Valdamiðstöðvar, þingmenn og uppreisn almennings

Þingmenn hér áður komu gjarnan úr viðurkenndum valdamiðstöðvum í samfélaginu, s.s. verkalýðshreyfingu, hagsmunasamtökum af ýmsu tagi, sveitastjórnum og tilteknum atvinnugreinum.

Stjórnmálaflokkar, sem voru valdamiðstöðvar á eigin forsendum, gátu búið til framboðslista í því skyni að höfða til sem breiðasta hóps kjósenda.

Opin prófkjör stjórnmálaflokka breyttu vali á frambjóðendum. Peningar, saumaklúbbar og íþróttafélög fengu meira vægi en áður.

Við hrunið fengu bæði sitjandi þingmenn, starfandi stjórnmálaflokkar og þekktar valdamiðstöðvar slæmt orð á sig.

Almenningur gerði uppreisn, kaus Jón Gnarr í Reykjavík og veitir Pírötum brautargengi í skoðanakönnunum.

Uppreisn almennings er hvorki langvinn né róttæk. Jón Gnarr fékk stuðning í eitt kjörtímabil og Píratar fá ekki skoðanakönnunarfylgi í kosningum.

Uppreisn almennings beinist gegn stjórnmálakerfi sem virðist ekki virka. Það er sitjandi þingmanna, einkum stjórnarþingmanna, að sýna fram á að kerfið virki.

 


mbl.is Mikið af lélegum þingmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonska, völd og stöðugleiki

Völd eru yfirráð einhverra yfir einhverjum. Lögmæt völd eru þar sem þeir valdbeittu viðurkenna stöðu sína. Viðurkenningin kemur fram í öðru tveggja, að viðvarandi valdhöfum (einvöldum konungum, einræðisherrum eða valdaflokkum)sé leyft að fara sínu fram ómótmælt eða að samkomulag sé um hvernig valdaskipti fara fram, samanber lýðræðisfyrirkomulag vestrænna ríkja.

Viðvarandi valdhafar tíðkast í öllum ríkjum nema lýðræðisríkjum. Sum ríki, t.d. Rússland, eru á mörkunum. Sami valdhafinn, Pútín forseti, situr varanlega þrátt fyrir kosningar.

Í ríkjum araba sátu til skamms tíma viðvarandi valdhafar. Menn eins og Gadaffi í Líbýu, Assad í Sýrlandi og Hussein í Írak. Í nær öllum tilvikum viðvarandi valdhafa styðjast þeir við vonsku af einhverju tagi, s.s. kúgun, mannréttindabrotum og oft pyntingum og morðum.

Stöðugleiki er forsenda viðvarandi valdhafa. Án stöðugleika eiga viðvarandi valdhafar á hættu að missa völdin. Stöðugleikinn er keyptur verði vonskunnar.

Stöðugleiki með vonsku er skárri kostur en óstöðugleiki og enn meiri vonska, eins og raunin hefur orðið á í Líbýu, Írak og Sýrlandi eftir að Bandaríkin og vestræn ríki ákváðu að steypa af stóli viðvarandi valdhöfum í þessum ríkjum.

Hilary Clinton, forsetaframbjóðandi og fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna, réttlætti í sjónvarpskappræðum afsetningu Gadaffi í Líbýu með þeim orðum að hann hefði framið grimmdarverk á eigin fólki.

Clinton þykir ekki haukur í utanríkismálum heldur hófsöm. Hún telst ekki heimsk, fremur skarpgreind. Engu að síður æpir nýliðin saga framan í hana þessari óhrekjanlegu staðreynd: viðvarandi valdhafar stjórna með vonsku. Valkosturinn við þá er óstöðugleiki og enn meiri vonska.


mbl.is Sanders bað Clinton afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. desember 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband