Sunnudagur, 10. ágúst 2025
Trump, Úkraína og endalok ESB-Evrópu
Trump og Pútín hittast í Alaska, sem einu sinni var rússnesk. Bandaríkin keyptu landið af Rússakeisara 1867. Land skiptir oftar um hendur í stríði en friði. Fundurinn í Alaska er um Úkraínustríðið. Tilgangurinn er að koma á friði.
Selenskí Úkraínuforseti fær ekki að koma á fundinn, eins og staðan er núna. Hvernig geta Pútín og Trump samið um frið í Úkraínu án aðildar Úkraínu? Stutta svarið er það sé ekki hægt. Úkraínumenn berjast á vígvellinum og taka við fyrirskipun frá Kænugarði, ekki Washington.
Lengra svarið er já, Trump hefur í hendi sér að ljúka stríðinu. Án vopnastuðnings Bandaríkjanna er Úkraínuher nánast bjargarlaus, úkraínska ríkið er varla gjaldfært án dollara að vestan. Trump og Pútín gætu komist að samkomulagi og Bandaríkjaforseti þvingað fram niðurstöðu í andstöðu við stjórnina í Kænugarði.
Óstaðfestar fréttir herma að Rússar fái að halda landsvæði sem þeir hafa lagt undir sig gangi fram áætlun Trump og Pútín.
Trump hefur svikið Úkraínu og gert heiminn hættulegri, skrifar Daníel Hannan í Telegraph og bætir við að vesturlönd munu súpa seyðið af svikum Trump næstu áratugi. Hannan túlkar ráðandi sjónarmið í Evrópu gagnvart Trump og hvernig hann höndlar Úkraínustríðið. Forveri Trump, Biden, var á bandi Evrópumanna.
Heimssýn Trump er stórveldahagsmunir. Hann sér Bandaríkin sem fremsta stórveldið, vitanlega, en síðan Kína og Rússland. Hannan nefnir tvö dæmi, ásælin Trump í Grænland og hugmyndina um að innlima Kanada í Bandaríkin, er lýsi ráðandi viðhorfum í Washington.
Til að Trump geti lagt línurnar í heimsmálum, með Kína og Rússlandi, þarf að klára Úkraínustríðið. Í þeim skilningi er Úkraínustríðið síðasta andvarp bandalagsins þvert á Atlantshaf, milli Bandaríkjanna og Vestur-Evrópu, sem varð til eftir seinna stríð. Á þeim tima fæðist fyrirbærið ESB-Evrópa, félagsskapur gamalla nýlenduvelda sem lifa á fornri frægð. Ljósmóðir fyrirbærisins er bandarískt hervald.
Trump lítur ekki á ESB-Evrópu sem stórveldi heldur héraðsríki vestast á Evrasíu-landflæminu. Austar í sama heimshluta eru stórveldin sem skipta máli, Rússland og Kína.
Gangi það fram, sem nú er á teikniborðinu, að Trump og Pútín ákveði örlög Úkraínu þrátt fyrir andstöðu ESB-Evrópu yrði það staðfesting á orðnum hlut. ESB-Evrópa er aðeins áheyrnarfulltrúi þegar stórveldin setjast niður og ákveða skipan heimsins.
Skringilegt er að sumir vilji að Ísland hoppi upp í fangið á ESB-hornkerlingunni. Hagsmunir Íslands eru að eiga bein samskipti við ríki sem skipta máli á alþjóðavísu, einkum þeirra er gera sig gildandi á Norður-Atlantshafi. Bandaríkin eru þar stórveldið, Bretland hjáleigan en ESB-Evrópa hreppsómaginn.
![]() |
Evrópuleiðtogar hvetja til aukins þrýstings á Rússland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ef Volodymyr Zelensky og ESB fá sæti við borðið þá verður enginn friður
Ef fólk vill frið þá þarf bara að skrúfa fyrir þetta eftirlitslausa fjármagnsflæði til Úkraínu. Það eru sterk öfl í Úkraínu sem þéna á þessu stríði
Grímur Kjartansson, 10.8.2025 kl. 09:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning