Televideo ergo sum

Einn rústaði einbýlishúsi, annar ók á lögreglubíla og hurðir slökkviliðsins. Báðir eiga sameiginlegt að hafa gert ráðstafanir til að gjörðir þeirra yrðu festar á filmu. Hugsunin um að myndrænar aðgerðir þurfi í ofanálag að verða kvikmyndaðar vekur grun um að félagarnir nemi veruleikann á annan veg en fólk flest.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér þætti "Videor ergo sum" betri latína þar sem sá sem mælir sést af öðrum - það er ekki hann sem sér.

Myndi bara sleppa grískum forskeytum.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 23.6.2009 kl. 22:52

2 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Góð ábending Hans, og auðvitað á maður ekki að drabba í tungu sem maður kann ekki.

Páll Vilhjálmsson, 23.6.2009 kl. 22:58

3 identicon

Og vela að merkja.

Í hvorugu tilfellinu var um að ræða afleiðingar bankahrunsins. 

Sá með húsið farinn í þrot löngu áður en allt féll og sá á bílnum átti við annars konar vandamál að stríða sem eru ótengd öllum gjaldþrotum. 

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 24.6.2009 kl. 00:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband