Miðvikudagur, 1. október 2025
Kristrún setur ofan í við Þorgerði Katrínu
Kristrún forsætis segir undir rós að Þorgerður Katrín utanríkis ætti að ná stjórn á sér og láta ekki eins og himinn og jörð séu að farast þótt gári í heimspólitíkinni. ,,Mikilvægt að við höldum ró okkar," segir Kristrún.
Þorgerður Katrín missteig sig illilega þegar hún fyrir rúmri viku sagði bráðnauðsynlegt að kalla saman þjóðaröryggisráðið vegna dróna yfir Kastrup-flugvelli í Danmörku. En nauðsynin var þó ekki meiri svo að það mætti bíða heimkomu hennar eftir veisluhöld í New York. Þing og þjóð spurðu forviða hvort þjóðaröryggið færi eftir hvernig stæði með kokteilboð utanríkisráðherra.
Þorgerður Katrín á að heita reyndur stjórnmálamaður en gerir hvert axarskaftið á fætur öðru. Í mars gagnrýndi hún Bandaríkin fyrir áhuga á Grænlandi og tók afstöðu með nýlenduveldi Dana. Afstaða utanríkisráðherra leiddi til þess að Ísland var sett í skammarkrókinn í samningaviðræðum um tollamál.
Utanríkisráherra böðlast áfram með þá stefnu að Ísland verði ESB-ríki án þess að hafa til þess umboð frá kjósendum. Hingað til hefur Samfylkingin látið sér það vel líka. Stefna Viðreisnar, þar sem Þorgerður Katrín er formaður, setur í uppnám varnarsamninginn við Bandaríkin frá 1951, sem hefur verið hornsteinn öryggis- og varnarmálastefnu landsins frá miðri síðustu öld. Í sumar kom forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Úrsúla von der Leyen, í heimsókn til Íslands og gaf tóninn um nýjar Viðreisnaráherslur í öryggis og varnarmálum Íslendinga:
Ísland fer með lykilhlutverk í viðbúnaði Nató á norðurslóðum og Norður-Atlantshafi. Ísland er sterkur og áreiðanlegur bandamaður. [...] Ég er ánægð með að viðræður eru hafnar um aðild Ísland að öryggis- og varnarsamvinnu ESB. Ég er viss um að viðræðum verði lokið innan fárra vikna eða mánaða. Þær munu skila Íslandi inn í öryggis- og varnarsamstarf Evrópusambandsins.
Bandaríkin eiga ekki aðild að öryggis og varnarsamvinnu Evrópusambandsins. Samvinnan er alfarið á forræði Evrópusambandsins og er viðbragð við minnkandi umsvifum Bandaríkjahers á meginlandi Evrópu. Með því að véla Ísland inn í öryggis- og varnarstefnu Evrópusambandsins veikist samstarfið við Bandaríkin. Með framgöngu sinni grefur Þorgerður Katrín undan varnarsáttmála Íslands og Bandaríkjanna frá 1951 eins og tifallandi útskýrði.
Kristrún forsætis er langþreytt á einleik Þorgerðar Katrínar í utanríkismálum. Menn þurfa að nálgast stóru málin án hamagangs og umfram allt edrú.
![]() |
Mikilvægt að við höldum ró okkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning