Dagur B: Samfylkingin ónýtt vörumerki

Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson borgarstjóra, er efins að hann bjóði sig fram undir merkjum Samfylkingar.

Samfylkingin, sem ítrekað mælist með minna en tíu prósent fylgi, er ekki líkleg til að rétta úr kútnum þegar oddvitar flokksins veigra sér við að kenna sig við flokksnafnið.

Líkur aukast á því að Samfylkingin verður lögð niður fyrir næsta vetur.


Ísland best fyrir konur á vinnumarkaði

Tímaritið Economist segir hvergi betra í heiminum að vera kona á vinnumarkaði en einmitt á Íslandi.

Á eftir okkur koma önnur Norðurlönd.

Vel gert.


Ódýr matur, ódýrt vinnuafl - ódýrt ASÍ

Alþýðusam band Íslands í félagi við vini sína og samherja í fákeppnisversluninni Bónus/Hagkaup, sem alþjóð veit að stunda hækkun í hafi, berst fyrir innflutningi á ódýrum matvælum.

Forsætisráðherra bendir á að rökleg afleiðing af stefnu ASÍ sé að ódýrt vinnuafl verði flutt til landsins enda engin rök fyrir því að löggjafi og ríkisvald hamli eðlilegri samkeppni á því sviði. Það er til heimsmarkaðsverð á vinnuafli, rétt eins og á matvælum.

Ódýrt erlent vinnuafl myndi vitanlega lækka laun félagsmanna ASÍ. En það væri líka hægt að lækka verðið á matvælum. Eða öllu heldur: fákeppnisverslunin Bónus/Hagkaup gæti grætt svolítið meira.


mbl.is „Snýst um að verja samvinnu stétta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. mars 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband