Trúarmenning, hatur og hryðjuverk

Hvers vegna sækja Ísraelsmenn ekki heim Þýskaland til að vega mann og annan á götum og torgum? Eða Rússar eða Pólverjar?  Allir þessir hópar eiga Þjóðverjum grátt að gjalda, sé horft til sögunnar. Hver vegna fara Serbar og Króatar ekki til Tyrklands í sjálfsmorðsleiðangra að hefna fyrir hersetu Tyrkja á öldum áður?

Á þessa leið spyr Torsten Krauel aðalálitsgjafi Die Welt. Múslímar eru sér á parti þegar kemur að morðæði gagnvart saklausum borgurum. Krauel beinir spjótum sínum að þeim sem réttlæta morð múslímskra hryðjuverkamanna með þeim rökum að vestrænar þjóðir hafi ,,kallað þetta yfir sig" vegna krossferðanna á 12. og 13. öld eða nýlendustefnu á þeirri 19.

Múslímsk trúarmenning, ólikt kristinni og gyðinglegri, boðar ofbeldi og dráp á ,,villutrúarmönnum." Í múslímskri trúarmenningu er útbreitt viðhorf að dauðrefsing skuli liggja við ef múslími gengur af trúnni.

Sannleikurinn er sá að múslímsk trúarmenning er sneisafull af andstyggð á vestrænum gildum og býður upp á fjölskrúðuga réttlætingu, t.d. ,,heilagt stríð", handa þeim sem drepa saklausa borgara nær og fjær í nafni hinnar ,,sönnu trúar."

Múslímsk hryðjuverk verða ekki skilin nema í samhengi við múslímska trúarmenningu. Til að takmarka þann skaða sem múslímsk trúarmenning veldur þarf hvorttveggja að draga fasísk einkenni hennar fram jafnframt því sem hamla þarf útbreiðslu þessarar hatursdýrkunar.

 


mbl.is Liðsmenn Ríkis íslams féllu í Raqqa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Of hátt sjálfsmat

Lágt sjálfsmat er reglulega til umræðu, eins og lesa má í viðtengdri frétt. Of hátt sjálfsmat er á hinn bóginn sjaldnar rætt. Möguleg skýring er að fólki með of hátt sjálfsmat er fjarska sátt við sig sjálft.

Fólk með of hátt sjálfsmat lítur svo á að það sé réttborðið til velsældar, velmegunar og áhrifa. Rétt skipulögð veröld snýst um þarfir, langanir og kenjar fólksins með of hátt sjálfsmat.

Ef fólk með of hátt sjálfsmat fær ekki sínu framgengt lítur það svo á að skipulega sé unnið gegn því með margvíslegu samsæri - það ríkir með öðrum orðum óréttlæti í heiminum. Við þær aðstæður krefst þetta fólk byltingar.

Fólk með of hátt sjálfsmat gerir fyrst og fremst kröfur til annarra en síðast til sjálfs sín. Það leggur lítið fram, hvorki efnislega né vitsmunalega, en er þó duglegt að bera fram aðfinnslur í garð annarra.

Einstaklingur með of hátt sjálfsmat lítur á samborgara sína sem verkfæri fremur en að þeir hafi sjálfstæðan tilgang.

(Ef einhver les úr ofanrituðu lýsingu á góða fólkinu þá er það alger misskilningur).

 

 

 


mbl.is Er barnið þitt með lágt sjálfsmat?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. desember 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband