Þjóðverjar óttast að tapa réttarríkinu vegna múslíma

Hópárásir múslímskra karla á þýskar konur í Köln og fleiri borgum Þýskalands tröllríða fjölmiðlum þar í landi. Bæði ríkisstjórn Merkel og fjölmiðlar fá að heyra það óþvegið.

Fjölmiðlar reyndu skipulega að gera lítið úr þeirri staðreynd að árásarmennirnir voru múslímskir karlmenn. Jafnvel talsmenn ríkisstjórnarinnar tala um að fjölmiðlar hafi brugðist skyldu sinni og að logið að almenningi í nafni pólitísks rétttrúnaðar.

Í tilefni múslímsku hópárásanna  birta fjölmiðlar núna fréttir um að lögreglan treysti sér ekki til að halda uppi lögum og reglum á sumum svæðum þar sem múslímar eru fjölmennir. ,,Eru svæði í Þýskalandi handan laga og réttar," spyr FAZ í fyrirsögn.

Merkel kanslari er af fyrrum samstarfsmönnum í Frjálslyndum demókrötum sökuð um að steypa Þýskalandi og Evrópu í stjórnleysi með óábyrgri flóttamannastefnu.

Þjóðverjum er ekki um það gefið að missa tökin á lögum og rétti. Stjórnleysi er eitur í þeirra beinum. Hópárásir múslíma á nýársnótt á þýskar konur munu draga dilk á eftir sér.

 


mbl.is Olía á eld andstæðinga Merkel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Álfheiður, Jón Baldvin: ónýtir vinstriflokkar

Álfheiður Ingadóttir fyrrum ráðherra Vg og Jón Baldvin Hannibalsson fyrrum formaður Alþýðuflokksins eru sammála um að vinstriflokkarnir eru ónýtir.

Álfheiður óskar sér nýs Reykjavíkurlista vinstrimanna (líklega án Framsóknarflokks) en Jón Baldvin kýs sameiginlegt vinstraframboð um að færa völd frá stjórnmálamönnum til fólksins.

Kjarninn rekur ráðleggingar fyrrum ráðherra til starfandi stjórnmálamanna.


Vestrænar konur gangi með slæðu, séu í fylgd karlmanna

Í trúarmenningu múslíma er konan á forræði karlmanna. Samtök múslímaríkja, OIC, viðurkenna ekki mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem tryggir konum jafnrétti. Mannréttindi múslímaríkja eru skráð i Kaíró-yfirlýsingunni, en þar er karlinn beinlínis sagður bera ábyrgð á fjölskyldunni (grein 6).

Konur í múslímaríkjum í Norður-Afríku og miðausturlöndum eru á forræði feðra sinna þangað til þær eru gefnar öðrum karlmanni. Framkoma þeirra á að vera hlédræg og þær eiga að hylja sig, í það minnsta með slæðu. Utan dyra eiga konur að vera í fylgd karlmanna, þ.e. föður, bróður eða eiginmanns.

Ungu múslímarnir á lestartorginu í Köln vissu ábyggilega að aðrar reglur gilda um vestrænar konur en múslímskar. En þar sem þeir voru margir og í hátíðarskapi gátu þeir leyft sér að haga sér eins og heima hjá sér. Frakkar konur, sem hylja sig ekki og eru ekki í fylgd karlmanna á almannafæri, kalla yfir sig ágenga hegðum karla. 

Trúarmenning múslíma fóstrar hugmyndir um að konan sé undirgefin karli. Vestrænar hugmyndir um sjálfstæði kvenna eru múslímum framandi.

Eftir hópárásir múslímskra karla á þýskar konur í Köln og Hamborg skrifaði fyrrum ráðherra fjölskyldumála Þýskalands, Kristina Schröder: ,,Lengi hefur verið reynt að þagga niður umræðuna um ofbeldishegðun karlmanna í trúarmenningu múslíma. Þessu þarf að breyta." Ummæli ráðherrans fyrrverandi eru endursögð í FAZ.

Hinn kosturinn er að vestrænar konur taki upp hætti múslímskra kvenna, gangi með slæðu og fari ekki út fyrir hússins dyr nema í fylgd karlmanns.


mbl.is „Ég krefst skýringa strax“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. janúar 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband