Hanna Katrín játar ósigur, segist ríkisstofnun

Atvinnuráðherra, Hanna Katrín, játar ósigur í veiðigjaldamálinu þar sem til stendur að tvöfalda skattinn sem lagður er á fiskveiðar. Játningin er í blaðagrein sem ráðherra skrifaði. Hanna Katrín klæðir játninguna í búning hótunar. Lokaorð ráðherra í Vísisgrein:

Það má hafa skilning á því að hagsmunaöfl, sem hafa vanist því að skrifa leikreglurnar að miklu leyti sjálf, fagni ekki þegar ný ríkisstjórn reynist þeim ekki leiðitöm. Það er hins vegar grafalvarlegt mál þegar viðbragð þessara sömu hagsmunaafla er að ráðast að stofnunum ríkisins að því er virðist í þeim tilgangi að þvinga fram aðra niðurstöðu. Við því verður brugðist af fullum þunga. (feitletr. pv)

Í fyrri feitletruninni stofnanagerir ráðherra sjálfan sig, Hanna Katrín er orðin að ríkisstofnun. Í seinni feitletruninni hótar þessi nýja ríkisstofnun, sem má kalla HKF-stofnunina, að beita sér af ,,fullum þunga" gegn þeim sem voga sér að andmæla tvöföldun skattbyrði á eina atvinnugrein. Í stað þess að taka umræðuna af drengskap leggur ráðherra á flótta, transar sig yfir í stofnun. 

Hanna Katrín er eldri en tvævetra og sennilega óheimsk. Hún veit að ráðherra er eitt og ríkisstofnun annað. Ráðherra starfar tímabundið í umboði meirihluta þingsins og er það sem í daglegu tali kallast stjórnmálamaður. Ríkisstofnun er varanleg og starfar samkvæmt lögum.

Í Vísisgreininni, fram að lokaorðunum, skrifar Hanna Katrín eins og stjórnmálamaður, talar um að þjóðin vilji þetta og hitt, að tvöföldun skattbyrðar sé leiðrétting og svo framvegis. Ráðherra virðist meðvitaður að hann sé réttur og sléttur pólitíkus á umræðuvakt. Í lokaorðunum er komið allt annað hljóð í strokkinn, þar er gagnrýni á ráðherra orðin að árás á stofnanir ríkisins. Hanna Katrín getur ekki varið málflutning sinn sem stjórnmálamaður og fer í trans; hættir að vera stjórnmálamaður af holdi og blóði en gerist ríkisstofnun. Með yfirlýsingunni einni saman, líkt og karl verði kvenmaður með setningunni: ég er kona. 

Lausatök Hönnu Katrínar á veruleikanum á sínar skýringar. Á hinsegin-hátíð í Washington nýverið tilkynnti hún að þörf væri á lagasetningu til að breyta skoðunum fólks. Skráð skal í lög að kynin séu fleiri en tvö og að hægt sé að fæðast í röngum líkama. Þeir sem eru annarrar skoðunar, að kynin séu aðeins tvö og ómögulegt sé að fæðast í röngum líkama, verða lögbrjótar fái sérviska ráðherra framgang. Geta má nærri hvort frjálshuga menn með dómgreindina óbrenglaða fái ekki að kenna á HKF-valdinu ,,af fullum þunga."

Frekjulegt valdboð afhjúpar veruleikafirringu meints valdhafa. Í veiðigjaldaumræðunni er ráðherra strand. Viðtengd frétt staðfestir skort á grunnfærni í reikningi af hálfu þeirra sem um véla. Í stað þess að afturkalla frumvarpið, þegar alvarlegir gallar komu í ljós, og vinna betur heimavinnuna, er málið transað. Ráðherra verður að ríkisstofnun sem hafin er yfir gagnrýni þótt ekki kunni hann að reikna. Staðreyndir, hvort heldur reiknanlegar eða líffræðilegar, verða aukaatriði, ímyndun aðalatriði. Heimurinn virkar ekki þannig. Tölur í bókhaldi segja hvort fyrirtæki sé gjaldfært eða ekki. Ímyndanir transráðherra forða hvorki rekstri né stjórnmálum frá gjaldþroti.

Í takt við annað, sem kemur frá atvinnuráðherranum er varð að stofnun, hlýtur að liggja fyrir kyn nýja ríkisapparatsins, HKF-stofnunarinnar. Er stofnunin kvár, stálp eða kannski bara dár?

 

 


mbl.is Viðurkenna ólíkar forsendur en hafna ásökunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband