ESB ætlar að stjórna landamæravörslu

Evrópusambandið hyggst breyta löggjöf sambandsins til að koma í veg fyrir að einstök aðildarríki geti ákveðið landamæravörslu upp á eigin spýtur. Í Dagens næringsliv er sagt frá tillögu framkvæmdastjórnarinnar sem lögð verður fram í haust.

Danir tóku í vor upp landamæravörslu við Þýskalands í framhaldi af óværu sem fylgdi þjófahópum frá Austur-Evrópu er gerðu strandhögg í Danaveldi í skjóli opinna landamæra Evrópusambandsins.

Framkvæmdastjórninni í Brussel mislíkaði þjófavörn Dana og hyggst tryggja sér valdheimildir sem nægja til yfirráða yfir landamæravörslu aðildarríkja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú, er þetta mafíustríð? Mafían í Vestur-Evrópu að verja sitt svæði?

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 6.9.2011 kl. 08:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband