Egill jarðar samfylkingar-greiningu Þorsteins

Hægt en örugglega rennur upp fyrir ESB-sinnum hversu gjörtöpuð pólitísk staða þeirra er hér á landi. Sjálfur ESB-flokkur Íslands, Samfylking, er pólitískt rekald en fylgið yfirgefur í hrönnum og flokksmenn fylgja á eftir.

Þorsteinn Pálsson og Benedikt Jóhannesson sitja uppi með andvana fæddan flokk, Viðreisn, sem átti að sækja fram undir merkjum ESB frá hægri.

Þorsteinn grætur eymd Samfylkingar og segir mistök að Árni Páll leitaði ekki nóg til hægri. Sannleikur málsins er sá að hvorki er stuðningur við ESB-aðild til hægri né vinstri og ekki heldur á miðjunni.

Egill Helgason, sem er yfirlýstur ESB-sinni, nennir ekki að flagga lengur ruglinu með Þorsteini og félögum og jarðar kjánaskapinn.


Flótti í forystu Samfylkingar, dauðakippir

Varaformaður Samfylkingar hættir í stjórnmálum og formaður flokksins er óviss hvort hann bjóði sig í fram á næsta landsfundi - sem gagngert er haldinn til að losna við formanninn. Enginn frambjóðandi er til formennsku í flokknum.

Samfylkingin mælist með fylgi undir tíu prósentum. Málið eins, ESB-umsóknin, er myllusteinn um háls flokksins.

Dauðakippir Samfylkingar gætu dregist fram á haust en varla lengur. Samfylkingin heldur landsfund til að ákveða að leggja sig niður - líkt og Alþýðuflokkur gerði rétt fyrir síðustu aldamót.


mbl.is Segir mikinn missi af Katrínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neikvæðir vextir og endalok peninga

Seðlabankar heims eru við það að setja neikvæða stýrivexti og sumir þegar komnir þangað, t.d. Svíar og Japanir. Tilgangurinn með neikvæðum stýrivöxtum er að fá viðskiptabanka til að lána peninga til hagkerfisins í stað þess að láta þá liggja hjá seðlabanka.

Gagnrýnendur segja að ástæðan fyrir því að bankar láni ekki sé sú að allof margar hindranir séu á efnahagslífinu. Það fái ekki að þróast samkvæmt markaðslögumálum vegna inngripa ríkisvaldsins, sem komi m.a. í veg fyrir gjaldþrot í nafni allsherjarhagsmuna. Það er stöðugt lengt í hengingarólinni með vafasömum fjármálatöfrum eins og peningaprentun. Á endanum þarf efnahagskerfið að hreinsa sig og afskrifa skuldir sem aldrei verða greiddar.

Einn vandi við neikvæða vexti er að þeir virka ekki að fullu þegar fólk getur tekið peninga út af bankareikningum sínum geymt heima - undir koddanum, ef ekki vill betur. Og fólk það mun fólk gera þegar viðskiptabankar bjóða ekki lengur vexti heldur taka gjald (með neikvæðum vöxtum) fyrir að geyma peninga fólks.

Lausn seðlabanka verður að afnema reiðufé. Gjaldmiðlar verða eingöngu til í rafrænu formi og seðlabankar geta hækkað og lækkað verðmæti þeirra í takt við efnahagslegar aðstæður. Seðlabankar eru á hinn bóginn ekki alvitrir og gera mistök. Þau mistök verða afdrifaríkari í hlutfalli við aukið vald þeirra.


Bloggfærslur 18. febrúar 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband