Björk leiði kosningabandalag Pírata og vinstriflokka

Píratar eru lykillinn að mögulegri vinstristjórn, segir Samfylkingar-Kjarninn í pólitískri fréttatilkynningu. Birgitta Jónsdóttir yrði á hinn bóginn kosningafæla og gæti ekki verið oddviti í slíku bandalagi.

Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna er með það gegn sér að hún er hluti flokkanna sem þjóðin hafnaði í síðustu kosningum og ekki tekið í sátt síðan.

Björk Guðmundsdóttir gefur til kynna að hún sé tilkippileg í pólitík og gæti orðið utanþingssamnefnari Pírata og vinstriflokka. Birgitta er einlægur aðdáandi Bjarkar og það er alltaf byrjun.


mbl.is „Gunnar Bragi frussaði í vandlætingu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stóra múslímastríðið - fyrsti þáttur, bandalög

Múslímar skiptast í tvær meginútgáfur: súnnítar og shítar. Sádi-Arabar líta á sig sem höfuðpostula súnna en Íran er aðalvígi shíta. Bandalag Sáda við Tyrki og fleiri þjóðir er ekki gegn hryðjuverkum Ríkis íslam, þeir eru líka súnnar, heldur gegn Íran.

Hryðjuverkahóparnir, sem dreifa úr sér í Sýrlandi og Írak, eru aðeins yfirskin hernaðaruppbyggingar fyrir stóra múslímastríðið sem mun setja mark sitt á mið-austurlönd um fyrirsjáanlega framtíð.

Herfræðingurinn Edward Luttwak þakkar það George W. Bush forseta Bandaríkjanna að hrinda úr vör stríði súnna og shíta, sem ,,mun vara í þúsund ár. Algjör snilld." Bush hóf Íraksstríðið árið 2003. Síðan er viðvarandi stríðsástand í heimshlutanum.

Líkt og í 30-ára stríðinu sem lagði Evrópu í rúst á 17. öld, einkum Þýskaland, eru trúarbrögð átakalínur yfirborðsins. Undirliggjandi er áskorun olíuríkjanna að eina náttúrulega auðlind þeirra verður æ verðminni. Loftslagsráðstefnan í París skrifaði dauðadóm jarðefnaeldsneytis.

Arabaríkin sem lifa á olíu verða umbyltingu að bráð. Stríð, eins og dæmin sanna, flýta fyrir umbyltingu. Þrjátíu ára stríðið í Evrópu bjó í haginn fyrir þjóðríkjaskipulagið og iðnbyltinga. Þegar rykið sest á vígvellina í mið-austurlöndum í stóra múslímastríðinu eru við öll dauð sem spáum í úrslitin á öðrum áratug 21stu aldar.

 


mbl.is Hernaðarbandalag 34 landa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nóttin geymir stjórnarandstöðuna best

Vel fer á því að málþóf stjórnarandstöðunnar standi yfir að næturlagi. Stjórnarandstaðan talar út í tómið, án stefnu eða málefna. Austurvöllur er tómur enda nenna aðgerðasinnar ekki lengur að púkka upp á hryggðarmyndina sem er minnihlutinn á alþingi.

Stjórnarandstaðan veit upp á sig skömmina. Í vöku leggur hún til að utanþingsstjórn bjargi stjórnarandstöðunni frá því að axla ábyrgð.

Stjórnarandstaðan á alþingi Íslendinga kjörtímabilið 2013-2107 er sú lánlausasta í sögunni.


mbl.is Fundað til þrjú í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. desember 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband