Mánudagur, 15. september 2025
Alma ráðherra ræðir geðhjálp fyrir trans
Þeir sem telja sig í röngum líkama þurfa víðtæka geðhjálp, skrifar Alma Möller læknir og heilbrigðisráðherra. Þegar um börn er að ræða er nálgunin eftirfarandi:
Þjónustan snýst um að veita börnunum öruggt skjól til þess að kynnast kynvitund sinni. Áhersla er á að efla geðheilsu hópsins og styrkja sjálfsmyndina auk þess sem sálfélagslegri meðferð er sinnt.
Venjulegt fólk gengur að meðvitund sinni vísri og þarf hvorki sérrými né aðstoð geðlæknis. Það er ekki til neitt sem heitir ,,frumuvitund" þótt líkaminn sé gerður úr frumum. Hugtakið ,,kynvitund" er úr transfræðum og er merkingarlaust, alveg eins og ,,frumuvitund."
En meðvitund hafa allir. Þeir sem glíma við ranghugmyndir á alvarlegu stigi þurfa geðhjálp, líkt og Alma útskýrir. Markmiðið, segir ráðherra, er að ,,styrkja sjálfsmyndina."
Milljón króna spurningin er þessi: hvaða sjálfsmynd er styrkt?
Er það ranghugmyndin að hægt sé að fæðast í röngum líkama?
Er það ranghugmyndin að til séu fleiri en tvö kyn?
Eða er sjúklingum kennt að sé líkaminn í lagi þá er eitthvað í ólagi með meðvitundina sem hafnar líkama sínum?
Hugtakið ,,sjálfsmynd" er miðlægt. Allir hafa sjálfsmynd en enginn getur útskýrt sína sjálfsmynd til hlítar. Einfaldlega vegna þess að myndin af sjálfinu er aldrei fastmótuð í eitt skipti fyrir öll. Sjálfsmynd breytist og þróast með þroska. Enginn hefur sömu sjálfsmynd fimm ára, tvítugur og sextugur.
Líkami og hugsun er ekki sami hluturinn (hjákátlegt að þurfa taka þetta fram). Líkami er efnislegur en hugsun óefnisleg. Maður getur hugsað sig þetta og hitt, t.d. að vera flinkari í fótbolta en Ronaldo og Messi til samans, en veit innra með sér að það er þvættingur. Dagdraumar eru hluti af sjálfinu. Allur þorri manna kann skilin á milli dagdrauma og reyndar.
Ef sjálfsmynd er verulega á skjön við líkama meðvitundarinnar þarf einstaklingurinn geðhjálp. Ekki skurðaðgerð til að fjarlæga heilbrigða líkamshluta sem ranghugmynd meðvitundarinnar hafnar. Meðferðin á að beinast að meðvitundinni ekki heilbrigðum líkama.
Alma ráðherra og fyrrum landlæknir gefur frá sér læknisfræði og dómgreind þegar hún skrifar að sumir
upplifa misræmi milli kynvitundar og þess kyns sem þeim var úthlutað við fæðingu.
Úthlutun á kyni fer ekki fram við fæðingu. Ekki frekar en að lífi sé úthlutað við fæðingu. Barn einfaldlega fæðist og er af öðru hvoru kyninu, meybarn eða sveinbarn. Ekkert barn fæðist af seytjánda kyni eða fertugasta. Í algjörum undantekningatilfellum er nýburi með óræð kyneinkenni. Alveg eins og fáeinir nýburar eru með hryggskekkju eða önnur líffræðileg frávik. En við tölum ekki um hryggskekkjukynið.
Óviðkunnanlegt, svo ekki sé meira sagt, er þegar yfirvald eins og ráðherra talar um ,,úthlutun" kyns við fæðingu. Sjúkrahús eru ríkisrekin hér á landi og flestar fæðingar eru á sjúkrastofnunum. Alma lætur að því liggja að ríkið ,,úthluti" kyni þegar nýburi kemur í heiminn. Nei, Alma, ríkið úthlutar kennitölum en ekki kyni. Náttúran þarf ekki aðstoð íslenska ríkisins. Heilbrigðisráðherra mun skilja enska tungu, ólíkt sumum meðráðherrum. Líffræðingurinn Richard Dawkins útskýrir á hversdagsensku muninn á karlkyni og kvenkyni í náttúrunni, sem virðist fyrrum landlækni ráðgáta.
Í lok greinar sinnar á Vísi viðurkennir Alma að hún er sem stjórnmálamaður fangi transhugmyndafræðinnar. Hún skrifar:
Kæra trans fólk. Standið keik. Við í ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur stöndum með ykkur.
Þarna talar pólitíkus en hvorki læknir né einstaklingur með dómgreindina óskerta. Alma segir í upphafi greinarinnar að transfólk þurfi víðtæka geðhjálp vegna ranghugmynda um lífsins grunnsannindi. Í lok greinar er transið orðið heilbrigðið uppmálað og eftirsóknarvert eftir því. Hér verður ekki bæði sleppt og haldið. Ef trans er heilbrigt ástand þarf enga geðhjálp. En Alma ráðherra segir að transið þurfi geðheilbrigðisteymi til að halda utan um ástand sitt. Transfólk getur ekki staðið ,,keikt" á eigin fótum. Transið þarf víðtæka heilbrigðisþjónustu enda í lífsnauð sökum ranghugmynda.
Kyndugt er að ráðherra í ríkisstjórn Íslands, heilbrigðisráðherra í ofanálag, lýsi opinberalega yfir að stefnan sé að fjölga þeim landsmönnum sem þurfa á langvinnri geðlæknaþjónustu að halda. Alma og ríkisstjórnin senda Samtökin 78 í leik- og grunnskóla landsins til að segja saklausum börnum að þau séu í röngum líkama. Afleiðingin er að sum börn útskrifist úr skóla inn á transdeild Landsspítalans. Er til ljótari uppeldisfræði?
Athugasemdir
Sjálfur er ég gangkynhneigður
og andvígur öllum útgáfum af kynja-ruglingi.
--------------------------------------------------------------
Til að skilja þetta viðfangsefni
út frá Guðspekilegu sjónarhorni
að þá þarf fólk að viðurkenna
ENDURHOLDGUNAR-LÖGMÁLIÐ sem staðreynd.
--------------------------------------------------------
Það er þannig í skóla hins "raunverulega GUÐS"
(óháð öllum skipulögðum trúarstofnum hér á jörðu)
Að þá er það þannig að við fæðumst öll í drengs-líkama
við fæðingu og lifum sem karlmaður, og þegar að við deyjum
að þá endurtekur þetta ferli sig í c.a. 20 skipti.
= SÁL okkar endurfæðist alltaf aftur og aftur hér á jörðu.-----------------------------------------------------------------
Síðan kemur að þvi "Í SKÓLA HINS RAUNVERULEGA GUÐS"
að við þurfum öll að prófa að lifa sem kona
og þá fæðast við sem stúlka og munum lifa sem kona
í ca. 20 mannsaldra.
Síðan endurtekur sagan sig.
(Þetta á ekkert skilt með einhverjum leikaraskap
eins og við getum séð í kvikmyndinni Tootse).
---------------------------------------------------------------
Þegar að þessi kynjaskipting á sér stað í "ANDA-HEIMINUM"
að þá gæti skapast ruglingur hjá SÁLINNI í einn mannsaldur
þarna strax á eftir
og þar er komin útskýringin á samkynhneigðinni.
-------------------------------------------------------------
Til að skilja alla þessa GUÐSPEKI
að þá mæli ég með að fólk þessa bók
sem að útskýrir málin mjög vel:
Þessi bók er til á íslensku á öllum bókasöfnum:
https://www.amazon.com/gp/product/0941109003?ie=UTF8&tag=michaelteachings-20&linkCode=as2&camp=1789&creative=9325&creativeASIN=0941109003
---------------------------------------------------------------
Ýtarefni um "andaheiminn" sett fram
af af viðurkenndum aðila með fullu viti:
https://www.lifeexplained.com/videos/2019/7/20/reincarnation
Dominus Sanctus., 15.9.2025 kl. 08:34
Margir misstu trúna á lækna og læknisfræði í hvirfilvindinum Covid-19. Þessi grein Ölmu tryggir að sá skaði gengur ekki til baka. Hver og einn verður í framtíðinni að kanna hug sinn áður en hann leitar til læknis, því svona kukl, eins og Alma stundar, mun aðeins styrkja stöðu Hr. Google.
Ragnhildur Kolka, 15.9.2025 kl. 08:44
Alma reynir líka að færa þjóðina á bak við ljósið þegar kemur að andlegum kvillum barna. Hún lætur hljóma eins og öll börn hafi verið stöðug áður en eigin skinn varð vanamál, en svo er ekki. Það er vitað að einhverf börn eru í mestri hættu þegar kemur að þessu kynjarugli, börn sem hafa lent í áföllum o.s.frv.
Annað sem Alma lætur hjá líða, er að tala um aukaverkanir lyfja sem börnum er gefið. Norskir læknar skrifuðu m.a. í grein sem þeir birtu. ,,Læknarnir segja; ,,Alvarlegar aukaverkanir hafa verið skráðar: ófrjósemi, varanleg skemmd á kynfærum, beinþynning, hjarta- og æðasjúkdómar og skaði eftir skurðaðgerðir. Slíkar aðgerðir leiða oft til varanlegrar ófrjósemi og geta valdið líkamlegum og sálrænum erfiðleikum til langs tíma.“
Helga Dögg Sverrisdóttir, 15.9.2025 kl. 09:51
Þó svo ekki sé hægt, enn sem komið er, að ber kennsl á kyn fósturvísis fyrr en tæpum þrem mánuðum eftir getnað, ákvarðast karlkyn og kvenkyn við getnað. Hvorki fyrr né síðar.
Baldur Gunnarsson, 15.9.2025 kl. 10:37
Hún ætti að kíkja aðeins á mæður þessara barna.
Þar lyggur vandinn.
Ásgrímur Hartmannsson, 15.9.2025 kl. 12:20
Hún ætti að skammast sín að kalla sig lækni.
Kuklari væri nær.
Sigurður Kristján Hjaltested, 15.9.2025 kl. 13:47
Ætli Alma eigi ekki skoðunarsystir hjá Biskup Íslands!
Sigurður I B Guðmundsson, 15.9.2025 kl. 14:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning