem leið skal fram bestu kostina í hverju máli. Lítið álit þjóðarinnar á stjórnmálamönnum stafar af vangetu þeirra í umræðunni og ofurkapp á leiðindi.

Össur Skarphéðinsson gengur öðrum stjórnmálamönnum framar í viðleiti að gera stjórnmál að sirkus.

Össur boðar skýrt og skilmerkilega að hann ætlar ekki að ræða með rökum boðaða þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um afturköllun ESB-umsóknar, sem vel að merkja, var send til Brussel án þjóðaratkvæðagreiðslu.

Tillögunni verður mætt með ,,mætt með eldi og brennisteini" segir Össur og boðar þar með málþóf á þingi og mótmæli á Austurvelli. Þá er sjá hve margir hlýða kallinu að draga stjórnmálin í svaðið með Össuri og kó. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Já kæri Páll.

Dr. Össur a.k.a. Skeggi , virðist ekki ganga heill til skógar ef marka má þessar yfirlýsingar sem og fyrri skrif almennt um málið, sem og ótal önnur.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 10.2.2015 kl. 10:41

2 Smámynd: Skeggi Skaftason

Er ekki Dr. Össur bara að gera nákvæmlega það sem flokkur utanríkisráðherra vill?!  Þeim veitir ekki af smá hitaumræðu, svona til að þétta raðirnar sín megin. Þetta dregur athyglina frá algjöru stefnuleysi stjórnvalda í peningamálum og framtíðar fyrirkomulagi gjaldmiðils Íslands.

Eða hvaða rökum er annars verið að afneita?  Hafa komið fram einhver RÖK frá stjórninni, fyrir því að henda þessari umsókn á haugana, í stað þess að geyma hana áfram EF á næstu kjörtímabilum myndast skýr meirihluti fyrir því að ljúka viðræðum, og setja málið í þjóðaratkvæði?

Hvað er það sem Framsókn óttast? Vilja þau ekki bara teygja völd sín eins og þau geta inn í framtíðina, og taka fram fyrir hendur á næstu ríkisstjórnum og kjósendum.

Skeggi Skaftason, 10.2.2015 kl. 11:56

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það er sama hvaða hneisu Samfylkingin bíður í kosningum, alltaf skal hún vilja taka ráðin af öðrum, sem sitja í ríkisstjórn!

    • Undir árslok 2008 lýsti Ingibjörg Sólrún, svilkona Össurar, sem hafði haft betur en hann i formannskjöri í Samfylkingunni, að væntanlegur landsfundur Sjálfstæðisflokksins ætti að kjósa með ESB-aðild – "ella verða stjórnarslit"! Þannig var reynt að stýra ekki einungis með forræðishyggju yfir öðrum, heldur með beinum hótunum til að fylgja henni eftir.

    • Í stjórnarmyndunarviðræðum Samfylkingar og Vinstri grænna 2009 gerði fyrrnefndi flokkurinn það að skilyrði stjórnarsetu, að VG tæki þátt í umsókn um inngöngu í Evrópusambandið þrátt fyrir eindregna sannfæringu flestra þingmanna þar gegn þessu og þrátt fyrir hátíðlegar yfirlýsingar Steingríms J. alveg fram að kosningadegi um að VG væri sá flokkur, sem harðastur væri á móti því að fara inn í Evrópusambandið! (og fekk fjölda atkvæða út á það). Þessum svikum flokksleiðtoga var fylgt eftir með þvingunum við ýmsa þingmenn VG – Liljurnar báðar grættar og kosið þvert gegn yfirlýstri sannfæringu, jafnvel þegar fólk eins og Svandís Svavarsdóttir gerði grein fyrir atkvæði sínu, eins og berlega kom fram þá í orðum hennar, rétt eins og Álfheiðar Ingadóttur o.fl.

    • Samfylkingin beið afhroð í kosningunum 2013, missti 56,7% kjörfylgis síns frá 2013 og sat uppi með einber 12,9%, rúmlega áttunda hvert atkvæði! "Stóri" jafnaðarmannaflokkurinn fekk þar sína vrðskulduðu refsingu fyrir sín illu þingmál, Icesave og svik við "skjaldborgina". Samt sem áður boðar Össur Skarphéðinsson, alræmdur stjórnarskrárbrjótur (sjá HÉR, II. kafla), nú fullum fetum "eld og brennistein" gegn löglega kjörnum stjórnvöldum ef eða þegar núverandi ríkisstjórn leggur fram tillögu sína um að afturkalla umsóknina um inngöngu í Evrópusambandið. Þó eru ríkisstjórnarflokkarnir þar að fylgja eftir formlegum samþykktum sinna flokksþinga. En áfram er það þessi valdfreka Samfylking sem vill fá að ráða – nú í krafti síns 12,9% kjörfylgis!

    Augljóst er, að einarðir menn verða að hrinda þessari ofríkis-árás þess Samfylkingarbrodds sem nú boðar grímulaust ofríki og að því er virðist ofbeldi gegn stjórnvöldum.

    PS. Sumir telja umsóknina ganga út á að "kíkja í pakkann", en ...

    Norðmenn hafa tvívegis "kíkt í pakkann" með mikilli fyrirhöfn, þekkja hann betur en við, en 70% þeirra vilja ekki í ESB, aðeins 20% vilja inn! Og aðeins 32% íbúa ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins bera traust til sam­bands­ins skv. skoðana­könn­un sem gerð var á veg­um þess sjálfs, en 59% treysta Evr­ópu­sam­band­inu ekki.

    Jón Valur Jensson, 10.2.2015 kl. 12:38

    4 Smámynd: Jón Valur Jensson

    Hér átti að standa:

    Samfylkingin beið afhroð í kosningunum 2013, missti 56,7% kjörfylgis síns frá 2009 ...

    Svo má benda á þetta: "Ný skoðanakönnun meðal aðildarfyrirtækja í Félagi atvinnurekenda sýnir að aðeins 39% svarenda telja að taka ætti upp evru hér á landi en 40% eru því andvíg. Hlutfallið var 58 % með og 28% á móti fyrir ári síðan." (Jón Bjarnason, fv. ráðherra, ritaði, ––> (smellið):

    Atvinnurekendur hafa minnkandi trú á Evru og andvígir aðild að ESB

    Jón Valur Jensson, 10.2.2015 kl. 12:45

    5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

    Vorum við ekki að lesa nýlega og haft eftir Össuri,að best væri að segja "ruglunni" (les.esb) upp? Alla vega fylgdi fréttinni linkur sem vísaði til þess.--Einhver misskilningur??

    Helga Kristjánsdóttir, 10.2.2015 kl. 13:14

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband