Háskóli Íslands fyrir hunda, ketti og páfagauka

Ég ,,vil að Háskóli Íslands verði fyrir öll" segir Silja Bára rektor. Á íslensku segir maður ,,öll dýrin" en við tölum um ,,alla menn." Málnotkun rektors felur í sér að Háskóli Íslands sé dýraskóli.

Öll dýrin í skóginum fá skráningu í menntastofnun sem sett var á fót fyrir rúmri öld og nefnd þjóðarskóli Íslendinga. Ekki hvarflaði að nokkrum manni að búfé ætti í framtíðinni aðgang að æðsta menntasetri landsins. Málleysingjar eiga vitanlega sín réttindi á guðs grænni jörð - en nýmæli er akademísk menntun handa kvikfé. 

Ekki eru tveir mánuðir síðan Silja Bára fékk innsetningu í embætti rektors. Á stuttum tíma hefur Silju Báru tekist að myrða menntun og skepnuvæða háskólann. Margur fengi sparkið fyrir minni yfirsjónir.

Hvað er á milli eyrna þeirra er studdu Silju Báru til rektors? Höfðu ferfætlingar og fiðurfé atkvæðisrétt í rektorskjöri?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Meeeee á þessa druslu.

Sigurður Kristján Hjaltested, 17.8.2025 kl. 09:51

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Aldrei við öðru að búast af henni. Vók tekið yfir flestar (ef ekki allar) deildir skólans og heilabú nemenda klórþvegin fyrir vitleysuna fyrir löngu. Silja Bara hefur ekki látið sitt eftir liggja i þeim efnum. 

Ragnhildur Kolka, 17.8.2025 kl. 13:36

3 Smámynd: Haraldur G Borgfjörð

Versta við þetta allt, er að flestit pafagaukarnir, sem útskrifast frá þessum skóla fa vinnu í sjoppunni við Austurvöll. 

Haraldur G Borgfjörð, 17.8.2025 kl. 14:31

4 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Það er ekki hægt að hrauna yfir sögu íslenzkunnar, sem í meira en 1000 ár hefur haft karlkynið sem aðalkynið, hlutlausa kynið fyrir bæði líffræðilegu kynin. Þar að auki ef litið er aftar í söguna má sjá sömu tilhneigingu í öðrum germönskum tungumálum með beygingar, eins og þau voru öll. Enskan var eitt sinn frábært mál á víkingatímanum, en með stöðugum innrásum Frakka og annarra varð hún latínuskotin og svo slettumál allra þjóða án beyginga og ruglandi framburðar.

Ég er algjörlega sammála þessum pistli. Þessi kynhlutlausa vitleysa þeirra fer saman við skort á viðtengingarhætti, óbeygð nöfn, óhóflega margar enskuslettur eins og það sé fínna, og margt annað sem hæfir ekki þeim sem hafa verið í grunnskóla.

Gamla og rétta reglan í íslenzku var að heimfæra erlend nöfn og búa til íslenzk, og að beygja næstum allt, sama hvað það er.

Með þessu er skólarektor að mála sig útí horn. Vissulega er wókið ekki dautt, en það er að verða útskúfað og einangrað, vonandi til að það detti alveg úr tízku.

Ég er eiginlega 100% viss um það að flestir sem sleppa viðtengingarhætti af venjulegu ungu fólki gerir það viljandi, til að þóknast wók-elítunni. Það heyrir maður á hiki sem oft er á undan villunum þeirra. Þau vita betur en þóknast elítu sem á ekki rétt á sér. Síðan er verið að herma eftir útlendingunum sem tala rangt mál, í því skyni að þurrka út muninn á innfæddum og nýkomnum.

Ef skólar og háskólar sérstaklega eru ekki fyrirmynd, þá á almenningur að vera tilbúinn að grýta háskóla og háskólafólk. Ég vitna hér í Bob Dylan:"Everybody Must get stoned". Hann sjálfur útskýrði þennan texta að hann væri Biblíulegur, að fordæma og grýta syndina. 

Annaðhvort þarf nýtt skólakerfi fyrir hægrimenn og nýja háskóla, eða uppreisn af einhverju tagi.

Ekki geta skólarnir kennt barnaskap.

Ingólfur Sigurðsson, 17.8.2025 kl. 18:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband