Helgi pírati: pólitík án deilna

Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata biður um pólitík án deilna í afsökunarbeiðni sinni til Birgittu Jónsdóttur.

Ég hef líka stund­um farið óvar­lega með vald sjálf­ur og vil endi­lega að við höld­um þeirri umræðu áfram, en þá frek­ar í góðu rúmi þar sem við get­um tekið málið fyr­ir með sem minnstri hættu á deil­um.

Segir Helgi. Pólitík án deilna er svolítið eins og eggjakaka án eggja. Þar sem engar deilur eru ríkir ein skoðun.

Samfélagið sem Píratar stefna að er ekkert sérlega viðkunnanlegt.


mbl.is Helgi Hrafn biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Píratar: valdaflokkur eða mótmælahreyfing?

Deilur Birgittu Jónsdóttur og Helga Hrafns Gunnarssonar, þingmanna Pírata, snúast um það hvort flokkurinn eigi að vera hluti af pólitíska kerfinu eða standa utan við það sem mótmælahreyfing.

Krafa Birgittu um stutt kjörtímabil og þjóðaratkvæði um stjórnarskrá og ESB-umsókn er óraunsæ og fær aldrei framgang í eðlilegu árferði. Helgi vill gera Pírata stjórntæka og laga sig að pólitíska kerfinu.

Lífdagar Pírata verða lengri ef þeir fylgja Birgittu. Á hinn bóginn gætu þeir haft meiri áhrif á landsstjórnina ef Helgi Hrafn verður ofan á. En mótmælahreyfing, eins og Píratar eru að stofni, verður aldrei langlíf þegar hún gengur málamiðlun valdanna á hönd.


mbl.is Sakar Helga um rangfærslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. febrúar 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband