Miðflokkurinn er eini hægriflokkurinn

Eini hægriflokkurinn á alþingi er Miðflokkurinn. Andstaðan við bókun 35, að ESB-lög gangi framar íslenskum lögum, er hrein og tær fullveldispólitík. Flokkar sem ekki eru einarðir andstæðingar bókunar 35 eru ýmist á miðjunni eða til vinstri. Hælismálin er annað höfuðmál sem aðgreinir hægri frá vinstri. Þar er Miðflokkurinn með sérstöðu, líkt og í Evrópumálum.

Hvað með Sjálfstæðisflokkinn? Er hann ekki hægriflokkur? Nei, gamli móðurflokkur íslenskra stjórnmála er til vinstri við miðju í meginmálum. Flokkurinn rígheldur í EES-samninginn með tilheyrandi orkupökkum. Flokkurinn er værukær, svo notað sé hófstillt orðalag, í hælismálum. Stöku þingmenn, Diljá Mist til dæmis, taka hægrisprett og eru tilbúnir að taka slaginn en þorri þingliðsins er eins og rótlaust þang, reikult og rekst um víðan sjá. Líkt og skáldið orti: Bylgjan, sem bar það uppi/var blóðug um sólarlag.

Sólarlag Sjálfstæðisflokksins er í beinni útsendingu. Það verður blóðugra en síðustu kosningar. Þá varð flokknum til happs að botna á réttum tíma, nógu nærri þingkosningum til að hægt væri að hringja út skilaboðin ,,viltu að flokkurinn sitji uppi með tólf prósent fylgi." Á síðustu metrum kosningabaráttunnar tókst með herkjum að hífa fylgið upp í tuttugu prósent.

Gamlir flokksjálkar horfa til gullaldarinnar þegar XD var með þriðjungsfylgi í áskrift hjá þjóðinni. Hvað breyttist? Stutta svarið er að þjóðfélagið breyttist en Sjálfstæðisflokkurinn lifir í veröld sem var. Flokkurinn fór þjóðkirkjuleiðina, flaut með óskilgreindum meginstraumi án kjölfestu og stefnu. Hávaðafólk í samvinnu við fjölmiðla bjó til ímynd um meginstraum. Við sjáum hvert ímyndaður meginstraumur leiddi þjóðkirkjuna. Biskupinn á betur heima í druslugöngunni en við altarið. Sjálfstæðisflokkurinn er á sömu leið.

Sigmundur Davíð formaður Miðflokksins hélt opinn félagsfund á þriðjudag. Húsfyllir var og hafði formaðurinn á orði að mörg ný andlit væru á fundinum. Hann kom beint af kvöldfundi þingsins, talaði í einn og hálfan tíma við fundarmenn og svaraði spurningum, en hélt síðan aftur í þinghúsið að andmæla bókun 35. Fundarmaður spurði Sigmund Davíð um fjölmenn mótmæli á Austurvelli í lok maí, þar sem hælisstefnu stjórnvalda var andmælt. Hann kvaðst geta skrifað upp á hvern einasta lið mótmælanna.

Engum blöðum er að fletta að Sigmundur Davíð og Miðflokkurinn eru betur tengdir við undirstrauma samfélagsins og betur settir að sækja stuðning almennings en þjóðkirkjuflokkurinn í ímynduðum meginstraumi.

 


mbl.is Rætt um bókun 35 inn í sumarnóttina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Dominus Sanctus.

Myndu ekki svona hugleiðingar flokkast sem lengst til hægri? 

https://vb.is/frettir/vill-selja-hlut-i-landsvirkjun/

Dominus Sanctus., 15.6.2025 kl. 09:27

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Miðflokkurinn stendur sig í baráttunni við landráðafólkið.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 15.6.2025 kl. 10:00

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Er samasemmerki á milli þess að vera til hægri og vera á móti því að umsamin réttindi almennings samkvæmt EES samningnum verði betur tryggð? Það væri þá einhver ný stjórnmálaskýring sem ég hef ekki heyrt áður.

Guðmundur Ásgeirsson, 15.6.2025 kl. 18:38

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það var klókt hjá Bjarna, eftir að hafa grafið undan gildum flokksins, að láta nýjum formanni eftir að sjá um útförina.

Ragnhildur Kolka, 15.6.2025 kl. 19:39

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband