Katrín Thunberg og loftslagskvíðinn

Barnasendiherra Sameinuðu þjóðanna í loftslagsvá, Gréta Thunberg, gekk fyrir Hamas-björg og þáði góðgerðir frá ísraelskum hermönnum með bros á vör. Loftslagsvörumerkið Thunberg er ónýtt. Sænska barnaundrið víkur fyrir fyrrum formanni Vinstri grænna, Katrínu Jakobs.

Katrín er formaður nýrrar alþjóðanefndar um yfirvofandi loftslagshamfarir. Á RÚV fer hún með sömu rulluna og Gréta áður: við megum engan tíma missa. Málflutningur Katrínar er rökvilla, niðurstaðan á að sanna forsenduna. Á RÚV er haft eftir Kötu fyrrum spöku:

loftslagskvíði og aðrar ógnanir séu staðreynd nútímans segir Katrín.

Ef fólk er haldið loftslagskvíða, staðhæfir Katrín, hlýtur að vera loftslagsvá. Kvíði er hugarástand sem sannar ekki eitt eða neitt nema að einhver óttist eitthvað. Hamfaratrú orsakar kvíða. Umbjóðendur Katrínar, alþjóðaelítan, ala á kvíðanum, það er hluti af óttastjórnun. Gerið eins og við segjum, annars er heimsendir í nánd.

Fyrrum forsætisráðherra víkur almennum orðum að vísindum og gögnum, segir þau undirbyggja heimsendaspámennskuna. Nei, alls ekki. Nákvæmar gervihnattamælingar á loftslagshjúp jarðar sýna að jörðin hlýnar um 0,15 gráður á áratug síðustu 45 árin. Á einni öld hlýnar plánetan um eina og hálfa gráðu á selsíus. Engin hamfarahlýnun heldur náttúruleg þróun, í takt við það sem vitað er um fyrri loftslagsbreytingar.

Það er engin loftslagsvá, segir í yfirlýsingu 1900, já, eitt þúsund og níuhundruð, loftslagsvísindamanna og sérfræðinga, sem biðja um að stjórnmálamenn líti til staðreynda en ekki pólitískra fáránleikafræða.

Þegar Eiríkur rauði nam Grænland fyrir rúmum þúsund árum stundaði hann kúabúskap að norrænum hætti. Þá stóð yfir miðaldahlýskeiðið. Um 1300 tók við litla ísöld og varði til um 1900. Byggð norrænna manna eyddist á Grænlandi og stóð tæpt á Ísland þegar saman fór kuldi og eldvirkni kennd við móðuharðindin. Veðurfar breytist frá einu tímabili til annars. Það er ekki til neitt sem heitir kjörhitastig jarðar. 

Gréta, Katrín og hamfarasinnar handvelja staði og tímabil til að kynda undir loftslagskvíða. Auðvelt er að beita sömu aðferð til að sýna fram á hið gagnstæða, að heimurinn sé að kólna. Þannig upplýsir sá ágæti veðurfræðingur Trausti Jónsson að fyrstu tíu Reykjavíkurdagarnir í júní í ár eru þeir köldustu í 118 ár. Er kuldaskeið yfirvofandi? Koma jólasveinar til byggða í ágúst?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Dögg Sverrisdóttir

Verra er að Katrín hikaði ekki við að leggja skatt á menn og fyrirtæki til að fá peninga í þessa þvælu. Um þetta er kennt í grunnskólanum, til að tryggja að börnin séu hliðholl málefninu þegar þau eldast. 

Helga Dögg Sverrisdóttir, 12.6.2025 kl. 08:57

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Hvað sem allri loftslagsvá líður, þá er Katrínu borgið. Hún hefur nú verið tekinn inn í hlýjan faðm alheims-besservitanna þar sem hún getur bullað að vild og þarf engum að standa reiknisskil.

Ragnhildur Kolka, 12.6.2025 kl. 09:00

3 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

 Þið sjálfumglöðu kristlingar og kapítalistar berið þunga ábyrð á hamfarahlýnun. Gréta Thunberg er síður en svo ónýtt vörumerki. Hins vegar má efast um að óumdeild séu vörumerki á borð við Samherja, Ísrael, Biblían, kapítalismi, Ísraelstjórn, mengunarafneitun, útþenslustefna vestrænna ríkja, Nató, ESB, Jahve, hernaðarhyggja, Jesús Kristur og fleira.

Sænska barnaundrið Gréta Thunberg er svo öflugt og alþjóðlegt vörumerki að hún lætur til sín taka sem verndari Palestínu og Gazabúa, eins og Jóhanna af Örk var verndari Frakklands.

Þú gagnrýnir að Gréta þáði góðgerðir frá ísraelskum hermönnum. Átti hún að vera í fýlu og fara útí horn og segjast of góð fyrir þær?

Það er sitthvað samúðarríkir ísraelskir hermenn og grimmilegur Netanahu og slíkir yfirmenn. Hún þáði samloku og vatn. Jæja, rétt er það, að ef hún hefði verið eins og Ghandi hefði hún verið í hungurverkfalli.

Fyrir suma er blettur fallinn á vörumerkið Gréta Thunberg, fyrir aðra er þetta smámál, að þiggja eina samloku og vatnsglas, Gréta Thunberg og ferðin til Gaza var ein af stærstu fréttum sumarins hingað til, heimsfrétt. Að segja að Gréta Thunberg sé ónýtt vörumerki það eru öfugmæli.

Það eru ýmis skeið í lífi dýrðlingsins og hetjunnar. Umdeildu skeiðin eru ýmisleg þegar talið er farið yfir mörk hreinleikans. 

En þegar frægðin er nógu mikil eins og í tilfelli Grétu Thunberg þá yfirvinnur hún gagnrýnina.

Það sýnir nú hversu alþjóðlega stórt nafn Gréta Thunberg er, að hún víkkar út heilagleika sinn, ekki aðeins boðberi hreinnar náttúru heldur einnig friðar.

Katrín Jakobsdóttir er einnig á réttri leið að sækja í hugsjónir og vinnu sem gerðu hana ósnertanlega, vinsæla og táknmynd þjóðarinnar lengi, áður en Svandís Svavarsdóttir og hennar fóstureyðingar komu óorði á Vinstri græna.

Kvíði er betri en afneitun og sök sem bítur sekan. Allt mannkynið er sekt um mengun. Þá er betra að kvíða afleiðingum þess en að afneita því.

Þú vitnar í Trausta Jónsson, og bara lítinn hluta hans gagna og orða.

Hann fjallaði líka um það að hitabylgjan í maí var mjög óvenjuleg, og aðrir veðurfræðingar hafa sagt að ef álíka hitabylgja kemur í júní, júlí eða ágúst á þessu ári gæti hún SLEGIÐ ÖLL HITAMET, 30 gráður eða MEIRA!!!

Kuldaskeiðið sem hófst uppúr 1300 var útskýrt af dr. Helga Pjeturss.

Ástæða þess er guðinn sem þið kristlingar trúið á og tignið sem er djöfull, Jahve.

Ástæðan fyrir kuldaskeiðinu sem hófst uppúr 1300 var að íslenzka þjóðin kristnaðist, tók upp kristni, og hananú!

Vísindamenn eru ekki ein hjörð.

Þeir láta stjórnast af skoðunum og bergmálshellum, af fjárveitingum og stuðningsaðilum, háskólum sem þeir vinna fyrir.

Það er því heldur erfitt að sanna mál sitt með því að vitna í suma vísindamenn. Þá þarf maður að gera grein fyrir fyrir hvern þeir vísindamenn vinna og hversvegna.

Ingólfur Sigurðsson, 12.6.2025 kl. 15:17

4 Smámynd: Baldur Gunnarsson

Bábilju-síbylja veldur sumu fólki kvíða.  

Baldur Gunnarsson, 12.6.2025 kl. 19:28

5 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

Heimsenda spár eru upprunnar frá Romversk kaþolsku kirkjunni sem að notaði heims enda spár sem stjórntæki. 

það var þannig að fólki var talið að heimsendir væri í nánd,  en kraftaverk gætu skeð ef að folk glfi allar eignir sínar til kirkjunnar, sem að fólk gerði í örvæntingu sinni. 

þetta hefur kaþolska kirkjan endurtekið aftur og aftur með reglulegu millibili. 

það er nefnilega hin kaþolska Brussel, sem að hefur milligöngu með loftslags eða réttara sagt, LOFTSLAGS AFLÁTS BRÉFIN. !!!

Það er nefnilega byrjað að selja aflátsbréfin aftur. 

Það er nefnilega hægt að kaupa loftslags AFLÁTS BRÉF, rétt eins og í gamla daga, og þeir sem  að það gera þurfa ekki að skammast sín og geta farið yfir móðuna miklu sáttir og verða ekki gert að sækja refsingu á hinumegin eftir dauðan út af nokkrum menguðum rykkornum. 

það koma aldrei síðan neinn heimsendir, og þá hafði kaþolska krikjan náð öllum eignum undir sig, af trúgjörnum einstkalingum, sem að þó heldu að Kraftaverk hefði skeð og heimsendir hafi ekki orðið út af þvi að það hafði gefið allar eignir sínar til kirkjunnar. KRAFTAVERK HAFÐI SKEÐ. 

þá var hægt að kaup afláts bréf, og núna er það hægt í gegnum Brussel. 

Lotslags aflátsbréf. 

Nú er sama sagan upp á tengingnum, þar sem að Katrin jakops skrifaði undir loftslagsamning, sem að allir vissu og isl myndi aldrei getað staðið við, en katrin jakops vonaðist eftir kraftaverki, og afhenti Romversk kaþolskku meðlimunum þarna i Esb, 10 milarða á ars fresti frá isl þjóðinni. 

Fékk að launum nátturlega þennan stól í loftslagsnefndinni kaþolsku.

Páfin í Róm brosir, af þessari þYSK ÆTTUÐU KATRINU.  Slésvik holstein. 

Al Gore, átti 2 miljarða áður en að hann byraði í loftslags málunum, en núna 20 árum seinna er sagt að hann eigi 20 miljarðað, 18 úr loftslags hysteriunni. Hann var í þvi að telja fólki trú að heimsendir væri i nánd, og hann bauð fram lausnir Á SAMA TÍMA  sem nytsamir sakleysingjar gleyptu við og borguðu fyrir, í von um eitt kraftaverkið enn. 

AL GORE, HRÆDDI FÓLKIÐ EN BAUÐ FRAM LAUSNIR Á SAMA TÍMA. 

Möguleg kraftaverk. 

Hægt og rólega, þá er verið að afhenda Island,sem er mótmælenda ríki, kaþolsku elæitunni i Esb. 

DEATH BY A THOUSANDS CUT !!

Ein skurður i einu, þannig að lítið beri á. 

Katrin , þorgerður, etc etc, eru öllu að vinna að sama markmiðinu, að afhenda öðrum island á silfur fati og fá verðlaun i staðin. 

I þjóðarbók hlöðu þá rakst ég á bók fyrir löngu fyrir tilviljun og bókin fjallaði um kúgunn þjóða. Af öllum þjóðum heims, þá kaus sá sem að skrifaði bókina að láta bókina fjalla um island. 

það var á þeim tíma, er ég áttaði mig á því hvar island var og er í raun og veru statt.  Isl eru bara svo samdauna ástandinu að þeir taka ekki eftir þvi hversu hroðalega kuguð þjóðin er, af Washington og Esb hýtinni hérna sitthvoru megin við. 

kv

LIG

kv

LIG

Lárus Ingi Guðmundsson, 12.6.2025 kl. 20:32

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband