Silja Bára styður menntamorð

Ísaelskur gestafyrirlesari í Háskóla Íslands varð fyrir aðkasti og öskrum svo að hætta varð fyrirlestri í miðjum klíðum. Hamas-vinir vestur á Melum kalla þöggunina ,,sniðgöngusigur." Silja Bára rektor HÍ lætur gott heita enda sjálf afsprengi öskrandi vinstritjáningar.

Silja Bára hefur velþóknun á ofbeldi er þaggar skoðanir sem henni eru ekki að skapi. Rektur þykist hlynntur tjáningarfrelsi en það er yfirvarp. Í setningarræðu sinni sem rektor HÍ sagði Silja Bára:

 Meðvituð eyðilegging menntainnviða verður ekki kölluð annað en „menntamorð“. Það er alvarlegt og þarf að fordæma. En önnur og lævísari birtingarmynd þess er hugmyndafræðilegt ofbeldi sem felst í því að brjóta niður tjáningarfrelsi og akademískt frelsi með því að refsa og ógna fræðafólki um allan heim. Það þarf hins vegar ekki alltaf að beita ofbeldi heldur er fræðasamfélaginu gert ljóst að betra sé að þegja en að stíga fram. Það er á ábyrgð okkar allra að verja akademískt frelsi.

Í Dýrabæ Örwells eru sum dýrin jafnari en önnur. Í hugarheimi Silju Báru er öskrandi vinstritjáning rétthærri en háttvís orðræða. Menntamorð, samkvæmt skilgreiningunni sem rektor notað sjálfur við innsetningu í embætti.

Silju Báru er hjartanlega sama um tjáningarfrelsið. Hún og háskólamenn henni líkir eru aðgerðasinnar sem rökræða ekki heldur öskra. Málstaðurinn er ýmist manngert veður, kynjarugl eða að Hamas séu mannvinir en ekki fjöldamorðingjar. Imbafræði stunduð af þorpsfíflum í bergmálshelli.

Akademískt frelsi til að öskra á fyrirlesara er einskins virði. Háskólar aðgerðasinna eru einskins virði. Fyrrum voru háskólar miðstöðvar þekkingar og frjálsrar orðræðu. Nú sitjum við uppi með heimska dygðaflaggara á ríkislaunum í þægilegri innivinnu.

 


mbl.is Þögn rektors áhyggjuefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Vel mælt Páll

Eigum við líka að minnast á hvalavinin sem ritaði "óháða" skýrslu um dauðastríð hvala sem Svandís notaði til að banna hvalaveiar.
Skýrsluhöfundur taldi sig hafin yfir alla gagnrýni því hann hafði numið siðfræði

Grímur Kjartansson, 14.8.2025 kl. 18:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband