Ţriđjudagur, 24. júní 2025
Hanna Katrín ţolir ekki ţingrćđiđ, Kristrún falsfréttar
Atvinnuráđherra, Hanna Katrín, segir alţingi í gíslingu. Ţađ er rangt. Alţingi starfar sem aldrei fyrr, fundar jafnvel á sunnudögum. Fásinna er ađ halda fram ađ ţjóđarsamkundan sé í gíslingu ţegar hún starfar nánast nótt sem nýtan dag. Hanna Katrín blekkir vísvitandi, líkt og hún er kunn fyrir, kallar skattahćkkun ,,leiđréttingu." Kristrún forsćtis kemur í kjölfar Atvinnu-Hönnu og sakar ţingmenn stjórnarandstöđunnar um falsfréttir.
Hanna Katrín er of huglaus í einn stađ og í annan stađ of dramblát til ađ kalla hlutina réttum nöfnum. Alţingi er međ ríkisstjórnina í gíslingu. Ţađ sem meira er: framkvćmdavaldiđ er alltaf í gíslingu ţingsins. Gíslatakan, ef menn vilja nota ţađ orđ, hófst fyrir meira en hundrađ árum. Ţegar Ísland fékk innlent stjórnarráđ, heimastjórn áriđ 1904, komst á sú skipan sem Hanna Katrín kallar gíslatöku en heitir í raun ţingrćđi. Ţađ felur í sér yfirvald löggjafans yfir framkvćmdavaldinu.
Kristrún forsćtisráđherra hefur ekki meira álit á ţjóđţinginu en svo ađ hún sakar ţingmenn um ađ falsa fréttir af stćrsta máli ríkisstjórnarinnar, tvöföldun á veiđigjöldum. Ummćlin lét Kristrún falla í viđtali á RÚV. Í málefnum falsfrétta kann ríkisfjölmiđillinn ýmislegt fyrir sér en kýs ađ fylgja ekki eftir orđum forsćtisráđherra. Vísir aftur tekur máliđ upp og segir frá viđbrögđum stjórnarandstöđunnar.
Alţingi starfar samkvćmt ţingsköpum sem mćla fyrir málsmeđferđ ţingmála. Ţađ er ekki ráđherra ađ ákveđa ţingsköpin heldur ţingheims. Framkvćmdavald sem ćtlar sér ađ brjóta á bak aftur ţingrćđiđ er komiđ á hálan ís, svo ekki sé dýpra í árinni tekiđ.
Pólitískur veruleiki Kristrúnar, Hönnu Katrínar og stjórnarmeirihlutans er sá ađ veiđigjaldamáliđ er ótćkt. Ţingmáliđ er tilrćđi viđ grunnatvinnuveg ţjóđarinnar. Umrćđa, innan ţings og utan, hefur leitt í ljós stórkostlega vankanta á frumvarpi Hönnu Katrínar og félaga. Ekki síst er ađ ţakka málafylgju ţingmanna stjórnarandstöđunnar ađ fariđ hefur veriđ í saumana á yfirvofandi stórslysi framkvćmdavaldsins.
Stjórnarmeirihlutinn á ađeins tvo kosti. Í fyrsta lagi ađ afturkalla meingallađ frumvarp og vinna upp á nýtt. Í öđru lagi ađ rjúfa ţing og bođa til kosninga. Kristrún og Hanna Katrín ćttu ađ fara ítarlega yfir málin sín á milli og rćđa hvor kosturinn sé vćnlegri fyrir land og ţjóđ. Ef ţćr stöllur bera á annađ borđ hagsmuni landsmanna fyrir brjósti - sem er álitamál.
![]() |
Fundarstjórn forseta fór í veiđigjöldin |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ţú ert innskráđ(ur) sem .
Innskráning