Laugardagur, 12. júlí 2025
Lýðveldi án málfrelsis
Valdarán, aftökusveitir og lýðræði á heljarþröm var viðkvæði ráðherra á fimmtudag. Á föstudagsmorgun var þingræðið ómerkt með þeim rökum að ráðherrar sögðu nóg rætt, nú skyldu verkin tala. Beitt var 71. grein þingskaparlaga og lokað á málfrelsi alþingismanna. Gerræði kvenhormóna er sjá tilræðismenn í þingmönnum sem andmæla.
Ekki hefur 71. grein verið virkjuð í 66 ár, í tíð 19 forsætisráðherra. Kristrún á sínum fyrsta þingvetri sem forsætisráðherra slaufar málfrelsi þingheims. Yfirlýsing Kristrúnar á fimmtudag geymdi þessi orð
Við munum verja lýðveldið Ísland. Við munum verja stjórnskipan landsins og heiður alþingis.
Heiður alþingis skal varinn með kefli upp í kjaft þingmanna minnihlutans og bundið fyrir. Heiður er ekki sælgæti í nammibúð til að svala sykurþörf. Heiður og vanvirðing í samhengi við stjórnskipun og hefðir eru hugtök sem verða til í umgengni við æðsta yfirvald kynslóð fram af kynslóð.
Tilefni afnáms málfrelsis þingmanna er að frumvarp um skattahækkun, tvöföldun veiðigjalda, fékk ekki meðbyr í þingsal. Það var allt og sumt. Engin þjóðarvá, heldur gekk erfiðlega að sannfæra minnihlutann um skynsemi þess að tvöfalda skattbyrði á eina atvinnugrein, sem einkum er stunduð á landsbyggðinni.
Lýðræði er samtal. Opinberar ákvarðanir í lýðræðisríki lúta formreglum. Beiting 71. greinar þingskaparlaga eru ítrustu úrræði, enda heimildin ekki verið virkjuð í 66 ár. Eðli ítrustu úrræða er að annað tveggja valda þau hamingjuskiptum í valdaskaki þar sem annar beygir sig í duftið eða innleiða ofbeldissamband.
Eftir föstudaginn 11. júlí 2025 er ekki sama þingræðið hér á landi og var fyrir. Fyrsta grein stjórnarskrárinnar er svohljóðandi:
Ísland er lýðveldi með þingbundinni stjórn.
Eftir föstudagsgerræðið leikur vafi á stjórnskipuninni. Það glittir í hrátt vald meirihlutans sem ber minnihlutann atkvæðum af ómerkilegasta tilefni. Þar sem áður var samtal er öskur og hávaði með brigslum um valdarán, aftökusveitir í húsasundum og endalok lýðræðis.
Lýðveldið er gjaldfellt, innihaldslausara en það áður var. Nærtækasta viðbragð minnihlutans er að láta strax á það reyna hvort meirihlutinn ætli að stíga skrefið til fulls og innleiða hrátt tilskipunarvald. Þjóðin þarf að fá það á hreint, fyrr heldur en seinna.
Lýðveldi án málfrelsis fær ekki staðist.
![]() |
Segir ríkisstjórnina hafa sett á svið leikrit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það hlaut að koma að því að það þyrfti
"AÐ HÖGGVA Á HNÚTINN" eins Guðmundur Professor orðaði það.
-----------------------------------------------------------
Hvað með máltækið;
"Að hver þjóð verðskuldi það sem hún kýs yfir sig".
Dominus Sanctus., 12.7.2025 kl. 08:34
Örflokkar hafa nýtt þetta "málfrelsi" miskunarlaust á Alþingi
svo það er fínt að því verði slaufað en 3 mánaða sumarfríið verður varla stytt
en það hefðu orðið óeirðir á Austurvelli ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði einhvern tímann virkjað 71. greinina
Grímur Kjartansson, 12.7.2025 kl. 09:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning