Árangursrík þöggun Baugsmiðla

Baugsmiðlum tókst að þagga stærsta fréttamálið á Íslandi á síðasta ári. Nálega helmingur þjóðarinnar telur að Baugsmálið hafði verið stærsta fréttamálið á Íslandi, samkvæmt skoðanakönnun. Umfjöllun fjölmiðla er í engu samræmi við mikilvægi málsins. Dagskrárvaldi Baugsmiðla, Fréttablaðinu, Stöð 2, DV og öðrum var beitt til að stýra umræðunni en mest til að þagga hana.

 

Ritstjórar og yfirmenn Baugsmiðla hljóta að fá Bónusgreiðslur fyrir árangurinn.


mbl.is Baugsmálið stærsta fréttamálið 2006 að mati almennings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Ingi Lýðsson

Í ljósi þessa er einkar athygli vert að að skoða síðustu 66 færslur þínar hér að blogginu.  Af þeim fjalla 20 meira og minna um Baug og meint ofurvald hans.

Þetta held ég að segi meir en margt annað um hvert sé mál ársins.  Þó held ég að enginn sé jafn heltekinn af Baugsáráttuþráyggjunni og þú Páll minn.  Það hlýtur að vera hægt að leita sér hjálpar við þessum fjanda

Sveinn Ingi Lýðsson, 8.1.2007 kl. 16:10

2 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Ekki nema 20 af 66? Er það ekki minna en þriðjungur Sveinn Ingi? Ég verð að herða mig og gera betur til að halda uppi merki Ekki-Baugsmiðla.

Páll Vilhjálmsson, 8.1.2007 kl. 16:54

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ég opna helst ekki munninn til annars en að hallmæla Baugi.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 9.1.2007 kl. 00:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband